15.05.1981
Sameinað þing: 83. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4458 í B-deild Alþingistíðinda. (4508)

388. mál, utanríkismál 1981

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson kvartaði undan því, að hann teldi það ekki sæmandi að þessi umr. færi fram við þær kringumstæður að svo fáir væru hér í salnum og svo langt væri liðið á kvöld. Það má vissulega færa nokkur rök að því, að Alþingi Íslendinga á að gefa sér betri tíma til að ræða utanríkismál. Ég get tekið undir það. En ræða hv. þm. Birgis Ísl. Gunnarssonar var ekki mjög sæmandi innlegg í þá umræðu um utanríkismál sem vissulega er réttlætanlegt að Alþingi Íslendinga taki til meðferðar. Tveir síðustu ræðumenn, þeir einu sem hér hafa talað í kvöld, hafa að mjög litlu leyti tekið til umræðu þá merku skýrslu sem utanrrh. lagði hér fram, heldur hafa notað þá skýrslu til að fara hér í eins konar kosninga- og eldhúsdagsumr. um Alþb.

Nú skal ég ekki lasta að Alþb. sé tekið hér til umr. Vonandi verður það sem oftast og sem lengst tekið hér til umr. En ég vil hins vegar segja það um þessa tvo ágætu þm., sem vildu örugglega láta taka sig alvarlega í umr. um utanríkismál, að ræður þeirra beggja einkenndust af svo þröngsýnu og skammsýnu pólitísku karpsjónarmiði um þennan mikilvæga málaflokk að það er mjög sérkennilegt að þeir skuli vera hvor um sig annar aðalræðumaður flokks síns í umr. um utanríkismál. Hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson talar hér á eftir Geir Hallgrímssyni, formanni flokksins, og hv. þm. Eiður Guðnason talar hér á eftir sínum fyrrverandi formanni.

Það eru vissulega ýmis atriði í skýrslu utanrrh. sem ég er ekki sammála. Það vita allir sem einhverja smáþekkingu hafa á utanríkismálum. Það eru atriði sem snúa að deilum sem hér hafa verið lengi í landinu um samninginn við Bandaríkin og herstöðina hér. Hins vegar er það aðeins einn kafli af mörgum í skýrslu hæstv. utanrrh. Þótt þessi skýrsla sé stutt er það kostur, en þó um leið galli hvað það snertir, að mörg af þeim afar mikilvægu málum, sem þar er drepið á, eins og t. d. slökunarstefnan og samskipti Norðurríkjanna og Suðurríkjanna, eru slík grundvallaratriði fyrir framtíð alls mannkyns hér á jörðinni að það er til vansa að þegar tveir síðustu ræðumenn Sjálfstfl. og Alþfl. koma hér upp í ræðustólinn í þessari umr. skuli þeir ekki hafa víðari heimssýn en svo að þeir snerta varla á þessum grundvallarþáttum í skýrslu hæstv. utanrrh. Vissulega er mikilvægt að við ræðum þau mál, sem að okkur snúa hér heima, út frá þeim her, sem hér er í landinu, og því samkomulagi, sem gert hefur verið um hann. En við verðum þó að átta okkur á því, að sú veröld, sem við búum í, er samansett af slíkum örlagaþráðum að framgangur þeirra getur haft miklu afdrifaríkari áhrif á hvers konar veröld við búum í á næstu 10–20 árum en þær deilur sem við stöndum í og höfum staðið í hér heima á Íslandi, þótt þær séu vissulega mikilvægar fyrir þjóð okkar, ég ætla ekki að draga úr því.

Hæstv. utanrrh. vék í skýrslu sinni og í sinni ræðu einnig að þeirri ömurlegu fátækt sem í heiminum er. Núna eru 900 millj. manna í veröldinni sem hafa í árstekjur 75 dollara bandaríska. Hæstv. utanrrh. vék að því í ræðu sinni að á hverjum degi, hverri viku deyja hundruð og þúsundir barna vegna fæðuskorts. 800 millj. manna í veröldinni búa við svo ömurlega fátækt að ekki nokkur lífsreynsla Íslendings kemst í námunda við það ömurlega líf, ef líf skyldi kalla.

Hæstv. utanrrh. vitnaði í skýrslu sinni í ummæli framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um þessa þróun í heiminum og um þá kröfu sem verður að gera til þess að samningar milli iðnaðarríkjanna og hinna fátækari ríkja Suðurheimsins nái fram að ganga. Ef ekki verður í þeim málum grundvallaruppstokkun á næstu 10–20 árum verður sú veröld, sem við komum til með að búa í á seinasta hluta þessarar aldar, ofin slíkum örlagaþráðum að enginn okkar hér í þessum sal getur gert sér grein fyrir því, hvað kann í því að búa. Að þessum málum víkja þessir hv. þm. ekki. Birgir Ísl. Gunnarsson hefur ekki áhuga á að ræða fátæktina í heiminum. Hann hefur ekki áhuga á að ræða það, að næstum því 1000 millj. manna í heiminum búa við árstekjur sem eru 75 bandarískir dollarar. Hann hefur ekki áhuga á að ræða það, að í heiminum eru 500 millj. manna sem hafa ekki nægilegt vatn. Hann hefur ekki áhuga á að ræða það, að bilið milli hinna fátækari og ríku þjóða heimsins er sífellt að breikka. Nei, þessi mál eru ekki á utanríkismáladagskrá Sjálfstfl. Hv. þm. er enn, eins og ég sagði þegar ég greip fram í fyrir honum í ræðu hans, staddur á uppeldisnámskeiðunum í Heimdalli þar sem Atlantshafsbandalagið, NATO, og utanríkismál voru eitt og hið sama.

Það kom greinilega fram í ræðu Geirs Hallgrímssonar og enn frekar í ræðu hv. þm. Birgis Ísl. Gunnarssonar að það, sem þjáir Sjálfstfl. á Íslandi, er greinilega það, að Atlantshafsbandalagið er slíkur hornsteinn í þeirra heimssýn að þeir sjá bókstaflega ekkert annað. Ég er hins vegar meira hissa á því, að hv. þm. Eiður Guðnason, sem telst þó til hinnar sósíaldemókratísku alþjóðlegu hreyfingar, eins og greinilega má sjá á þeirri bindisnælu sem hann ber daglega í þingsölum og ber merki þeirrar rósar sem jafnaðarmenn í Evrópu hafa gert að sínu merki, skuli ekki telja nauðsynlegt, líkt og jafnaðarmenn gera í mörgum nágrannalöndum okkar, þegar hann kveður sér hljóðs á Alþingi Íslendinga um skýrslu utanrrh., að koma inn á þessi mál. (EG: Það verður ekki allt sagt í einni prédikun, hv. þm.) Nei, það er auðvitað rétt. En þegar menn hafa stuttan ræðutíma velja menn það sem mönnum finnst mikilvægast. Ég hélt að sú veröld, þar sem hundruð milljóna manna eru að deyja úr sárri fátækt, væri e. t. v. meira áhyggjuefni þessum ágæta þm. en örlög okkar sem erum hér um sinn talsmenn Alþb. En það var greinilegt að honum var meira í mun að ræða landsfund Alþb. og ræða pólitísk örlög okkar en milljónirnar í heiminum sem eru að deyja úr hungri.

Samskipti stórveldanna á sviði afvopnunar eða hervæðingar — hvorugur þessara hv. þm., Birgir Ísl. Gunnarsson eða Eiður Guðnason, gerði þá kafla í skýrslu utanrrh. að sérstöku umræðuefni. Þó tel ég að í þeim kafla hafi hæstv. utanrrh. Ólafur Jóhannesson lagt fram sjónarmið sem séu að mörgu leyti góð varnaðar- og viðvörunarorð gagnvart þeim öflum sem hafa verið að reyna að draga úr þeim árangri sem þarf að nást, verður að nást í afvopnunarmálum Evrópu og veraldarinnar allrar. Það er alger misskilningur, hv. þm. Eiður Guðnason, að við Alþb.-menn séum á móti utanríkisstefnu þessarar ríkisstj. Það sýnir best þá þröngu heimssýn, sem kemur fram hjá þessum tveimur ágætu þm., að NATO er í þeirra augum heimurinn. Utanríkismál eru NATO og ekkert annað. Ef menn eru á móti NATO eru menn á móti utanríkismálum. Þessir tveir hv. þm. hafa ekki lesið skýrslu utanrrh. Ef þeir hafa gert það telja þeir, greinilega af einhverjum undarlegum ástæðum sem væri mjög æskilegt að fá upplýst hér í umr., ekki nauðsyn að snerta á þessum málum.

Það er margt í þessari skýrslu hæstv. utanrrh. sem ég er algerlega sammála og Alþb. er algerlega sammála: þau sjónarmið sem koma fram í þessari skýrslu um hinar svokölluðu norður-suður-viðræður, margt af því sem kemur fram í þessari skýrslu um afvopnunarviðræðurnar og ég veit nú ekki hvort ég má segja það, því að það verður sjálfsagt misskilið, en ég ætla að gera það samt, viðhorf hæstv. utanrrh. til þeirrar ræðu sem Brésneff flutti á þingi kommúnistaflokksins. Ég segi þetta ekki vegna þess að ég sé sammála öllu eða mörgu af því sem kom fram í þeirri ræðu: Ég tel það hins vegar alveg hárrétt mat — (EG: Hjá Brésneff eða utanrrh.?) hjá utanrrh., að margt í þessari ræðu fól í sér athyglisverðan blæbrigðamun og hugmyndir sem vert er að leggja eyrun við og skoða, eins og hæstv. utanrrh. sagði. Þess vegna er það algerlega rangt hjá hv. þm. Eiði Guðnasyni að Alþb. sé á móti utanríkisstefnu þessarar ríkisstj:

Það er hins vegar ýmislegt í þeirri utanríkisstefnu, sem hæstv. ráðh. hefur fylgt, sem við erum ekki ánægðir með. Það er af eðlilegum ástæðum, vegna þess að Alþb. er hér á Alþ. í minni hl. með afstöðu sína til Atlantshafsbandalagsins og afstöðu sína til herstöðvarinnar. Við erum líka í minni hl. hér á Alþingi með afstöðu okkar til ríkisstjórnar Pol Pots, en það væri dálítið gaman að fá hv. þm. Birgi Ísl. Gunnarsson hér upp í ræðustólinn og útskýra hvers vegna hann styður Pol Pot. Birgir Ísl. Gunnarsson og Eiður Guðnason eru meðal stuðningsmanna Pol Pots á Alþingi Íslendinga og hafa þó fáir verið eins miklir fjöldamorðingjar gagnvart heilli þjóð á undanförnum áratugum og Pol Pot. Ég óska eftir að þessir tveir hv. þm. rökstyðji það hér, hvers vegna flokkar þeirra styðja ríkisstj. Pol Pots.

Það er einn þáttur í þessari utanríkismálaumr. sem endurspeglar mjög vel vissan grundvallarágreining. Öðrum finnst e. t. v. dálítið hjákátlegt að vera að draga þetta inn í umr:, en það er þó grundvallaratriði fyrir margar þjóðir heims hvaða afstöðu menn hafa gagnvart ríkisstj. Pol Pots. Það er jafnvel svo langt gengið að það hefur birst leiðari í Morgunblaðinu þar sem ritstjórum Morgunblaðsins leið greinilega mjög illa yfir því, að þeir voru allt í einu komnir í selskap með mönnum sem voru bandamenn Pol Pots. En af því að við erum að ræða hér utanríkismálastefnu Sjálfstfl. í stjórnarandstöðu og Alþfl. beini ég því til þessara tveggja ágætu þm. að þeir útskýri hvers vegna þeir og flokkar þeirra styðji ríkisstj. Pol Pots.

Þegar við tökum til meðferðar utanríkismál er þar auðvitað margt fleira, sem er nauðsynlegt að fjalla um, en samningur Íslendinga við Bandaríkin, herstöðvamálið og aðildina að Atlantshafsbandalaginu. Ég tel það einmitt meginkost þessarar skýrslu sem hæstv. utanrrh. hefur lagt hér fram. Ég segi það sérstaklega vegna þess að þegar ég kom fyrst á Alþingi gagnrýndi ég þá skýrslu sem þáv. utanrrh., Benedikt Gröndal, lagði fram og var ég þó stuðningsmaður þeirrar ríkisstj. á sama hátt og ég er stuðningsmaður þessarar ríkisstj. En þá gagnrýndi ég þá skýrslu, sem hæstv. þáv. utanrrh. Benedikt Gröndal lagði fram, vegna þess að hún var ómerkilegt plagg. Hún var greinilega afrakstur skrifstofumennsku, lítillar og ófrumlegrar hugsunar. Það var ekki í henni nein pólitísk sýn. Það sjónarmið setti ég fram þótt ég væri stuðningsmaður þeirrar ríkisstj. En ég vil segja það um þessa skýrslu, að í henni er hins vegar að finna gagnvart mörgum þeim mikilvægustu málum, sem þjóðir heims þurfa að glíma við á allra næstu misserum og árum og verða að glíma við ef við ætlum að búa við frið og öryggi, sæmilega heilbrigt samstarf þjóða í milli, — í þessari skýrslu er að finna ákveðna pólitíska sýn gagnvart samskiptum norðurríkjanna, hinna ríku ríkja, og fátæku ríkjanna, gagnvart afvopnunarviðræðunum og ýmsum af þeim málum sem talin eru grundvallarmál í utanríkismálaumræðum á Vesturlöndum. Ég er sammála þeirri pólitísku sýn sem þarna kemur fram.

Ég veit að ég þarf ekki að rekja það hér úr þessum ræðustól, það vita það allir, að við hæstv. utanrrh. erum ekki sammála um allt. Við höfum oft deilt, það er vissulega rétt, og deilum enn. En ég vil samt sem áður ekki láta hjá líða að láta það koma fram, vegna þess að ég tel málin svo stór og svo alvarleg, ekki bara fyrir okkar þjóð, heldur fyrir þjóðir veraldarinnar almennt, að um þá grundvallarhugsun, sem kemur fram í þessum tveimur stærstu málum, er ég algerlega sammála þeim grundvallarsjónarmiðum sem koma fram í skýrslu hæstv. utanrrh. Ég held að það væri mjög nauðsynlegt og mjög gagnlegt fyrir Alþingi Íslendinga, sérstaklega þessa útkjálkaþm. sem hér töluðu áðan og halda að veröldin sé Alþb. Því miður gerir veröldin það ekki. Alþb. er mjög lítill hluti af þessari veröld. En það virðist samkv. ræðum þessara tveggja síðustu þm. að þegar á að ræða utanríkismál, sem eru annað heiti yfir málefni heimsbyggðarinnar, sé Alþb. það eina sem kemst á þeirra umræðudagskrá. Ég held að það sé nauðsynlegt að Alþingi Íslendinga fái tíma til að ræða þessi mál, ræða t. d. Madridráðstefnuna, undirbúning hennar, umfjöllun mála þar, þær afstöður sem þar koma fram, fái tækifæri til að ræða þær tillögur sem hinar ýmsu þjóðir hafa þar lagt fram, fái tækifæri til að fá fram skýrslu um mismunandi viðhorf einstakra ríkja til staðsetningar kjarnorkuvopna í Evrópu, fái tækifæri til að kynnast því, hvers vegna Bandaríkin og önnur iðnríki stóðu gegn árangri í síðustu tilraun Sameinuðu þjóðanna til að fá fram einhvern viðunandi árangur í norður-suður-viðræðunni, og til að fá fram hér á Alþingi Íslendinga hver verður afstaða Íslendinga þegar næsta umferð þeirrar umræðu fer fram á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, það sem á ensku er kallað Global Round. Hver verður afstaða Íslendinga? Hver er afstaða íslensku þjóðarinnar?

Vissulega erum við fáir. Vissulega erum við ekki mikið afl í veröldinni. En við höfum þó um það fjölmörg dæmi að þjóðir heimsins fylgjast mjög náið með því, hvað hver og einn segir á alþjóðavettvangi um þessi málefni.

Hingað komu í landhelgisdeilunum í upphafi síðasta áratugs fulltrúar frá Einingarsamtökum Afríkuríkja. Það þóttu nokkuð undarlegir gestir hér á Íslandi, en þessar Afríkuþjóðir voru samt sem áður fyrstu erlendu þjóðir sem hingað sendu menn til að lýsa yfir stuðningi við málstað okkar Íslendinga í landhelgismálinu. Þessar þjóðir spyrja um stuðning okkar í þeirra landhelgisstríði, landhelgisstríði í óeiginlegri merkingu þess orðs, en er þó eins mikið lífsspursmál fyrir þessar þjóðir og landhelgisstríðið var fyrir okkur, vegna þess að meðal þessara þjóða, eins og áður hefur hér komið fram, deyja daglega hundruð og þúsundir manna úr hungri. Meðal þessara þjóða eru borgir með milljónir íbúa sem hafa ekki drykkjarvatn til nota fyrir íbúa sína. Meðal þessara þjóða eru stór landssvæði að blása upp. Orkukreppan í þessum löndum er ekki af því tagi sem við erum að ræða um hér, þar sem menn deila um hvað eigi að virkja margar stórvirkjanir á næstu árum. Orkukreppan í þessum löndum er fólgin í því, að á hverjum degi ver heimilisfólkið í hundruðum millj. heimila meginhluta af sínum degi til að safna spreki og tína upp þurran dýraskít til að hafa eldivið til að sjóða vatnið að kvöldi og byrja svo aftur næsta dag að leita að nýjum sprekum og nýjum þurrum leifum dýranna til að geta lifað vikuna af. En um leið og þeir eru að leysa orkukreppu sína á þennan hátt blæs landið upp og skógarnir eyðast þannig að í þessum heimshluta eyðist á hverju ári landssvæði sem er helmingur af stærð alls Stóra-Bretlands, vegna þess að fólkið gengur um í þúsundum millj. og safnar sprekum með þessum hætti, að eyðimörk verður á hverju ári landsvæði á stærð við Belgíu.

Við skulum gera okkur grein fyrir því, að innan 20 ára bætast við í veröldinni 2 milljarðar manna. Það er jafnmikill fjöldi og var búandi á jörðinni við upphaf aldarinnar. Á næstu 20 árum bætist jafnmikið við. Meginhluti þessa fólks verður á þeim landsvæðum og í þeim heimshlutum sem búa við þessi skilyrði sem ég var hér að lýsa. Vatn, sem við Íslendingar teljum til svo sjálfsagðra hluta að við leiðum varla hugann að því að það kunni að ganga til þurrðar, er að ganga til þurrðar fyrir þúsundir milljóna í veröldinni á næstu árum. Á næstu 20 árum mun ganga til þurrðar 1/3 af vatnsforðabúri veraldarinnar á hvert mannsbarn. Þá verða tugir landa í veröldinni sem hafa náð því að nýta hámark af öllum þeim vatnsforða sem þau eiga völ á. Það eru ekki þessi mál sem hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson og Eiður Guðnason taka til umr. hér, þótt vissulega sé að þeim vikið í skýrslu hæstv. utanrrh. og hann vitni í þau alvarlegu, en hrikalegu orð sem aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur viðhaft um þessa þróun. Það munu fara fram innan tíðar formlegar viðræður þjóða heims um þessi mál. Þá verður spurt um afstöðu Íslendinga.

Hæstv. utanrrh. hefur lagt fyrir Alþingi frv. um Þróunarsamvinnustofnun-frv. sem Benedikt Gröndal tókst ekki að ljúka í allri sinni ráðherratíð þótt hann væri sífellt að fá frestað hér á Alþingi kjöri manna í stjórn þessarar stofnunnar. Alþfl. skildi við stjórnarráðið eftir eitt og hálft ár án þess að formaður hans hefði komið því í verk að leggja þetta frv. fram. Nú er Alþingi að afgreiða frv. Ég tek undir það með hæstv. utanrrh., að það verður prófraun á raunverulegan vilja Íslendinga hvað snertir framlag okkar til friðar og farsældar í heiminum hvort við höfum kjark, þor, vilja og getu til að auka á næstu árum framlag okkar úr því hneykslanlega lágmarki sem það er í og allir flokkar hér bera sök á. Það verður prófsteinn. Ég vona að allir flokkar hafi til að bera þann skilning á því, hvert stefnir í þessum efnum í veröldinni, að við getum rétt þarna við. Ég get fullvissað menn um það, eftir viðræður sem ég hef átt við forsvarsmenn stofnana Sameinuðu þjóðanna og fulltrúa frá mörgum þessara ríkja, að menn líta á þessar tölur, menn spyrja hvar Ísland sé í þessari röð, og við erum mjög neðarlega.

Ég held að það sé nauðsynlegt, herra forseti, að Alþingi Íslendinga fái — ekki nú á þessu þingi, heldur á næsta þingi — raunverulegan tíma til að fjalla um þessi stóru mál, sem aðeins er vikið að í skýrslu hæstv. utanrrh. og þeir, sem töluðu hér fyrst á eftir ráðh. fyrir nokkrum dögum, viku að vísu aðeins að, en er greinilegt að virðast vera að falla út úr umr. eftir þær ræður sem þeir tveir þm., sem hér hafa talað í kvöld, hafa flutt. Þessi mál verðum við að ræða. Við verðum að ræða þau. Við getum ekki látið það spyrjast að á Alþingi Íslendinga séu hvorki afvopnunarmálin né samskipti Norðurs og Suðurs tekin til alvarlegrar umræðu.

Það er vissulega rétt, sem hér hefur komið fram í umr., að við Íslendingar erum þjóð friðarins. Við höfum ekki haft her í okkar landi og við höfum verið frábitnir því að afla okkur þekkingar á þeim efnum, hvað þá að þjálfa fólk til þeirra verka að drepa aðra menn. Það er hins vegar nauðsynlegt að menn fylgist með því sem er að gerast á þessum sviðum í veröldinni. Ég verð að segja það, með allri virðingu fyrir þeim NATO-flokkanna sem hafa talað í þessum umr., bæði fyrrv. forsrh. Geir Hallgrímssyni, fyrrv. utanrrh. Benedikt Gröndal og þeim tveimur ágætu þm. sem hér hafa talað í kvöld, að það er merkilegt að allir þessir menn skuli komast í gegnum þessar umr. án þess að minnast einu orði á þá nýju stöðu sem verið hefur að koma upp í hervæðingarmálum Evrópu og kjarnorkuvopnakerfinu í Evrópu. Hafa þessir menn ekki heyrt forsetaúrskurð nr. 59, sem Carter Bandaríkjaforseti gaf út? Vita menn ekki hvað þessi úrskurður þýðir? Vita menn ekki hvað þessi úrskurður þýðir? Vita menn ekki hvers konar þáttaskil hann mótar í hernaðarstefnu Bandaríkjanna? Hafa þessir menn ekki heyrt um andstöðuna við staðsetningu Pershing-eldflauganna? Vita menn ekki hvers vegna sú andstaða er til komin? Hafa þessir menn ekki heyrt um að fyrir nokkrum vikum kom saman í Þýskalandi yfir 200 manna fundur þar sem voru saman komnir tugir hernaðarsérfræðinga, fyrrv. herforingjar NATO og annarra ríkja, stjórnmálamenn og aðrir? Meginniðurstaða allra þessara manna,—frá Bandaríkjunum komu yfir 60 fulltrúar, sérfræðingar, herforingjar og aðrir sem sóttu þessa ráðstefnu, sem haldin var í Gröningen, og annað eins frá öðrum NATO-ríkjum, — meginniðurstaða þessarar ráðstefnu var sú, að nauðsynlegt væri fyrir Evrópu að segja nei við þeirri grundvallarhernaðarstefnu sem bandaríska stjórnin hefur verið að taka upp á undanförnum misserum og árum. Þessi stefna felur í sér að Bandaríkin eru að búa sig í það að geta háð takmarkað kjarnorkustríð í Evrópu, eða m. ö. o.: að geta háð hér á vígvelli Evrópu stríð sem líkt og síðari heimsstyrjöldin væri fyrst og fremst á kostnað Evrópubúa, en væri ólík síðari heimsstyrjöldinni hvað það snertir að það yrði kjarnorkustríð.

Forsetaúrskurður nr. 59 varð opinbert stefnuskrármál Bandaríkjastjórnar þegar Carter ákvað það og spurði ekki hinn nýja utanrrh. sinn, Muskie, að því. Það lá við að Muskie segði af sér þegar hann frétti að Carter hefði gefið út þennan forsetaúrskurð að utanrrh. forspurðum. Þessi úrskurður felur í sér viðurkenningu á því, að Bandaríkjamenn ættu að miða hernaðaruppbyggingu sína við takmarkað kjarnorkustríð, þ. e. að víkja frá því sem hv. þm. Geir Hallgrímsson hefur löngum kallað hér ógnarjafnvægið og hælt mjög hér í ræðum og talið hornsteininn í utanríkisstefnu Íslendinga sem og annarra NATO-ríkja. Bandaríkjamenn hafa nú formlega ákveðið að víkja frá þessum hornsteini. En það er ekki víst að hv. þm. Geir Hallgrímsson eða Birgir Ísleifur hafi heyrt um það, eða þá þeir vilja draga fjöður yfir þá staðreynd, að í stað þess að miða hernaðaruppbygginguna nú við gagnkvæma gereyðingu stórborganna hvor hjá öðrum, eins og uppbygging kjarnorkueldflauganna hefur verið miðuð við hingað til, á að miða hernaðaruppbygginguna við að geta bundið kjarnorkuátökin við mjög afmörkuð svæði fjarri ströndum þess stórveldis sem kjarnorkustríðið heyr. Ég spyr þessa hv. þm.: Hvar hafa þessir menn verið? Fylgjast þeir ekki með umr.? A. m. k. eru alþjóðleg tengsl Alþfl. á Íslandi nægileg til þess að Alþfl.- menn ættu að átta sig á því, hvaða straumar eru í jafnaðarmannaflokknum á Norðurlöndum, hvaða straumar eru í jafnaðarmannaflokknum í Þýskalandi og hvaða straumar eru í jafnaðarmannaflokknum í Frakklandi? Hverjir eru þessir straumar? Þeir fela það í sér, að með hverri viku bætast nýir hópar og nýir einstaklingar í þá sveit manna sem vill hafna fyrir hönd Evrópu þeirri hernaðarstefnu sem Bandaríkjamenn hafa fylgt. Það voru ekki Bandaríkin sem vildu gera samninga um afvopnun að kröfu fyrir staðsetningu Pershing-eldflauganna í Evrópu. En hæstv. utanrrh. er nýkominn af utanrrh.-fundi NATO þar sem voru utanrrh. nokkurra Evrópu-ríkjanna, m. a. úr þessum jafnaðarmannaflokkum, sem knúðir af gagnrýninni og umræðunum í eigin flokkum reyrðu það við þá ályktun, sem Haig kom með frá Washington, að viðræður um afvopnun væru óhjákvæmilegur þáttur í því sem afstaðan þyrfti að byggjast á.

Hv. þm. Eiður Guðnason sagði að við hefðum haldið því fram í Alþb., að herstöðin á Íslandi hefði nýlega breytt um eðli, og það væri það eina sem við hefðum sagt um þetta mál. Ég vil gjarnan — til að upplýsa hv. þm., enda óskaði hann sérstaklega eftir því — gera honum skýra grein fyrir því, hvað við höfum sagt um þetta efni. Við höfum sagt að fyrir 15–20 árum hafi hafist hér sú breyting sem hv. þm. Eiður Guðnason vissulega vék að í sinni ræðu, að Bandaríkjamenn tóku að breyta herstöðinni, breyta þeirri starfsemi, sem hún hafði fyrst og fremst miðast við frá styrjaldarlokum, og tengja hana kafbátahernaðinum á Norður-Atlantshafi. Hvað var þessi kafbátahernaður á Norður-Atlantshafi? Jú, hann var einn meginþátturinn í uppbyggingu kjarnorkuvopnakerfisins á Norður-Atlantshafi. Þeir kaplar, sem hv. þm. Eiður Guðnason gerði að umræðuefni áðan og vissulega eru til, eru þó ekki meira til en svo að Bandaríkjastjórn afneitar þeim. Hv. þm. Eiður Guðnason hefur aldrei fengist til að viðurkenna formlega að SOSUS-kerfið væri hér á Íslandi. Svo kemur hv. þm. Eiður Guðnason og segir: Þetta vita allir. Formlega séð neitar Bandaríkjastjórn þó að gefa nokkrar upplýsingar um hvort hér sé SOSUS-kerfi eða ekki, en SOSUS-kerfið er heitið yfir það kafbátahlustunarkerfi sem byrjað var að leggja frá ströndum Íslands upp úr 1960. Ég er nokkurn veginn viss um — að vísu er það bara trúa mín, ég hef engar heimildir fyrir því — en ég er nokkurn veginn viss um að sá utanrrh. Alþfl., sem þá fór með völd, hefur ekki fengið miklar skýringar á því, að með því að leggja þessa kapla væri verið að stíga fyrsta skrefið í að tengja Ísland við kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjanna.

Kjarnorkuvopnakerfi er sett saman úr mjög mörgum þáttum og sprengjan sjálf er bara lítill hluti þess kerfis. Í raun og veru er eðli þess á þann veg, að án ýmissa tæknilegra stuðningsþátta og hliðarþátta í því kerfi væri óhugsandi að beita sprengjunni með þeim hætti sem menn vilja gera, þeir sem árangri vilja ná í stríðsátökum milli þjóða. Það er einmitt þessi hliðartækni, þessi þjónusta við kjarnorkuvopnakerfið, sem er meginforsenda þess, að það geti starfað, ef má nota svo almennt orð yfir slíkan óhugnað. Þegar SOSUS-kerfið var hér lagt upp úr 1960 voru stigin fyrstu skref í að tengja Ísland inn í það sem á ensku er kallað anti-submarine warfare á NorðurAtlantshafi og að meginhluta er byggt upp á gagnkvæmu kjarnorkukafbátakerfi stórveldanna, bæði Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. Það er vissulega rétt hjá hv. þm. Eiði Guðnasyni, að lengi vel var þetta meginþáttur þess sem NATO-sinnar kalla framlag Íslands til þessa kerfis, en á síðari árum hafa hins vegar verið að bætast inn í þetta kerfi fleiri hlekkir. Á lokaári valdaferils síns samþykkti ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar tvo slíka nýja hlekki, — hlekki sem eru þess eðlis að þeir stíga enn frekari skref, mun stærri skref í þá átt að gera Ísland að lykilþætti í þessu kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjanna á Norður-Atlantshafi. Er ég þá ekki að ræða um sprengjuna sjálfa, heldur kjarnorkuvopnakerfið sem samfellt vígbúnaðarnet.

Hver voru þessi tvö skref sem ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar samþykkti?

Fyrra skrefið var að samþykkja endurnýjun á gervihnattafjarskiptabúnaði Bandaríkjanna hér á Íslandi og fullkomna enn frekar þau fjarskiptatengsl sem herstöðin hér getur haft við vígbúnaðarkerfi Bandaríkjanna um veröldina alla. (EG: Sem við höfum notið góðs af þegar sæsímastrengirnir hafa slitnað.) Það getur vel verið að hv. þm. Eiður Guðnason geti huggað sig við að hann geti notið góðs um stundarsakir af þeim búnaði sem ætlað er í framtíðinni að auðvelda að drepa fólk. (EG: Ekki bara ég, Alþb. líka.) Alþb. hefur aldrei hælt sér af því. En stutt er nú orðið í þá óhugnanlegu afstöðu, að jafnvel ef við getum haft eitthvað gott af þeim búnaði, sem ætlað er að drepa annað fólk, sé hann af hinu góða.

Hinn þátturinn í þeirri ákvörðun, sem ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar tók, var að samþykkja staðsetningu AWACS-flugvélanna hér á Íslandi. AWACS-flugvélarnar, hvað er það? Undarleg skammstöfun sem hljómar illa á íslenskri tungu. Furðuverk sem íslenskir stjórnmálamenn hafa sjálfsagt, þegar þeir samþykktu staðsetningu þeirra hér, ekki fengið miklar upplýsingar um hvað væri annað en að hér væru á ferðinni einhvers konar radarflugvélar sem væru nokkru fullkomnari en þær flugvélar, sem hefðu verið hér áður, eða þær radarstöðvar, sem staðsettar væru á jörðinni. Hv. þm. Benedikt Gröndal flutti hér í sinni ræðu skýringar á þessu. Vissulega er rétt að þetta er einn af þeim þáttum sem felast í framlagi AWACS-flugvélanna til hernaðarkerfisins. En AWACS-flugvélarnar eru meira. Ef hv. þm. Geir Hallgrímsson hefði ekki tekið aftur fyrir nokkrum vikum þann úrskurð sem ég hélt að hann hefði látið hér fram þegar hann aflétti því banni af utanrmn. að ræða för okkar á Keflavíkurflugvöll, þá væri gaman að skýra hér frá því þegar einn af hinum íslensku þm. fór að spyrja út í AWACS-flugvélarnar. Það ætla ég ekki að gera hér vegna þess að formaður n. tók aftur sinn fyrri úrskurð og lagði bann á það sem sagt var.

Við þurfum þess ekki vegna þess að svo vill til að ýmsir sérfræðingar á þessu sviði, sem starfa við viðurkenndar alþjóðlegar rannsóknarstofnanir og hafa haft aðgang að hernaðarskjölum Atlantshafsbandalagsins og herja þess og eru innanbúðar í þeirri umræðu sem fer fram um hermálefni í veröldinni, hafa smátt og smátt á síðasta ári verið að létta hulunni af því, hvað í AWACS-vélunum felst. Þegar AWACS-flugvélarnar voru fyrst seldar til Saudi-Arabíu fyrir um það bil ári sagði hið virta fréttablað Financial Times að nánast lítið sem ekkert væri vitað um hvers konar verkefnum AWACS-vélarnar gætu sinnt. Hernaðarfréttaritari Financial Times, sem er, eins og ég sagði áðan, meðal virtustu fréttablaða á Vesturlöndum, birti á forsíðu þessa blaðs, þegar AWACS-flugvélarnar voru sendar til Saudi-Arabíu, þá niðurstöðu, að lítið sem ekkert væri vitað um þau verkefni sem þessum vélum væri ætlað að sinna. En síðan hefur smátt og smátt verið svipt hulunni af. Það, sem hefur verið að koma í ljós að dómi mjög margra sem um þetta hafa fjallað, er að AWACS-flugvélarnar eru í senn fullkomnasta upplýsingatæki, sem flugfloti Bandaríkjanna hefur yfir að ráða, og fullkomnasta stjórntæki í flugárás, sem bandaríski flugherinn hefur yfir að ráða. Bandaríski flugherinn hefur ekki yfir að ráða háþróaðra stjórntæki til árásar. (EG: Eða varna.) Til árásar. Það er vissulega rétt, hv. þm. Eiður Guðnason, að ýmis af þeim tækjum, sem notuð eru til árásar og notuð eru til varnar, geta verið hin sömu. Hins vegar er það þó ljóst og er einn af þeim mjög mikilvægu þáttum sem setja svip sinn á kjarnorkuvopnaumræður á undanförnum árum, og ég hélt að hv. þm. vissi það, að gerður er mikill greinarmunur á því, hvort tækin eru þeirrar tegundar að þau hafa það sem á ensku er kallað „first strike capability“, geta hafið kjarnorkuárás á annað ríki, eða hvort þeim er eingöngu ætlað að vera til varnar ef einhver annar aðili hefur slíka árás. Öll meginumræða um kjarnorkuvopnauppbygginguna í veröldinni hefur einmitt byggst á þessum mun. Og niðurstöður fræðimanna — ég get nefnt einn, Owen Wilks, hann starfar við Friðarrannsóknarstofnunina í Stokkhólmi og hefur nýlega birt um þetta grein þar sem hann vitnar í ýmis ummæli bandarískra herforingja um þessi efni og þátt AWACS-flugvélanna í heræfingum Atlantshafsbandalagsins, — þær eru í eðli sínu staðfesting á því, að Bandaríkin ætla sér að hafa þann möguleika að geta hafið kjarnorkuvopnastríð í norðurhluta Evrópu.

Ég ætla ekki að taka einhverja endanlega afstöðu með því hvort þetta sé fullkomlega rétt. Ég er ekki hernaðarsérfræðingur. En ég les erlend blöð. Ég les erlend fræðitímarit. Ég les ýmislegt af þeim efniviði sem þeir sérfræðingar á Vesturlöndum, sem um þessi mál fjalla, og færustu blaðamenn, sem starfa við virtustu fréttablöð á Vesturlöndum, láta frá sér fara um þessi efni. Sú niðurstaða, sem ég get lesið út úr þeirri umræðu á síðustu mánuðum, er fyrst og fremst sú, að staðsetning AWACS-vélanna felur í sér formlega viðurkenningu á því, að á því landsvæði ætlar staðsetningaraðilinn, þ. e. Bandaríkin, sér að hafa opinn þann möguleika að geta hafið árás.

Stuðningsmenn Atlantshafsbandalagsins hafa ávallt sagt það hér, og það var eitt af þeim skilyrðum sem Íslendingar settu þegar herinn kom hingað á sínum tíma, að hér ætti að vera varnarstöð, en ekki árásarstöð, hér ætti eingöngu að vera aðstaða til varnar, en ekki til árásar. Ég held að hvað svo sem líður ágreiningi okkar um samninginn við Bandaríkin sé spurningin um AWACS-flugvélarnar á borðum okkar allra. Það væri ábyrgðarleysi af hálfu stuðningsmanna Atlantshafsbandalagsins hér á Íslandi að kynna sér ekki það sem ýmsir færustu sérfræðingar og blaðamenn um þessi efni eru að segja. Er það virkilega rétt að staðsetning þessara flugvéla hér fell það í sér, að Bandaríkin séu á þann hátt að reyna að útfæra forsetaúrskurð nr. 59 í þessum hluta Norður-Evrópu? Owen Wilks gekk svo langt að líkja þeim svæðum, sem AWACS-flugvélar væru staðsettar á, við mestu hættusvæði í styrjaldarátökum í Evrópu, og hann bar saman Murntansk annars vegar og heimavöll AWACS-flugvélanna hins vegar. Ég tek ekki afstöðu til þeirra orða. En það eru stór orð. Það er mikil yfirlýsing. Það er a. m. k. nokkuð athyglisvert að Bandaríkjamenn hafa flutt AWACS-flugvélarnar til þeirra svæða þar sem þeir hafa talið styrjaldarátökin og hættuna vera mesta.

Menn tala mikið um sovéska flotann og oft af mikilli vanþekkingu. Ég ætla ekki að gera lítið úr honum hér. En ég ætla að nefna nokkrar staðreyndir sem er nauðsynlegt fyrir menn að hafa í huga þegar menn eru að endurtaka sífelldar ógnarsögur af sovéska flotanum. Vita menn hvað stór hluti sovéska flotans, kjarnorkukafbátaflota Sovétríkjanna, er í notkun á hverjum tíma? Vita menn það? Hvað halda menn að það sé? 70% eins og hjá Bandaríkjunum? Það eru 70% af kjarnorkukafbátaflota Bandaríkjanna á Norður-Atlantshafi í notkun á hverjum tíma. En hvað halda menn að það sé stór hluti af flota Sovétríkjanna? (FrS: Þú veist það betur en við.) Ja, ég veit það vegna þess að ég les erlend blöð. Ég les m. a. Scientific American, sem er eitt virtasta vísindarit sem er gefið út fyrir almenning í Bandaríkjunum. (Gripið fram í: Það er varhugavert að trúa öllu sem sett er á prent.) Það er vissulega alveg rétt, það er varhugavert, en ég nefni það hér vegna þess að það er greinilegt að þm. hafa ekki heyrt þetta. — En samkv. grein í Scientific American er talið að aðeins um 11% af kjarnorkukafbátaflota Sovétríkjanna séu í notkun á hverjum tíma. Sumir aðrir fræðimenn hafa nefnt töluna 15%. Og hver er ástæðan? Ástæðan er í raun og veru ósköp einföld. Það er ekkert dularfullt við þessa tölu. Ástæðan er einfaldlega sú, að Sovétríkin hafa ekki áhafnir. Þau hafa ekki nægilega margt þjálfað fólk. Þau hafa ekki áhafnir á þá kjarnorkukafbáta, sem þau eiga, til að geta haldið þeim úti. Þess vegna er það almennt viðurkennd staðreynd af þeim sérfræðingum, sem um þessi mál fjalla, að á hverjum tíma séu einn eða tveir sovéskir kafbátar af þessu tagi í umferð hér í kring. (Gripið fram í: Mikil er trú þín, kona.) Ég er ekkert að tala um trú í þessu. Ég sagði að það væri álit þeirra manna sem gerst þekkja. Ef hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson getur nefnt einhvern sérfræðing og leitt hann hér fram sem telur að það séu fleiri að jafnaði í umferð á svæðinu hér í kring þá vil ég gjarnan fá að vita það vegna þess að ég vil frekar hafa það sem sannara reynist í þessum umr. Ég tel að Alþb. sé eini flokkurinn hér á Íslandi sem vilji skoða þessa hluti af raunsæi, en ekki hv. þm. eins og Birgir Ísl. Gunnarsson, sem hafa verið aldir upp í Heimdalli í trú á NATO, trú á Atlantshafsbandalagíð, trú á Bandaríkin. Það var sú trú sem gerði það að verkum að hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson trúði því ekki í áraraðir að Bandaríkjamenn væru að gera neitt rangt í Víetnam. Það er sú trú sem gerir það að verkum að hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson minnist ekki á El Salvador í sínum ræðum og ekki heldur hv. þm. Eiður Guðnason. Hvers vegna minnast hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson eða Geir Hallgrímsson ekki á El Salvador þótt hæstv. utanrrh. hafi vissulega gert það í sinni skýrslu og gert það réttilega og gert það vel? Þá forðast talsmenn Sjálfstfl. að nefna El Salvador vegna þess að þeir standa með auðstéttinni þar sem er að drepa í hverjum mánuði hundruð og þúsundir manna til að verja rétt sinn til áframhaldandi auðs. Það eru fáeinar fjölskyldur í El Salvador sem í krafti morða og hervalds eru að halda auðnum frá hinu fátæka fólki sem þar er. (BÍG: Afganistan hefur ekki verið nefnt á nafn í heilan klukkutíma hjá hv. þm. í þessari ræðu hans.) Það er langt síðan Alþb. tók afstöðu til Afganistans og Alþb. hefur líka tekið afstöðu til El Salvadors. Við erum ekkert feimnir við að tala um þau mál. Ég skal vissulega ræða Afganistan við þm. eins lengi og hann vill. Ég er hins vegar að nefna hér nokkur dæmi um að afstaða Sjálfstfl. í stjórnarandstöðu, afstaða Morgunblaðsins í utanríkismálum á undanförnum áratugum, hefur ávallt tekið mið af hagsmunum Bandaríkjamanna á hverjum tíma.

Morgunblaðið studdi stríðið í Víetnam. Birgir Ísl. Gunnarsson studdi stríðið í Víetnam, en það er feimnismál núna. Það væri gaman að lesa leiðarann úr Morgunblaðinu um stuðninginn við stríðið í Víetnam. Staðreyndin er sú, að þessir ágætu þm. og þeir flokkar, sem þeir eru fulltrúar fyrir, hafa allt of mikið lokað augunum og trúað blint á það sem einhverjir útlendingar segja þeim. Það var mjög skemmtilegt að heyra hv. þm. Birgi Ísl. Gunnarsson vitna hér í opinberan talsmann norska herforingjaskólans. Afstaða Norðmanna til herstöðvarinnar á Íslandi og skipulagsmála í hermálaefnum á Norður-Atlantshafi er nefnilega nokkuð sem ég held að við Íslendingar ættum að fara að ræða. Norðmenn hafa haft það sem grundvallarþátt í sinni utanríkisstefnu að leyfa aldrei erlendar herstöðvar í sínu landi. (BÍG: Þeir hafa öflugan her sjálfir.) Þeir hafa ekki öflugan her sjálfir. Það veit hv. þm. jafnvel og ég og það vita Norðmenn líka jafnvel og allir aðrir. Ef til árásar kæmi megnaði norski herinn ekki neitt, ég tala nú ekki um danska herinn. Glistrup sagði réttilega að það væri nóg að hafa bara símaklefa, hann gæti gegnt jafnmiklu hlutverki og danski herinn. Auðvitað eru ýmsar aðrar þjóðir í heiminum sem hafa einhvers konar málamyndaher, en það vita allir að ef á þær væri ráðist af stórveldunum megnaði þessi her ekki neitt. Her Noregs megnar á engan hátt til varnar ef Sovétríkin færu að ráðast á Noreg. Hvers konar bull er það að halda að her Noregs geti þá stundað einhverjar varnir. (FrS: Hvers vegna hafa þeir her?) Þeir hafa her einfaldlega vegna þess, hv. þm. Friðrik Sophusson, að ýmsar þjóðir í veröldinni hafa átt í ýmsum átökum og stríði við ýmsar aðrar þjóðir og hafa talið nauðsynlegt til að byggja upp sitt kerfi að hafa slíka menn að störfum. Áður fyrr var tæknibúnaður styrjalda með þeim hætti, að það skipti máli í vörnum að hafa her af því tagi sem Norðmenn hafa nú, en núna er tæknibúnaður styrjaldarátakanna slíkur að það skiptir einfaldlega ekki máli.

Við skulum ekki draga athyglina frá því, hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson, að Norðmenn eru herstöðvaandstæðingar í Noregi, en þeir eru herstöðvasinnar fyrir Ísland. Það hefur ávallt verið grundvallarþátturinn í skipulagi Noregs í þessum efnum að Íslendingar skyldu taka að sér að hafa erlenda herstöð í sínu landi af því að Norðmenn ætluðu ekki að gera það. Það væri nauðsynlegt fyrir varnir Noregs að bandarískur her væri á Íslandi þótt Norðmenn mundu sjálfir aldrei samþykkja það og það sé enginn stjórnmálamaður í Noregi sem dirfist að leggja það til við norsku þjóðina að bandarískir hermenn séu staðsettir í Noregi. Þeir hafa hins vegar reynt hvað eftir annað, og Íslandssagan er full af tilraunum norskra stjórnmálamanna frá Halvard Lange til Knuts Frydenlund, að stuðla að því, að herstöðin sé áfram á Íslandi, og koma í veg fyrir að einhver sú atburðarás kynni að þróast sem gerði það að verkum að her færi frá Íslandi. Það væri kannske fróðlegt að hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson kynnti sér hvers vegna norska þjóðin hefur sameinast um þá stefnu að hafa ekki erlendan her í sínu landi.

Það eru fjölmörg dæmi um að norskir herforingjar og norskir stjórnmálamenn hafa gagnvart íslenskum stjórnmálamönnum og ýmsum öðrum áhugamönnum um þessi efni hér á landi beitt margvíslegum áróðri sem er í þágu stjórmálahagsmuna Noregs. Ég hef sagt það áður hér að þetta er eitt af þeim feimnismálum í norrænum samskiptum sem ekki má ræða. Það er jafnvel svo langt gengið að ýmsir sósíalistar í Noregi og Svíþjóð, ýmsir innan norska verkamannaflokksins og sænska krataflokksins, bræðraflokka hv. þm. Eiðs Guðnasonar og Benedikts Gröndals, ýmsir áhrifamenn í þessum flokkum gangast nú fyrir undirskriftasöfnun um að Svíþjóð, Finnland, Noregur og Danmörk verði lýst kjarnorkuvopnalaust svæði. En forsvarsmenn þessarar undirskriftasöfnunar lýsa því skýrt yfir, að það sé ekki hægt að hafa Ísland með í þessari yfirlýsingu um kjarnorkuvopnalaust svæði vegna þess að Ísland sé á „strategísku“ yfirráðasvæði Bandaríkjanna. Það væri fróðlegt að hv. þm. Eiður Guðnason spyrðist fyrir um það á næsta fundi norrænna krata, hvaða rök séu fyrir því, að norrænir kratar vilji ekki telja Ísland með í undirskriftasöfnun um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum vegna þess að það tilheyri hernaðarlegu áhrifasvæði Bandaríkjanna.

Eitt af því, sem var jákvætt í þeirri stjórnarmyndun sem hér fór fram eftir kosningar 1978, var að sett var á laggirnar sérstök nefnd, svokölluð öryggismálanefnd, sem fékk í stjórnarsáttmála þeirrar ríkisstj. sérstakan kafla. Ég fagna því sérstaklega að hæstv. utanrrh. skyldi í sinni ræðu minnast á störf þessarar nefndar. Ég skil vel að hann telji nauðsynlegt að hún fari að láta frá sér fara ýmsar skýrslur og upplýsingar. Þessi nefnd tók til starfa á fyrstu mánuðum ársins 1979. Hún tók ekki til starfa fyrr en þá vegna þess að Sjálfstfl. ætlaði sér að koma í veg fyrir að hún tæki til starfa. Sjálfstfl. dró mánuðum saman að skipa fulltrúa í þessa nefnd vegna þess að hann ætlaði sér að koma í veg fyrir að Íslendingar færu að afla sjálfstætt upplýsinga um þessi efni. En þegar nefndin tók til starfa í raun fyrstu mánuði ársins 1979 kom það einfaldlega í ljós, að á landi hér, hvort heldur var í utanrrn., í Landsbókasafninu eða hjá öðrum opinberum aðilum, voru ekki til þau einföldustu grundvallarrit sem nauðsynleg eru til þess að mynda sér sjálfstæðar skoðanir á þessum efnum. Það fór nærri því heilt ár af störfum þessarar nefndar einfaldlega í að safna smátt og smátt inn í landið þeim gögnum, þeim tímaritum, þeim ritgerðum, þeim ráðstefnuerindum, þeim bókum og öðrum þeim vitnisburði sem nauðsynlegur er til þess að Íslendingar geti tekið þessi mál til sjálfstæðrar greiningar. Þegar því starfi var lokið á fyrri hluta árs 1980 tók starfsmaður nefndarinnar til við að vinna úr þessum gögnum. Það er nú tilbúin á vegum nefndarinnar skýrsla, sem er komin á lokastig, um mjög veigamikla þætti þessa máls og reyndar tvær skýrslur aðrar sem snerta þessi umræðuefni einnig. Þessar þrjár skýrslur verða væntanlega gefnar út síðar á þessu ári. Þá gefst vonandi tækifæri til að fá þessa ágætu herramenn til að líta raunsæjum augum á veröldina, til að átta sig á að Bandaríkjamenn hafa hér smátt og smátt, allt frá því að Alþfl. fór með utanríkismál hér í Viðreisnarstjórninni upp úr 1960 og þar til ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar samþykkti tvo viðbótarþætti í þetta kerfi, verið að flétta Ísland inn í kjarnorkukerfi sitt á Norður-Atlantshafi. Um það er ekki hægt að deila lengur. Ég skora á þm. hér og spyr hvort nokkur þeirra treysti sér til að koma upp í ræðustólinn og mótmæla því með rökum, að Sosus-kerfið, Orion-flugvélarnar, Phantom-þoturnar, tengslin við gervihnattakerfi Atlantshafsbandalagsins og staðsetning AWACS-flugvélanna, allt þetta til samans, tengi Ísland við kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjanna á Norður-Atlantshafshafi, það sem á ensku er kallað anti-submarine warfare, og geri herstöðina hér að einhverjum mesti lykilþætti á því kerfi hér á Norður-Atlantshafi. Ég er ekki að tala um hvort sprengjan sjálf sé hér staðsett eða ekki. Hún er lítill þáttur í þessu kerfi. En eðli herstöðvarinnar er þetta. Og ég spyr þessa sömu þm.: Hvenær hefur Alþingi Íslendinga verið spurt um hvort það vildi hafa hér herstöð sem væri tengd inn í kjarnorkuvopnakerfi stórveldisins? Hvenær hefur Sjálfstfl. svarað því? Hvenær hefur Alþfl. svarað því? Aldrei, aldrei. Þeir hafa sameinast um það með lágkúrulegum ræðum, útúrsnúningum út um allar trissur, eins og komu fram í ræðum þessara tveggja þm. hér, að forðast að þessi mál væru tekin til slíkrar umr. eða þá, sem ég hallast meira að og segi það í fullri hreinskilni, að þeir hafi einfaldlega ekki vitað betur.

Ég held t. d. að Geir Hallgrímsson hafi ekki vitað um hernaðarlegt eðli AWACS-flugvélanna þegar hann samþykkti staðsetningu þeirra hér. Ég hef ekki trú á því. Ef hann hefur vitað það er ábyrgð hans mikil. Þá hefur hann brugðist þeirri skyldu sinni við íslenska þjóð að gera sem forsrh, ríkisins íslenskri þjóð grein fyrir því, hvað væri fólgið í þeirri ákvörðun. Það væri fróðlegt að vita hvort forsrh. Geir Hallgrímsson hefði gert samning — eða utanrrh. í þeirri ríkisstj. — við Bandaríkjastjórn um staðsetningu AWACS-flugvélanna eða ekki, hvort þetta er eingöngu munnlegt leyfi eða hvernig það er á annan hátt til komið.

Ég endurtek áskorun mína og spyr hvort hér sé nokkur þm. sem leggur í þá umr. að hrekja að sú tæknilega hernaðaraðstaða, sem er á landinu, tengi umsvif Bandaríkjamanna hér við kjarnorkuvopnakerfi þeirra á Norður-Atlantshafi.

Það er rétt, sem hér hefur komið fram, að deilt hefur verið um hvort kjarnorkusprengjan sjálf væri staðsett hér á Íslandi. Ég vil endurtaka hér það sem ég hef áður sagt úr þessum stól, að ég hef aldrei tekið afstöðu með því eða á móti hvort kjarnorkusprengjan sjálf væri hér staðsett. Ég hef aldrei fullyrt neitt um það. Það eina, sem ég hef sagt, er að vekja athygli manna á því, að viðurkenndir alþjóðlegir sérfræðingar í þessum efnum hafa fullyrt að svo sé. Aðrir hafa að vísu fullyrt að svo sé ekki. Ég hef einfaldleg bent á að það liggur fyrir vitnisburður. Sérfræðingur, sem um áraraðir vann á vegum bandarískra rannsóknarstofnana að því að kortleggja kjarnorkusprengjukerfi Bandaríkjanna, heldur því fram, að hann hafi fullvissu fyrir því að svo sé, a. m. k. fram til ársins 1973. Hann segir ekki neitt um það sem gerðist þar á eftir vegna þess að hann telur sig ekki hafa neina vitneskju um það, en fram að árinu 1973 fullyrðir hann að svo sé. Við getum nefnt Centre for Defence Information, sem var hér til umr. s. s. sumar, og forsvarsmann þeirrar stofnunar, La Roche hershöfðingja. Það voru ýmsir hér á landi sem fannst ekki mikið til þess koma þó að einhver La Roche væri að segja eitthvað úti í heimi, jafnvel þótt þetta væri fyrrverandi flotaforingi NATO og hefði gegnt trúnaðarstörfum í Miðjarðarhafsflota Bandaríkjanna. En ég vek athygli hv. þm. á því, að til þeirrar ráðstefnu evrópskra og bandarískra sérfræðinga um hernaðaruppbyggingu Evrópu, sem vakið hefur mesta athygli á undanförnum misserum, var boðað af þessum sama hershöfðingja. Hann er a. m. k. það mikið nafn í veröldinni að hann getur fengið til að koma saman á annað hundrað fremstu hernaðarsérfræðinga Atlantshafsbandalagsríkjanna og annarra ríkja í Evrópu, fyrrv. herforingja NATO, núv. starfsmenn bandalagsins, heimsfræga prófessora við evrópska og bandaríska háskóla. Hann var sá sem kallaði saman ráðstefnuna í Gröningen. Slíkt er nafn hans í augum þessara manna að þeir samþykkja allir að taka sér ferð 'a hendur og setjast með honum og öðrum að þessari umræðu. Og blöð eins og Observer, Sunday Times og Dagens Nyheter, svo að ég nefni bara nokkur af þekktari veraldarblöðum á Vesturlöndum, töldu það öll nauðsynlegt að segja ítarlegar frá þessum fundi sem La Roche nefndi til og Centre for Defence Information stóð fyrir. Það er þess vegna engin minni háttar stofnun eða einhver óþekktur karl, einhver ómerkingur, sem hefur haldið þessu fram. Ég er ekki að fullyrða hér að hann hafi rétt fyrir sér, ég tek það aftur skýrt fram, en ég er einfaldlega að benda mönnum á að það er ekki einfaldlega hægt að veifa burtu með hendinni orðum manna sem hafa þessa stöðu í því alþjóðlega samfélagi sem fæst við þessi mál frá degi til dags árið inn og árið út.

Centre for Defenee Information hefur óskað sérstaklega eftir því að fá frá utanrrn. í Bandaríkjunum öll þau skjöl sem snerta kjarnorkuvopn og Ísland. Bandaríkjamenn, sem eru oft og tíðum miklu upplýstari þjóð eða a. m. k. reiðubúnari til að veita upplýsingar en við Íslendingar, settu fyrir nokkrum árum löggjöf sem er kölluð Freedom Information Act, — löggjöf sem er ætlað að gefa mönnum rétt til að knýja á um upplýsingar nema þær sem eru sérstaklega í mótsögn við grundvallarhagsmuni ríkisins. Samkv. þessum lögum hefur Centre for Defence Information fyrir nokkru óskað eftir því að fá á boðið öll þau gögn bandaríska varnarmálaráðuneytisins sem snerta efnið kjarnorkuvopn og Ísland. Ég ætla ekki að fullyrða neitt um hvað er í þessum gögnum.

Það var fullyrt hér af ýmsum mönnum um áraraðir að það hefði verið gert samkomulag milli ríkisstjórnar Íslands og Bandaríkjanna um staðsetningu kjarnorkuvopna á Íslandi. Það kom hins vegar í ljós á s. l. sumri, að ekkert slíkt samkomulag hafði nokkurn tíma verið gert. Þau orð, sem fyrrv. utanríkisráðherrar höfðu látið falla um þau efni, voru röng. Það var misskilningur annaðhvort þeirra eða þá vísvitandi rangtúlkun á veruleikanum að gefa íslensku þjóðinni til kynna, eins og Guðmundur Í. Guðmundsson gerði á sínum tíma, að það væri til eitthvert slíkt samkomulag. Þegar spurst var fyrir um tilvist slíks samkomulags á s. l. sumri kom einfaldlega í ljós að það var ekki til. Það var þess vegna m. a. sem núv. hæstv. utanrrh. gekk í það verk að fá Bandaríkin til að senda frá sér ákveðna yfirlýsingu og það var virðingarvert verk. Það er eina skjalið sem við Íslendingar höfum í höndunum um þetta alvarlega efni. Ég tel hins vegar að það skjal sé ekki nægilega tryggilega orðað, vegna þess að í því eru undanskildar ýmsar þær tegundir af kjarnorkuvopnum, sem til eru, vegna þeirra hugtaka sem þar eru notuð til að flokka þau. En ég ætla ekki að ræða það hér. Ég vil einfaldlega benda mönnum á að enn þá eru sérfræðingar við hernaðarstofnanir í Bandaríkjunum að rannsaka efnið: Kjarnorkuvopn og Ísland. Ég endurtek aftur til að fyrirbyggja misskilning: Ég hef aldrei fullyrt hvort sprengjan er hér staðsett eða hefur verið staðsett eða ekki. Ég hef einfaldlega sagt: Ég tel það vera spurningu sem hefur ekki verið svarað. Og við þá íslenska stjórnmálamenn, sem loka augunum fyrir því, að það geti verið áfram spurning, vil ég segja með fullri vinsemd og fullri virðingu fyrir þeim: Slík afstaða þjónar ekki langtímahagsmunum íslensku þjóðarinnar. Við eigum alltaf að vera haldnir efa gagnvart öllu því sem stórveldi segir í okkar garð. Saga þessa stórveldis, eins og saga annarra stórvelda, eins og saga Víetnams og saga Afganistans, sýnir að stórveldið spyr fyrst og fremst um eigin hagsmuni. Stórveldi spyr ekki um hagsmuni smáþjóðanna. Við höfum þegar á borðinu íturlegar frásagnir frá Kissinger, frá Nixon og frá fjölmörgum öðrum opinberum embættismönnum í utanríkis- og hernaðarmálakerfi Bandaríkjanna um að Bandaríkjamenn hafa talið sér þóknanlegt hvað eftir annað að gefa rangar upplýsingar um hernaðartækni sína, um aðstöðu sína, jafnvel árásir sínar. Bandaríkjamenn höfðu heilan flugflota af sprengjuflugvélum í gangi yfir Kambodíu og Víetnam án þess að nokkur vissi um það og þrættu fyrir það í bandaríska þinginu hvað eftir annað, bæði utanrrh. og forsetinn. Við höfum fjölmörg söguleg dæmi frá allra síðustu árum um að þessir ágætu herramenn veita bara þær upplýsingar sem þeim hentar. Og auðvitað gera Sovétríkin það sama. Þess vegna er nauðsynlegt hér á landi að gagnrýnin sé sífellt í gangi og menn séu sífellt að spyrja spurninga og efast. Þegar íslenskir stjórnmálamenn fara að taka blinda trú á það sem herforingjar NATO segja eða þeir, sem skipuleggja hernaðarumsvif Bandaríkjanna, segja, þá er illa komið fyrir íslenskri þjóð. Ég er ekki að segja þetta af neinni óvináttu í garð Bandaríkjanna. Það er margt í fari Bandaríkjanna sem mér líkar vel, ég ber virðingu fyrir og ég hef lært mikið af, en saga þessa ríkis á síðari árum, saga þessa ríkis jafnvel á síðustu dögum og vikum gefur okkur fyllilega tilefni til þess að efast og spyrja.

Ég tel það vera eitt af þeim mikilvægu efnum, þar sem Alþb. hefur náð árangri á undanförnum mánuðum og árum, að okkur hefur tekist fyrir okkar frumkvæði hér á Alþingi, þm. Alþb., fyrir frumkvæði Þjóðviljans og starf samtaka herstöðvaandstæðinga að knýja smátt og smátt fulltrúa NATO-flokkanna hér á Íslandi til að fara að ræða þessi mál á þessum grundvelli og til að láta af þessari einföldu barnslegu trú á þann áróðursboðskap sem Atlantshafsbandalagið og herforingjar Bandaríkjanna hafa flutt. Ég tel það mjög mikilvægt spor í átt að eðlilegri umræðu um þessi efni, að núv. utanrrh. hefur lagt fyrir utanrmn. og ríkisstj. mun ítarlegri upplýsingar um þessi efni og verið ávallt reiðubúinn til að svara þeim spurningum og leita svara við þeim efnum sem fram hafa komið í störfum þessara stofnana. Það hafa fyrirrennarar hans ekki gert. Það eru vissulega mjög mikilvæg þáttaskil til heilla fyrir íslenska þjóð þegar slík vinnubrögð eru upp tekin. Þótt okkur kunni að greina á um hvaða leiðir eigi að fara í utanríkisstefnu íslensku þjóðarinnar vona ég þó að við séum allir sammála um að ef svo væri komið fyrir íslenskri þjóð að hún væri búin að tengja land sitt inn í tortímingarkerfi stórveldis, inn í árásarkerfi stórveldis, og það gæti gerst, sem sumir sérfræðingar í mörgum löndum Evrópu og stjórnmálamenn benda á um þessar mundir, stjórnmálamenn sem styðja Atlantshafsbandalagið, að Bandaríkjamenn mundu vegna átaka annars staðar í heiminum og deilna við Sovétríkin, kannske í Miðausturlöndum, kannske við Indlandshaf, grípa til þess ráðs til að veikja getu Sovétríkjanna að leggja til árásar á Norður-Atlantshafi, að hefja árás þar, þá værum við um leið orðin hlekkur í því kerfi sem forsetaúrskurður nr. 59 fól í sér að Bandaríkin væru nú reiðubúin að taka upp. Þess vegna held ég að það sé nauðsynlegt að við á Íslandi verðum virkir þátttakendur í þeirri gagnrýnu umræður sem nú fer fram í nánast öllum löndum á meginlandi Evrópu og í öllum Norðurlöndum um þessi efni.

Ég vil nefna hér eitt nafn, Jens Evensen. Ég hef ekki alltaf verið sammála þeim manni, eins og hæstv. utanrrh. veit, og við Íslendingar höfum ekki alltaf verið sammála þeim manni. Hann er þó sá maður sem Norðmenn hafa falið þann trúnað að fara með sín hafréttarmál á alþjóðavettvangi og í samningum við Sovétmenn og Íslendinga og aðrar þjóðir. Hann er einn af leiðtogum þeirrar hafréttarráðstefnu sem vonandi verður ekki eyðilögð af ríkisstjórn Reagans. Hvað segir Jens Evensen um þessi efni? Hver var boðskapurinn í þeirri ræðu sem hann flutti í Noregi fyrir nokkrum mánuðum? Er hann sá sami og hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson og Eiður Guðnason voru að flytja í dag? Nei, hann er miklu meira í ætt við þau varnaðarorð sem við þm. Alþb., Þjóðviljinn og Samtök herstöðvaandstæðinga höfum verið að flytja á undanförnum mánuðum og árum að nauðsynlegt væri fyrir Norðurlönd og Evrópu alla að segja nei við þeim hernaðarkröfum og þeirri aðstöðukröfu sem Bandaríkin eru að setja fram gagnvart Noregi, gagnvart Belgíu, gagnvart Hollandi, gagnvart Þýskalandi, gagnvart Bretlandi.

Hvernig stendur á því, að breski verkamannaflokkurinn hefur nú sett upp þá stefnu að hafna staðsetningu eldflaugakerfis Bandaríkjanna í Bretlandi, þess hluta herafla Bandaríkjanna sem tengist kjarnorkuvopnakerfinu? Er það ekki af nákvæmlega sömu ástæðunum og við höfum verið að vara við staðsetningu AWACS-flugvélanna hér og annarra þessara þátta? Það væri hættuleg einangrunarstefna fyrir íslenska þjóð að láta þessar gagnrýnu umræðu fram hjá sér fara. Þótt okkur kunna að greina á um þann samning, sem gerður var við Bandaríkin 1951, er það nauðsynlegt sem framlag okkar allra til framtíðar íslensku þjóðarinnar að við getum sagt með sanni þegar tímar líða að við höfum vissulega vitað og lagt vinnu í að kynna okkur það sem var að gerast í þeim efnum, að við höfum skilið eðli þeirra formlegu ákvarðana, eins og forsetaúrskurðar nr. 59, sem Bandaríkjastjórn hefur tekið, að við höfum reynt að brjóta til mergjar eðli þeirra hernaðartækja, eins og AWACS-flugvélanna, sem Bandaríkjamenn vilja kappkosta að hafa hér, að við höfum reynt að taka afstöðu til þeirrar gagnrýni, sem ýmsir fremstu stjórnmálamenn í ríkjum Atlantshafsbandalagsins, eins og Jens Evensen og ýmsir forsvarsmenn breska verkamannaflokksins og ýmsir kirkjuleiðtogar og frjálslyndir og kristilegir demókratar í löndum eins og Hollandi og Belgíu, hafa sett fram, en að við verðum ekki staðnir að því, fulltrúar íslensku þjóðarinnar, þegar fram líða stundir, að þeir, sem á eftir okkur koma, geti sagt: Þeir vissu ekki, aumingjarnir, hvað var að gerast.