15.05.1981
Sameinað þing: 83. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4474 í B-deild Alþingistíðinda. (4509)
388. mál, utanríkismál 1981
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Það er talsvert komið fram yfir miðnætti og ég skal reyna að stilla ræðutíma mínum í hóf. Ég lofa því a. m. k. að vera ekki eins langorður og endurtaka mig ekki jafnoft og síðasti hv. ræðumaður, sem er nýkominn að utan þar sem hann hefur líklega fengið lítið tækifæri til að tala og ekki fengið þá útrás sem hann fær úr ræðustól á hv. Alþingi Íslendinga.
Það er alveg rétt, sem kom fram hjá síðasta hv. ræðumanni, að umr. hafa ekki að verulegu leyti snúist um fjölmörg þeirra mála sem ástæða væri til að nefna, eins og um Kúbuher utan Kúbu og hvaða hlutverki hann gegnir þar, um innrás Sovétríkjanna í Afganistan, sem hv. síðasti ræðumaður sneiddi að í tveimur eða þremur setningum í nokkurra klukkutíma langri ræðu, og um flóttamannavandamálið, m. a. í Víetnam. Það er hægt að ræða fleira en afstöðu Íslendinga til stjórnar Pol Pots, um norður-suður-umræðurnar, sem hv. síðasti ræðumaður sneiddi aðeins að, og um fátæktina í heiminum, sem hann fjallaði nokkuð um í upphafi eða öllu frekar í inngangi ræðu sinnar. Ég get þó glatt hv. síðasta ræðumann með því, að á meðan hann var á ferðalagi erlendis afgreiddi Nd. Alþingis lagafrv. um Þróunarsamvinnustofnunina, og það er ekki mikill ágreiningur um þau mál. Það er kannske ein helsta skýringin á því, að umr. hafa ekki orðið mjög miklar um þessi efni. Hitt er svo annað mál, og þar get ég verið sammála hv. síðasta ræðumanni, og það er full ástæða til þess fyrir fjárveitingavaldið að athuga sinn gang um framlög Íslands til þróunaraðstoðar og ég held að hann viti að þar er ekki um efnislegan ágreining að ræða. Þar er aðeins um það að ræða að fjárveitingavaldið, sem er í höndum okkar og þó aðallega í höndum Alþb., hefur ekki fengist til að leggja fram það fjármagn sem við höfum lofað og skrifað undir, en vonandi verður breyting á við fjárlagagerð á næsta ári.
Auðvitað hafa þessar umr. fyrst og fremst snúist um þau málefni sem snerta okkur Íslendinga frá degi til dags og eru stór hluti þeirra þjóðmálaumræðna sem hér fara fram. Meginástæðan fyrir því að úr þessum umr. hefur teygst, er auðvitað sú ræða sem hæstv. félmrh. flutti í fjarveru hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar, sem er sérfræðingur Alþb., eins og heyra mátti, í utanríkis- og varnarmálum. Það var fróðlegt, eftir að hafa hlýtt á ræðu hv. síðasta ræðumanns, að hafa undir höndum 31 bls. langa ræðu, sem hæstv. félmrh. flutti, og finna þau málefni, sem hv. síðasti ræðumaður taldi mikilvægust allra málefna, um hungrið í heiminum, á svo sem eins og hálfri bls. af 31. Það voru ekki hv. þm. Eiður Guðnason eða Birgir Ísl. Gunnarsson sem fluttu þessa ræðu. Það var flokksbróður hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar, meira að segja hæstv. ráðh. sjálfur, sem sá ekki ástæðu til að víkja meira að þessum málum, enda var ræða hans fyrst og fremst um þau efni sem við eðlilega hljótum að ræða verulega þegar rætt er um skýrslu utanrrh.
Í ræðu hæstv. félmrh. lagði hann fyrst og fremst áherslu á í upphafi máls síns sögulega upprifjun. Hann valdi ýmsa kafla til að gefa ýmislegt í skyn. Hann sleppti stórum atriðum, eins og t. d. því, hver var afstaða Sósíalistaflokksins á þeim tíma sem hann valdi sem sitt umræðuefni. Hann minntist ekki á hvernig Sósíalistaflokkurinn var eins og skopparakringla í höndunum á Kremlherrunum á þeim tíma, svo sem þekkt er. Á það minntist hann ekki, heldur valdi hann fyrst og fremst þá kafla sem gátu gefið í skyn að forustumenn Framsfl. hefðu bilað í utanríkis- og öryggismálum Íslands. Þessa kafla valdi hæstv. félmrh. auðvitað af því tilefni að sem stendur situr í sæti utanrrh. hæstv. utanrrh. Ólafur Jóhannesson sem hæstv. félmrh. er ekki alveg sáttur við, og það var þess vegna sem bæði hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson og hæstv. félmrh. þurftu að koma hér í ræðustól og tala klukkutímum saman um varnar- og öryggismál og koma á framfæri sínum skoðunum.
Eftir að hafa skýrt þingheimi frá áður þekktum staðreyndum og reyndar völdum, slitnum úr samhengi, rakti hæstv. félmrh. afrekssögu Alþb. og herstöðvaandstæðinga, og sagði þá m. a., með leyfi forseta:
„Það er einn besti áfangi herstöðvaandstæðinga á þessum árum þegar vinstri stjórninni 1971–1974 tókst að knýja fram lokun bandaríska hermannasjónvarpsins. En það er geymt, en ekki gleymt að á Alþingi Íslendinga voru þá menn sem fluttu beinlínis tillögur um það að opna fyrir bandaríska hermannasjónvarpið á ný er því hafði verið lokað.“
Það er í sjálfu sér ekki undarlegt að hæstv. félmrh. skuli hafa valið einmitt þennan atburð í sína ræðu vegna þess að þeir, sem þekktastir voru fyrir afstöðu sína í þessum málum, a. m. k. úr hópi Sjálfstfl., voru núv. hæstv. forsrh. og hv. þm. Albert Guðmundsson. Það segir sína sögu og skal ég ekki hafa fleiri orð um það að sinni.
Hæstv. félmrh. fjallaði síðan með líkum hætti og nánast sama hætti og hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson um varnarstöðina á Keflavíkurflugvelli og kvaddi sér til vitnis Anders nokkurn Hellebust, sem hafði þá átt viðtal við Þjóðviljann og komið á framfæri ýmsum skoðunum sínum, minnihlutaskoðunum sínum, en hann er Norðmaður sem er herskólagenginn.
Hæstv. félmrh. fjallaði um þær breytingar, sem hann taldi að hefðu átt sér stað á Keflavíkurflugvelli, og sagði þá m. a. að þar væri gert ráð fyrir að tengja hernaðarkerfi Bandaríkjanna á Norður-Atlantshafi beint við kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjamanna.
„Á þessum 20 árum hefur verið unnið að því markvisst af Bandaríkjastjórn að tengja herstöðina í Keflavík við þetta kjarnorkuvopnakerfi, og það er talið með óyggjandi rökum að Keflavíkurstöðin sé nú orðin mikilvæg stjórnstöð í kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjanna á gervöllu Norður-Atlantshafi og jafnframt hafi herstöðin nú nýju hlutverki að gegna, eftir að AWACS-vélarnar komu til sögunnar, og stöðin sé í reynd einnig árásarstöð að dómi erlendra hernarsérfræðinga, en ekki aðeins varnarstöð eða viðvörunarstöð, eins og hér hefur verið haldið fram í þessum umr.“
Þetta sagði hæstv. félmrh. og þetta endurtók hv. síðasti ræðumaður svo að segja orðrétt að öðru leyti en því, að nú var ekki minnst á að það væru til „óyggjandi rök“, eins og hæstv. félmrh. sagði, heldur var sagt að þarna væri haft eftir Owen Wilks og reyndar mátti segja að Hellebust væri með svipaða skoðun, en svo bætti hv. síðasti ræðumaður við að hann væri ekki endilega þessarar skoðunar, hann væri bara að benda á að þetta hefði verið sagt úti í heimi af þessum sérfræðingum, hann hefði aldrei neitt fullyrt. (ÓRG: Ég sagði að enginn okkar hefði í höndum gögn um AWACS-vélarnar.) Hv. síðasti ræðumaður sagði að hann hefði aldrei fullyrt þetta og það skrifaði ég eftir honum. Það er ekki von að hann viti sjálfur hvað hann segir í þessum málum, svo mörg orð komu úr hans munni. En þetta er ekki það sama og kom fram hjá hæstv. félmrh. sem sagði að það væri talið með óyggjandi rökum. Nú höfum við kynnst hvaða óyggjandi rök þetta eru. Þetta er það sem hv. síðasti ræðumaður væntanlega rakti hér áðan og sagði að engin leið væri að fullyrða nokkuð um.
Í ræðum sínum ræddu hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson og hæstv. félmrh. talsvert um það sem þeir kölluðu sérstöðu Íslands, um það að hér væri erlendur her, það gerðist ekki á hinum Norðurlöndunum, og þeir tóku sem dæmi Noreg í því sambandi. Hv. síðasti ræðumaður eyddi löngu máli í að útskýra fyrir okkur að Norðmenn vildu ekki erlendar herstöðvar, en þeir vildu erlendar herstöðvar á Íslandi. Hann gerði hins vegar lítið úr vörnum Norðmanna og taldi þær vera einskis virði. Ég get ekki lagt dóm á það með sama hætti og hv. síðasti ræðumaður hvort varnir Norðmanna eru einhvers virði eða ekki. En hitt veit ég að meginþorri norsku þjóðarinnar telur sig þurfa á vörnum að halda, og meginþorri norsku þjóðarinnar hefur valið þann kost að hervæðast vegna hugsanlegs yfirgangs og ágangs Sovétríkjanna fyrst og fremst. Það er af þeirri ástæðu sem Norðmenn hafa valið samstarf við aðrar lýðræðisþjóðir í Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku. Þetta hélt ég að hv. síðasti ræðumaður vissi. Um það, hvort þar eru erlendar herstöðvar, má auðvitað deila. Þær eru það ekki svo kallaðar, en ég minni á að í nágrenni Oslóar í Kolsör, er herstjórn sem er á vegum Atlantshafsbandalagsins og þar er það ekki Norðmaður sem ræður ríkjum og stjórnar, heldur Breti. Þar eru menn af fleiri þjóðernum, fleiri en Norðmenn, því að þar eru menn frá mörgum NATO-ríkja, enda er þetta NATO-stöð sem heyrir beint undir Atlantshafsbandalagið. Það má segja um Danmörku. Þar eru slíkar stöðvar og má nefna stjórnarsvæði sem kallað er Baltic Command eða yfirstjórn á Eystrasaltssvæði Atlantshafsbandalagsins á Jótlandi. Ég held að það séu Þjóðverjar sem þar eru hæst ráðandi.
Við skulum ekki heldur gleyma því, að á þeim tíma, sem Sovétmenn láta fara fram heræfingar við landamæri Noregs, hefur norski herinn tekið á móti hermönnum frá öðrum NATO-ríkjum og á þeim tíma eru staðsettar í Noregi hersveitir sem eru ekki eingöngu norskar, heldur frá öðrum NATO-ríkjum. Það er alveg ljóst að hagsmunir Norðmanna og Íslendinga fara saman af ýmsum ástæðum, og þar við bætist að þessar frændþjóðir eiga svo margt annað sameiginlegt, að það er full ástæða fyrir okkur að taka alvarlega mark á því sem þar er að gerast, án þess þó að við þurfum að fara í einu og öllu nákvæmlega eftir þeirra vilja. En við höfum valið þann háttinn að starfa með Norðmönnum, Kanadamönnum, Dönum, Bandaríkjamönnum og fleiri í bandalaginu þar sem við erum sjálfstæðir, þar sem við höfum tillögurétt og þar sem við getum sem jafningar rætt við þessar þjóðir um þau mál sem við eigum sameiginleg.
Báðir Alþb.-mennirnir, sem hér hafa talað, hafa gert ákaflega mikið úr því, að nú hafi hallast á, nú sé ekki lengur hægt að tala um ógnarjafnvægi því að nú hafi Bandaríkjamenn miklu meiri möguleika en áður og nú sé um jafnvægisskort að ræða í þessum efnum. Hv. síðasti ræðumaður gerði lítið úr þeirri skoðun, sem hann taldi vera Geirs Hallgrímssonar, að það væri gagn að svokölluðu ógnarjafnvægi, en hæstv. félmrh. vitnar til Anders Hellebust, sem einmitt telur að með síðustu aðgerðum Bandaríkjamanna sé verið að raska svokölluðu jafnvægi óttans. Það verður ekki skilið öðru vísi en svo, að sá maður, sem er helsti sérfræðingur Þjóðviljans í hermálum fyrir utan Ólaf Ragnar Grímsson, Anders Hellebust, noti sömu röksemdir og Geir Hallgrímsson notar að áliti Ólafs Ragnars Grímssonar. Þetta er auðvitað sjónarmið. En þess ber bara að geta, að ýmsir aðrir — og langflestir aðrir, að ég hygg, eru allt annarrar skoðunar. Má þar nefna t. d. norsku stofnunina NUPI sem ég veit að hv. síðasti ræðumaður þekkir. Hún kemst að allt annarri niðurstöðu í sínum athugunum.
Í fjöldamörgum tilvitnunum, sem hæstv. félmrh. vitnaði til úr viðtali Þjóðviljans við Anders Hellebust, kom m. a. fram þessi klausa: „Bandaríkjamenn munu alltaf eiga miklu auðveldara með að taka Ísland, ef þeim þurfa þætti, en Rússar, sem þyrftu að fljúga yfir ýmsar hindranir á leiðinni til Íslands meðan ekkert hindrar Bandaríkjamenn.“
Hér er verið að ýja að því, að það sé allt í lagi að breyta til vegna þess að það sé miklu auðveldara fyrir Bandaríkjamenn en Rússa að taka Ísland. Þetta eru þær framtíðarvarnir sem hv. síðasti ræðumaður og hæstv. félmrh. sjá sem einhvers konar lausn í varnarmálum Íslands. Það er athyglisvert þegar þetta er lesið úr ræðu hæstv. félmrh., og væri vissulega ástæða til að spyrja hæstv. félmrh., hvaða hindranir Anders Hellebust á við, fyrst hann tekur þessa tilvitnun upp í ræðu sína. Hér er um það að ræða enn einu sinni að Íslendingar hafa valið þann kost, mikill meiri hluti þjóðarinnar, að fá að ráða sjálfir við hverja þeir hafa samstarf um varnarhagsmuni sína, sem eru mjög mikilvægir þjóðarhagsmunir.
Þá eyddu báðir hv. Alþb.-þm. löngu mali í það að útskýra fyrir þingheimi að verkamannaflokkarnir í Evrópu væru, að því er manni skildist, á móti Atlantshafsbandalaginu og því samstarfi sem þar ætti sér stað, einkum á sviði her- og varnarmála. Nefndur var verkamannaflokkurinn breski, en það er vitað að eitt stærsta ágreiningsmálið, sem varð til þess að sá flokkur klofnaði, var staðsetning vopnanna. Hæstv. félmrh. nefndi Hollendinga, Dani og fleiri, án þess að tilgreina hverjir þessir „fleiri“ væru. Hann minntist hins vegar ekkert á það, að þegar var ákveðið á NATO-fundi í des. 1979 um skammdrægar kjarnorkueldflaugar var það gert samhljóða og fulltrúar þessara þjóða, þar sem verkamannaflokkar eru ákaflega sterkir, tóku þátt í þeirri afgreiðslu heils hugar. Það er nefnilega algerlega rangt, sem kom fram í ræðum hv. Alþb.-manna, að verkamannaflokkarnir í Evrópu séu á móti þeirri stefnu sem er ráðandi innan Atlantshafsbandalagsins. Sannleikurinn er miklu fremur sá, að einmitt í jafnaðarmannaflokkunum er að finna hörðustu talsmenn þeirrar stefnu. T. d. hefur í Vestur-Þýskalandi, sem hæstv. félmrh. minntist sérstaklega á, ávallt verið ríkjandi mikill skilningur á varnarstefnu Atlantshafsbandalagsins. Það var fyrir frumkvæði vestur-þýska sósíaldemókrataflokksins sem gerðar voru ýmsar merkilegustu ráðstafanirnar á vegum Atlantshafsbandalagsins undanfarið. Franski flokksbróðir Alþb., ef trúa má Þjóðviljanum og hæstv. félmrh., sem er formaður Alþb., sjálfur nýkjörinn forseti Frakka, Mitterand, er eins og allir vita mikill stuðningsmaður Atlantshafsbandalagsins, og Rochard, sem verður forsrh. ef að líkum lætur, er talinn vera jafnvel enn meiri stuðningsmaður Atlantshafsbandalagsins og stefnu NATO en Mitterand. Á þetta var ekki minnst í ræðum þeirra hv. Alþb.-manna.
Hæstv. félmrh. vék að Norðurlöndunum og harmaði það, ef maður skildi hann rétt, að ekki hefði tekist samstarf í varnarmálum Norðurlanda. Hann er búinn að gleyma því, að tilraunir voru gerðar á sínum tíma í þessum efnum og það var auðvitað fyrst of fremst á Finnum og Svíum sem slíkt samstarf strandaði. En hitt er svo annað mál, að það er full samstaða á milli Norðurlandanna að breyta ekki þeim stöðugleika sem á sér stað á þessu svæði vegna tillitsins sem þessar þjóðir sýna hver annarri.
Í ræðu sinni vék hæstv. félmrh. síðan að landsmálum okkar og sagði þá m. a., með leyfi forseta:
„Af þeim ástæðum tel ég að þessum forustumönnum sé skylt að leita nýrra leiða í þessum efnum og kanna hvort ekki er möguleiki á miklu víðtækari samstöðu en verið hefur um þessi mál, því að hvergi í NATO-ríki hafa utanríkismál verið jafnumdeild og hér á Íslandi.“
Hérna er verið að gefa í skyn að utanríkismálin séu sérstaklega umdeild á Íslandi, en forðast er að minnast á að það er Alþb. og Alþb. eitt sem hefur sérstöðu í varnar- og öryggismálum þjóðarinnar.
Ég skal, herra forseti, fara hratt yfir sögu þótt af mörgu sé að taka, en eitt vil ég minnast á sem kom fram í ræðum tveggja Alþb.-mannanna, en það voru hugmyndir sem þeir höfðu gert sér varðandi svokallaðar Awacs-vélar á Keflavíkurflugvelli. Það var aftur byggt á svokölluðum erlendum hernaðarsérfræðingum. Þó forðaðist hv. síðasti ræðumaður að segja að hann tryði þeim upplýsingum, heldur sagði hann að þær hefðu verið gefnar af hinum og þessum erlendum aðilum. Hæstv. félmrh. sagði orðrétt, svo að ég fari ekki rangt með þeirra málflutning, með leyfi forseta:
„Keflavíkurstöðin er nú búin sem stjórnstöð og þar með miðstöð í kjarnorkuhernaði. Til marks um þetta er ekki síst staðsetning Awacs-vélanna í Keflavíkurflugvelli. Það er álit erlendra hernaðarsérfræðinga, að mestu hættusvæðin í Evrópu, komi til kjarnorkustríðs, séu annars vegar Reykjanesskaginn á Íslandi og hins vegar svæðið í kringum Murmansk í Sovétríkjunum. Hvergi í Evrópu eru Awacs-flugvélar nema hér.“
Hv. síðasti ræðumaður hefur sagt okkur hver þessi erlendi hernaðarsérfræðingur er, en hann sagði jafnframt að hann væri ekki að fullyrða að þetta væri rétt. Nú vil ég upplýsa þessa ágætu Alþb.-menn um að Awacs-vélar koma til með að verða í Noregi og í Þýskalandi því að nýlega hafa tekist samningar um það við stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins í Evrópu að tæplega 20, líklega 18–19 slíkar vélar verða á yfirráðasvæði SHAPE. Sú nýja tækni, sem kemur fram í þessum vélum, á auðvitað að notast af Bandaríkjunum og þeim, sem eru með þeim í varnarbandalagi, vegna þeirrar gífurlegu tækniyfirburða sem þessar flugvélar hafa. Svo má auðvitað, eins og þessir ágætu ræðumenn báðir, gera því skóna að þetta séu fyrst og fremst árásartæki. Það vita allir menn, þótt lítið sé vitað og lítið sé gefið upp um hvað þær gera nákvæmlega og hver tæknibúnaðurinn sé, að yfirburðir þessara véla felast fyrst og fremst í því, að með þeim má á mjög stuttum tíma með ótrúlega nákvæmum hætti fylgjast með ferðum bæði í sjó og á landi. Auðvitað er slíkt mjög gott til varna því að það er einmitt eðli eftirlits og varna að geta fylgst með hugsanlegum óvini. Því verður ekki neitað að ef til stríðs kemur er auðvitað fullt gagn að slíku. En það þýðir ekki að þetta séu fyrst og fremst árásartæki. Það er broslegt að lesa Þjóðviljann þegar viðtal er við Hellebust og hann segir í því viðtali auðvitað að þetta séu varnartæki og viðurkennir það, en ef maður snýr þessari síðu Þjóðviljans við og les það sem Ólafur Ragnar Grímsson segir, þá nefnir hann það ekki, heldur fyrst og fremst að þetta séu árásartæki. Það er vegna þess að hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson hefur tamið sér í þessu máli að segja aðeins hálfan sannleikann, sem stundum er verri en lygin sjálf.
Í lokin, þegar hann fjallaði um þessi mál, lýsti hæstv. félmrh. yfir að hann teldi það vera sjálfsagða kröfu að bandaríski herinn færi úr landi og Ísland segði sig úr Atlantshafsbandalaginu. En einmitt með síðari kröfunni hrynur öll röksemdafærsla helsta hernaðarsérfræðings Þjóðviljans, Anders Hellebust, því að í öllu því, sem hann sagði, gerði hann ráð fyrir að Íslendingar nytu þess að vera áfram í Atlantshafsbandalaginu. Það hefur stundum verið talað um varnarábyrgð Atlantshafsbandalagsins, og ég býst við að þessir ágætu tveir þm. kannist við það orðalag.
Ástæðan fyrir því, að þessir ágætu þm. hafa svo hátt í þessu máli, er auðvitað sú, að þeir eru að gera sig breiða gagnvart háværum hluta Alþb. úr hópi. herstöðvaandstæðinga. Þeir eru orðnir langþreyttir á því að lesa það í yfirlýsingum frá flokksþingum Alþb. og í kosningastefnuskrá, að Alþb. berjist fyrir því að herinn fari af Keflavíkurflugvelli og Ísland segi sig úr NATO, en síðan er þessu öllu saman kastað fyrir róða þegar efnt er til stjórnarsamstarfs. Þetta veldur auðvitað forustumönnum Alþb. erfiðleikum. Það er þess vegna sem þeir nota tækifærið í þessum umr. til að æpa eins hátt og þeir geta að nú þurfi eitthvað að breytast og eitthvað að gerast. Þetta eru þó ekki svo merkileg mál að þeirra dómi að þau séu ekki aukaatriði þegar til samstarfs við aðra stjórnmálaflokka kemur. Ég held að þetta sé meginástæðan fyrir því að Alþb.-mennirnir tveir hafa komið hér og flutt sömu ræðuna báðir, annar að degi og hinn að nóttu.
Það er eitt sem er ánægjulegt við þessar umr. allar, að hér er þó gerð tilraun til að ræða um varnar- og öryggismál Íslands með þeim hætti sem kannske eðlilegt er. Reynt er að setja sig inn í nútímatækni og átta sig á því, hver sé staða Íslands í þeim ófriðsamlega heimi sem við lifum í. Yfirlýsingar hv. síðasta ræðumanns og dylgjur um það, hvort SOSUS-kerfið sé til þess hannað að drepa fólk, eru náttúrlega algerlega út í bláinn og hann veit miklu betur þótt hann taki svona til orða. Hugmyndir hans um Awacs-vélar, þar sem hann segir fyrst og fremst hálfan sannleikann og felur annað, trú hans á yfirlýsinguna um að Rússar geti ekki notað nema 11% af flota sínum vegna manneklu o. s. frv. eru allt atriði sem auðvitað er vert að ræða.
Þá kem ég að því sem mér fannst vera jákvætt í ræðu hv. síðasta ræðumanns, en það var að hann taldi að við Íslendingar yrðum að byggja meira á innlendri þekkingu í okkar málflutningi. Undir þetta get ég tekið því að með þessum orðum hefur hv. síðasti ræðumaður lýst yfir þó nokkrum stuðningi við till. sem liggur fyrir Sþ. frá þremur þm., þar sem gert er ráð fyrir að Alþingi feli ríkisstj. að stofna sérstakt embætti ráðunautar ríkisstj. í öryggis- og varnarmálum sem starfi hjá utanrrn. Ég tel að ræða síðasta hv. ræðumanns gefi fullt tilefni til að halda að Alþb., eða a. m. k. sumir Alþb.-menn, komi til með að styðja þá till. og fyrir það er ég þeim þakklátur.