15.05.1981
Efri deild: 101. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4483 í B-deild Alþingistíðinda. (4513)

262. mál, lagmetisiðnaður

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Herra forseti. Iðnn. hefur haft til umfjöllunar alllengi frv. til l. um Sölustofnun lagmetis og Þróunarsjóð lagmetisiðnaðarins. Nefndin hefur fjallað um þetta frv. og fengið til viðtals fulltrúa frá Sölustofnun lagmetis, Samtökum grásleppuhrognaframleiðenda og Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda. Enn fremur hafa borist umsagnir frá Landsambandi ísl. útvegsmanna, Sölustofnun lagmetis, Samtökum grásleppuhrognaframleiðenda, Verslunarráði Íslands og viðskrn.

Í athugasemdum með frv. er þess getið, að einstakir ráðh. hefðu fyrirvara um endanlega afstöðu þeirra til vissra atriða í frv. Af þessu tilefni óskaði nefndin upplýsinga frá iðnrh. hverjir þessir fyrirvarar væru, þannig að ljóst lægi fyrir um stuðning flutningsaðila við frv. Svar iðnrh. er birt í fskj. með þessu nál.

Nefndarmenn iðnn. eru ekki einnar skoðunar um það, hvort þörf sé á sérstakri lagasetningu um Sölustofnun lagmetis, en um það fjallar fyrsti kafli frv., og telja sumir að eðlilegra sé að sölusamtök setji sér eigin samþykktir. Á hinn bóginn hefur orðið að samkomulagi að leggja til þá málsmeðferð sem frv. hljóðar upp á, að I. kafli frv. gildi aðeins til ársloka 1982 og þannig gefist aðilum ágætt svigrúm til þess að ganga frá samþykktum fyrir félagsskap sinn ef ný lagasetning kemur þá ekki til um þessi efni.

Vegna Þróunarsjóðsins leggur nefndin áherslu á, að hann fái sérstaka stjórn. Jafnframt er það álit nefndarinnar, að eðlilegt sé að aðilar, sem leggja sjóðnum til fé, eigi aðild að stjórn sjóðsins. Þess vegna flytur nefndin brtt. þar að lútandi.

Loks er flutt till. um að Samtök grásleppuhrognaframleiðenda fái tekjur af útflutningi á grásleppuhrognum með svipuðum hætti og ýmis önnur hagsmunasamtök í sjávarútvegi. Undir nál. rita allir nm. í iðnn. Brtt. nefndarinnar eru birtar á þskj. 838.

Ég vil lesa upp þær brtt. sem eru á þskj. 838 og nefndin flytur.

„1. 2. mgr. 10. gr. orðist þannig:

Iðnrh. skipar Þróunarsjóði lagmetisiðnaðarins fimm manna stjórn og jafnmarga til vara með eftirfarandi hætti: Einn samkv. tilnefningu Sölustofnunar lagmetis eða síðar sölusamtaka lagmetisframleiðenda, einn skv. tilnefningu Iðntæknistofnunar Íslands, einn skv. tilnefningu Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, einn skv. tilnefningu sjútvrh., sem sé á árinu 1981 valinn í samráði við Samtök grásleppuhrognaframleiðenda og Sölusamtaka ísl. fiskframleiðenda, en síðar eftir ábendingu Sölusamtaka ísl. fiskframleiðanda. Einn án tilnefningar og skal hann vera formaður. Á sama hátt fer um varamenn þeirra.

2. Við 11. gr. bætist:

Enn fremur skal með sama hætti innheimta 1% gjald af fob-verði saltaðra grásleppuhrogna fram til 1. apríl 1982 og renni andvirði þess til Samtaka grásleppuhrognaframleiðenda.

3. 13. gr. orðist þannig:

Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi lög nr. 48 26. maí 1972, um Sölustofnun lagmetisiðnaðarins, með síðari breytingum. I. kafli þessara laga, þ. e. greinar 1–8 að báðum meðtöldum, falla úr gildi 31. des. 1982.

4. Heiti frv. breytist og verður:

Frumvarp til laga um lagmetisiðnað og Þróunarsjóð lagmetisiðnaðarins.“

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að eyða lengra máli í að gera grein fyrir frv. né heldur þeim breytingum sem nefndin hefur lagt til. Um þetta var einhugur í iðnn.

Ég vil að gefnu tilefni þakka hv. nm. fyrir gott samstarf um þetta mál. Eins og ég gat um í upphafi hefur nefndin fjallað um þetta í alllangan tíma, en það er oft svo að þegar menn vilja ná samkomulagi, fylgjast að, þá tekur svolítinn tíma að vinna að málum. Ég endurtek þakklæti mitt til hv. nm. fyrir gott samstarf.