15.05.1981
Efri deild: 102. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4485 í B-deild Alþingistíðinda. (4519)
215. mál, lögheimili
Frsm. (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um frv. til breyt. á lögum um lögheimili. Nefndin mælir með samþykkt frv. með brtt. sem birt er á sérstöku þskj., nr. 858, og mælir nefndin með að umrædd málsgr. laganna um lögheimili orðist svo sem þar segir.