15.05.1981
Efri deild: 102. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4487 í B-deild Alþingistíðinda. (4523)

262. mál, lagmetisiðnaður

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Það gæti í sjálfu sér verið ástæða til að fjalla verulega um þessa stofnun hér í ræðustóll, en eins og deildinni er kunnugt hefur þetta mál verið til alllangrar umfjöllunar í iðnn. deildarinnar og þar hafa menn að lokum náð samkomulagi um þær brtt. sem hér voru til afgreiðslu síðast. Ég tel að þær séu af því tagi að þeir, sem að þeim stóðu, hafi slegið nokkuð af kröfum sínum hver og einn eins og verða vill þegar menn leitast við að ná samkomulagi. “

En varðandi það ákvæði frv., sem hér um ræðir, varð að samkomulagi í nefndinni að láta það óbreytt standa. Vegna þeirrar brtt., sem hér var talað fyrir, vil ég í fyrsta lagi vekja athygli á því, að í greininni, eins og hún er í frv., er meginreglan sú, að það sé einn aðill sem fari með sölu og útflutning á lagmeti til þeirra landa sem hér um ræðir, því að þar segir að Sölustofnunin skuli annast sölu á sjávarafurðum til landa þar sem ríkisstofnun, ríkið sjálft eða aðili fyrir þess hönd er aðalkaupandinn. Sölustofnun lagmetis hefur einkarétt til sölu og útflutnings á lagmeti til þeirra landa sem ákvæði þetta nær til. Síðan er þó undantekningarákvæði sem er nokkuð strangt, nefnilega að viðskrh. sé heimilt í einstökum tilvikum að veita aðila utan stofnunarinnar undanþágu frá einkaréttarákvæði þessu, enda sýni aðilinn fram á að hann geti fengið hagkvæmara verð en stofnunin. Og í þessu tilviki skal leita umsagnar stjórnar Sölustofnunar lagmetis áður en undanþágan er veitt.

Svo nálægt þeim sjónarmiðum, sem eru túlkuð í brtt., er gengið, en hins vegar er heimild til undanþágu.

Ég vil að öðru leyti segja það um ræðu hv. síðasta ræðumanns, að hann taldi að það væri rétt að setja lög um sölusamtök af þessu tagi, en hins vegar ekki að lögskylda menn til að vera í samtökunum. Ég tel að eðlilegra sé að það gildi í þessari grein eins og er meginreglan í öðrum útflutningsgreinum sjávarútvegsins, að sölusamtökin sjálf setji sér samþykktir. Með því verða þeir aðilar, sem þar eru, ábyrgari fyrir því, með hvaða hætti stofnunin starfar, og í annan stað gefur það þeim aukinn sveigjanleika til þess að breyta samþykktum sínum eftir því sem nauðsyn kann að krefja og laga þær að aðstæðum án þess að þurfa að bíða eftir hugsanlegum lagabreytingum í gegnum Alþingi. Ég er eindregið þeirrar skoðunar, að langtum eðlilegra sé að sölusamtökin setji sér sjálf samþykktir.

En um hitt atriðið, að hér skuli vera algjör einkasala til aðila, þá verða menn að líta á það, að samkv. 3. gr. í frv., eins og það er núna, fela þeir aðilar, sem ganga í þessa sölustofnun, henni algjöra einkasölu á allri framleiðslu sinni. Ef menn eru aðilar að sölustofnuninni geta þeir ekki selt neitt með öðrum hætti, og í annan stað er alveg bundið, ef samþ. yrði sú brtt. sem hér er, að menn geti með engu móti selt afurðir sínar til þeirra landa, sem hér um ræðir, nema með því að vera aðilar að sölustofnuninni. Þetta þykir mér nokkuð strangt ákvæði og ég hefði haldið að þetta stangaðist á við þau grundvallarsjónarmið sem fylgt væri í Sjálfstfl. varðandi bæði þetta atriði og svo hitt, að ætla sér að lögskylda menn til þess að gangast fortakslaust undir hluti af þessu tagi og framselja einkarétt með þeim hætti sem hér er gert ráð fyrir. Ég hef ekki skilið stefnu Sjálfstfl. þannig.

Ég skal ekki fjölyrða frekar um þetta, herra forseti, nema tilefni gefist til. En ég vil vekja sérstaka athygli á því, að ákvæðið eins og það er gengur alllangt í átt við þau sjónarmið sem hv. flm. brtt. talaði hér fyrir. Ég held að það væri réttara að segja: mjög langt. Hins vegar er það ekki fortakslaust með öllu, að ekki sé hægt að sveigja örlítið til ef nauðsyn krefur. En hitt er auðvitað rétt, að þetta þyrfti ekki að vera í lögum. Það er eðlilegt hlutverk viðskrh. að sjá til þess, að farið sé með réttum hætti að í þessum efnum. Skoðun mín er sú, að það hafi viðskiptaráðherrar yfirleitt gert í sambandi við útflutninginn. Ég tel þess vegna að brtt., sem hér er flutt, eigi ekki rétt á sér og hana eigi ekki að samþykkja.