15.05.1981
Efri deild: 102. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4491 í B-deild Alþingistíðinda. (4528)
301. mál, umferðarlög
Salome Þorkelsdóttir:
Herra forseti. Eins og fram hefur komið hef ég undirskrifað nál. með fyrirvara og er ástæðan sú sama og ég nefndi í máli mínu við 1. umr. Ég er ekki að mótmæla mikilvægi bílbeltanna, heldur er ástæðan sú, að ég treysti mér ekki til að standa að einhliða lögleiðingu þeirra.
Ég vil leggja áherslu á mikilvægi fræðslu og áróðurs fyrir notkun bílbelta, en tel að það eigi að vera ákvörðun ökumanns hverju sinni.
Ég vil leggja áherslu á það, að umr. um málið í allshn. var mjög góð og gagnleg og nm. virtu skoðanir þeirra sem vilja fara vægar í sakirnar, og árangurinn eru brtt. sem nefndin leggur fram. Þær eru til bóta og draga aðeins úr einhliða lögleiðingu.
Þetta vildi ég láta koma fram, herra forseti, við þessa umr., en hef allan fyrirvara á endanlegri afstöðu minni við lokaafgreiðslu málsins.