15.05.1981
Neðri deild: 95. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4491 í B-deild Alþingistíðinda. (4532)

290. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Alþingi er löggjafarvald, en ekki framkvæmdavald. Það er að sjálfsögðu ekki heimilt að takmarka lög með reglugerðum. Ef lög eru takmörkuð annaðhvort með reglugerð eða framkvæmd hljóta menn að geta fengið leiðréttingar sinna mála fyrir þar til gerðum yfirvöldum, sem eru í þessu tilfelli í fyrsta lagi ríkisskattanefnd og síðan dómstólar. Ég segi því nei.