15.05.1981
Neðri deild: 95. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4492 í B-deild Alþingistíðinda. (4533)
290. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég lýsi vonbrigðum yfir því, að formaður Verkamannasambands Íslands skuli ekki hafa þrek til þess að standa með sínum umbjóðendum. Ég lýsi jafnframt vonbrigðum mínum yfir því, að formaður fjh.- og viðskn. skuli ekki hafa smekk fyrir því, að betur fer á því að lög Alþingis séu afdráttarlaus en að skattborgararnir þurfi að standa í löngum biðröðum fyrir framan dyr ríkiskattanefndar og Hæstaréttar. Ég segi já.