15.05.1981
Neðri deild: 95. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4492 í B-deild Alþingistíðinda. (4535)
290. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Þess eru mörg dæmi, að rn. takmarki lög með reglugerðum. Það er hægt að nefna um það fjölmörg dæmi og það dæmi, sem er t. d. hvað efst í mínum huga, er dæmi um það að menntmrn. takmarkaði á sínum tíma með reglugerð þá heimild, sem var í grunnskólalögum að ríkissjóður endurgreiddi hluta af tannlækningakostnaði skólabarna, með því að gefa út reglugerð þar sem sagði að sú endurgreiðsla skyldi þó vera takmörkuð við tiltekna upphæð sem svaraði því að borað væri í eina tönn.
Vegna þess að slík dæmi eru fjölmörg finnst mér full ástæða til þess að setja ákvæði í lög eins og hér um ræðir og segi já.