15.05.1981
Neðri deild: 96. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4505 í B-deild Alþingistíðinda. (4589)

292. mál, Þróunarsamvinnustofnun Íslands

Frsm. (Vilmundur Gylfason):

Herra forseti. Það gildir um þetta mál eins og þau fyrri sem hér hafa verið til umr. og komið frá allshn. Nefndin hefur athugað þetta frv., sem var lagt fram í Ed., og leggur til að það verði samþykkt óbreytt. Þetta frv. er liður í aukinni þróunaraðstoð okkar og nm. voru alfarið sammála um að mæla með samþykkt þess.