11.11.1980
Sameinað þing: 16. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 617 í B-deild Alþingistíðinda. (459)
352. mál, úrvinnsla skattframtala vegna ákvörðunar um búmark
Fyrirspyrjandi (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Það mun hafa verið á s.l. vori að þess var getið í einhverjum blaðafregnum — ég man því miður ekki hvar — að við ákvörðun á svokölluðu búmarki, sem kvóti vegna landbúnaðarframleiðslu væri byggður á, hefði verið farið yfir skattaframtöl allra bænda landsins af einhverjum ótilteknum aðilum og m.a. tekið tillit til ýmissa ábendinga einstakra hópa manna, einstakra hópa framteljenda og einstaklinga, sem kynnu að hafa haft áhrif til breytinga á einhverjum niðurstöðum í framtölum viðkomandi aðila með einum eða öðrum hætti. Ég hafði þá þegar samband við ríkisskattstjóra til þess að spyrja hann um þetta mál. Hann tjáði mér að tekið hefði verið ljósrit af öllum skattaframtölum bænda í landinu s.l. þrjú ár, þessi framtöl síðan afhent aðila úti í bæ, eins og ríkisskattstjóri orðaði það, og síðan hefði hans embætti ekki frétt af málinu meir. Ég spurði hann hvort það væri ekki dæmalaust að aðila úti í bæ væru afhent skattaframtöl einstaklinga með þessum hætti til þess hugsanlega að fara yfir og e.t.v. gera einhverjar breytingar þar á, án þess að ríkisskattstjóraembættið væri haft með í ráðum. Ríkisskattstjóri sagðist engin dæmi muna um það.
Ég spurði ríkisskattstjóra að því, hvort hann vissi hvílíkar breytingar, ef breytingar hefðu verið gerðar á þessu. Ríkisskattstjóri vissi það ekki. Ég spurði ríkisskattstjóra hvernig hefði verið með málið farið. Ríkisskattstjóra var ekki kunnugt um það. Ég spurði ríkisskattstjóra að því, hvort hann vissi eitthvað um niðurstöðu af þessum athugunum. Hann vissi ekki neitt, og það kom fram hjá ríkisskattstjóra í samtalinu við mig, að hann teldi mjög óeðlilegt að þann veg væri farið með framtöl manna, hvort sem það væru einstaklingar eða atvinnurekendur, og unnið út frá þeim sem gögnum í slíkum málum án þess að nokkur aðili frá ríkisskattstjóraembættinu væri hafður þar til ráðuneytis og án þess að ríkisskattstjóraembættinu væri með einum eða öðrum hætti gert kunnugt um það, hvers konar athugun hefði farið fram, og þá allra helst ef athugun hefði leitt til einhverra breytinga.
Vegna þessa máls ákvað ég að flytja á þskj. 64 sérstaka fsp. til hæstv. fjmrh. um þetta mál, sem hljóðar svo, með leyfi forseta:
„1. Hvernig var háttað úrvinnslu úr skattaframtölum bænda vegna ákvörðunar um framleiðslukvóta?
2. Voru einhverjar breytingar gerðar í því sambandi á upplýsingum, framsetningu, úrvinnsluatriðum, álagningarstofnum eða niðurstöðum framtalanna, og þá hverjar?
3. Voru skattayfirvöld höfð með í ráðum um úrvinnslu framtalanna, ef ekki, þá hvers vegna?
4. Hefur skattayfirvöldum verið gert viðvart um niðurstöður úrvinnslunnar og þær breytingar eða lagfæringar sem kunna að hafa verið gerðar á atriðum í skattaframtölum í því sambandi?
5. Hafi það verið gert, liggur þá fyrir mat ríkisskattstjóra á því, hvort umræddar breytingar — ef gerðar hafa verið — kunni að geta haft áhrif á álagningu opinberra gjalda á viðkomandi framteljendur?“
Herra forseti. Ég er með þessum fsp. ekki að gera eitt eða neitt til þess að skjóta einhverjum rökum undir það, að þarna hafi eitthvað óeðlilegt átt sér stað, síður en svo. Ég er aðeins að leggja áherslu á það, að mér finnst mjög óeðlilegt að aðili úti í bæ, eins og það var orðað við mig, taki í hendur sér gögn sem eru jafnviðkvæm, ráða jafnmiklu um skattlagningu á öllum þorra landsmanna og framtöl gera, reisi á þeim framtölum einhverjar áætlanir um framleiðslumagn, sem í einhverjum atriðum kunni að vera — án þess að ég viti um það — örðuvísi en þær upplýsingar sem skattayfirvöldum eru gefnar. Ég tel það alveg útilokuð vinnubrögð að framkvæma svona athugun, svona spá um framleiðslumat, öðruvísi en að skattayfirvöld séu jafnan höfð með í ráðum. Þess vegna beindi ég fsp. til hæstv. fjmrh., en ekki til hæstv. landbrh.