15.05.1981
Neðri deild: 96. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4513 í B-deild Alþingistíðinda. (4599)
275. mál, atvinnuleysistryggingar
Frsm. (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Ég vil — með leyfi forseta — svara þeim spurningum sem voru lagðar hér fram.
ASÍ mótmælti þessari breytingu á frv. á þeim forsendum að hér væri um óbilgirni Vinnuveitendasambands Íslands að ræða. Sáttasemjari ríkisins treysti sér ekki til að mótmæla algjörlega að Vinnuveitendasambandið kynni að hafa þarna nokkuð til síns máls. Vinnuveitendasambandið mótmælti því, að ekki væri gengið lengra til móts við yfirlýsinguna sem um var að ræða. Um þetta náðist hreinlega ekkert samkomulag, hv. þm., og það hélt ég að hefði legið fyrir.
Um þessa yfirlýsingu er það að segja, að menn almennt voru sammála um að hún hefði verið gerð á síðustu mínútum margra sólarhringa samningalotu þar sem menn hefðu sjálfsagt verið orðnir örþreyttir og hún hefði þess vegna ekki verið orðuð eins og skyldi. Í stuttu máli: Enginn aðilanna var sammála hinum um túlkun á því plaggi. ASÍ mótmælti því hins vegar alls ekki, að við þau loforð, sem lágu skriflega fyrir því til handa, væri staðið, og gerði enga aths. við það atriði. Það eru allt í því frv. sem hér liggur fyrir.