15.05.1981
Neðri deild: 96. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4515 í B-deild Alþingistíðinda. (4604)

315. mál, Bjargráðasjóður

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til laga um lántöku vegna Bjargráðasjóðs. Eins og fram kemur í nál. kom til fundar við nefndina Magnús Guðjónsson. Nefndin tekur fram í nál. að það sé eðlilegt að lán þessi verði með sömu kjörum og lán Byggðasjóðs, lánstími verði 5 ár og ríkissjóður standi straum af væntanlegum mun á fjármagnskostnaði. Undir þetta rita allir nefndarmenn. Í framhaldi af þessu leggur nefndin til að frv. verði samþykkt.