11.11.1980
Sameinað þing: 16. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 619 í B-deild Alþingistíðinda. (461)

352. mál, úrvinnsla skattframtala vegna ákvörðunar um búmark

Fyrirspyrjandi (Sighvatur Björgvinsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. fjmrh. fyrir svör hans, en vek athygli á því, að enda þótt í viðkomandi lagatexta, sem í var vitnað, sé gert ráð fyrir að Framleiðsluráð landbúnaðarins ákveði þetta búmark á grundvelli skattaframtala, þá er ekkert í þeim lögum sem með einum eða öðrum hætti kæmi í veg fyrir það, að ríkisskattstjóri og fjmrn. væru höfð með í ráðum um þá yfirferð á framtólum hvers einasta bónda í landinu sem lögð var til grundvallar ákvörðun um búmark. Og mér finnst það raunar alveg furðulegt í þessu máli, að Framleiðsluráð landbúnaðarins skuli ekki hafa óskað eftir því og ekki haft fyrir því að láta ríkisskattstjóraembættið, sem afhendir jafnviðkvæm gögn og skattaframtöl manna eru, fylgjast með eða gera því viðvart um niðurstöður.

Við skulum gera okkur grein fyrir því, hv. alþm., að hér er um skattaframtöl heillar atvinnustéttar að ræða.

Hér er um að ræða framleiðendur landbúnaðarvara sem með nákvæmlega sama hætti gætu verið framleiðendur hvaða varnings sem vera skal sem framleiddur er í landinu. Þetta gætu alveg eins verið iðnrekendur t.d. Ríkisskattstjóraembættið og skattstjórar um land allt eru látnir afhenda samtökum, sem eru óbeinlínis í tengslum við þessa tilteknu framleiðendastétt, ljósrit af skattaframtali hvers einasta bónda í öllu landinu. Síðan skýra blöð frá því, að einstaklingar í þessari stétt, jafnvel heilu sveitirnar, hafi mótmælt því, að framleiðslubúmarkið yrði reist á upplýsingum sem í framtölunum komu fram um framleiðslumagn og fleira, öðruvísi en þeim upplýsingum yrði vikið við. Þetta kom fram í blaðafregnum í vor. Engum er kunnugt um niðurstöðuna, engum kunnugt um það, hvort þessar aths. hafa verið teknar til greina. Fjmrn. og ríkisskattstjóri hafa ekki hugmynd um það. Þetta er vítaverð og ámælisverð framkoma.

Ég vil eindregið óska eftir því, bæði við hæstv. fjmrh. og hæstv. landbrh., að þessir ágætu menn beiti sér fyrir því að kanna þetta mál og athuga hvort nokkur sú breyting hefur verið gerð í þessu sambandi á upplýsingum úr framtölum einstaklinga, sem kann að geta haft áhrif á skattlagningu þeirra ef skattayfirvöldum hefði verið gert viðvart. Það nær auðvitað ekki nokkurri átt, ef Alþingi tekur þá ákvörðun með lagasetningu að afhenda þriðja aðila úti í bæ til frekari úrvinnslu jafnviðkvæm atriði og skattaframtöl manna eru, að þá skuli sá aðili geta farið með málið raunverulega nákvæmlega eins og honum sjálfum dettur í hug og jafnvel gert við ákvörðun á framleiðslumagni þær breytingar á þessum framtölum sem honum þessum þriðja aðila úti í bæ, dettur í hug, og það skuli geta gerst án þess að ríkisskattstjóri hafi hugmynd um. Þetta er alveg fáheyrt og að mínu viti algert hneyksli, þó svo að mér detti ekki í hug að eitt eða neitt hafi verið gert í þessu sambandi sem ekki þoli skoðun.