15.05.1981
Efri deild: 103. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4518 í B-deild Alþingistíðinda. (4616)
290. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breyt. á lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Frv. þetta er seint á ferð hér á þingi. Ástæðan er sú, eins og flestum hv. alþm. mun kunnugt, að nokkur atriði í skattalöggjöfinni þörfnuðust nánari athugunar og var beðið eftir rannsókn, sem ríkisskattstjóri stjórnaði, á tölvuútskriftum sem hann hafði pantað í sambandi við nokkur atriði skattalaga. Niðurstöður þessarar könnunar, sem var óhjákvæmileg forsenda þess að unnt væri að ganga frá brtt. við lögin, lágu ekki fyrir fyrr en langt var liðið á marsmánuð. Frv. var svo lagt fram hér á Alþingi í byrjun aprílmánaðar. Vissulega voru nokkrar vonir bundnar við það, að unnt yrði að afgreiða málið fyrir páska, en það tókst ekki, og má nú segja að það hafi verið komið í eindaga að því leyti, að það getur farið að hafa veruleg áhrif á álagningu skatta á þessu ári, miðað við þá fresti sem í lögum eru, ef ekki verður um afgreiðslu málsins að ræða héðan frá Alþingi á næstu dögum.
Í frv., sem lagt var fram í Nd. í aprílbyrjun, voru meginatriðin þessi:
Tekjuskattur til ríkisins er lækkaður sem svarar um 1.5% af brúttótekjum liðins árs hjá framteljendum með almennar launatekjur, þ. e. 10–11 millj. kr. reiknað í gamalli mynt. Skattalækkunin er, eins og kunnugt er, framkvæmd með niðurfellingu 1.5% sjúkratryggingagjalds á tekjur upp að rúmum 6.7 millj. gamalla króna og með hækkun persónuafsláttar og með breytingum skattþrepa í tekjuskatti. Áætluð lækkun álagningar vegna þessarar skattalækkunar nemur um 90 millj. nýkr. eða 9 milljörðum gamalla króna.
Áður en þessi skattalækkun, sem er meginefni frv., var reiknuð út var skapaður svonefndur viðmiðunargrunnur sem skattalækkunin upp á 1.5% er reiknuð út frá. Fyrrnefnd skattalækkun er miðuð við álagningarkerfi sem hefði gefið ríkinu hliðstæðar skatttekjur af almennum launatekjum og var á s. l. ári, að teknu tilliti til verðlags- og launabreytinga. Til þess að fá fram eðlilegan viðmiðunargrunn voru breytingar gerðar á persónuafslætti og skattþrepum, og samsvarar þessi breyting fyrir almennar launatekjur að skattvísitalan væri ákveðin 151 í stað 145 í fjárlögum ársins. Þessi leiðrétting á viðmiðunargrunninum, áður en skattalækkunin er reiknuð, lækkar álagningu tekjuskatts um 32 millj. nýkr. eða 3.2 milljarða gamalla króna.
Þetta er sem sagt meginefni frv., mikilvægasta atriði þess, skattalækkun upp á 1.5% af brúttótekjum liðins árs.
Í frv. eru þar að auki allmörg mikilvæg atriði, en eins og hv. þm. sjá er þar bæði um stór atriði og smá að ræða. Frv. er upp á 33 frumvarpsgreinar, en hér er ekki ástæða til að dvelja við nema örfá mikilvæg efnisatriði.
Í öðru lagi er lagt til að lægsti fastur frádráttur samkv. 30. gr. skattalaga, sem veittur er einhleypingum, verði 75% hærri hjá einstæðum foreldrum og er það í samræmi við megintillögur nefndar sem fjmrh. skipaði s. l. haust til að athuga skattalega stöðu einstæðra foreldra.
Í þriðja lagi er rétt að nefna eignarskatt lágtekjufólks. Lagt er til í þessu frv. að bættur verði hagur lágtekjufólks, sem býr í skuldlitlu eigin húsnæði, með því að nýta megi ónýttan persónuafslátt til greiðslu eignarskatts. Það eru einkum elli- og örorkulífeyrisþegar sem munu njóta góðs af þessu ákvæði. Einnig er lagt til að lækka megi eignarskatt þeirra sem litlar tekjur hafa vegna aldurs, veikinda eða slysa.
Fjórða mikilvæga atriðið, sem ég vil nefna, er ákvæði um frádráttarbærni húsaleigu. Lagt er til að helmingur húsaleigu vegna íbúðar til eigin nota verði frádráttarbær við álagningu tekjuskatts. Þetta ákvæði gildir um greidda húsaleigu á því ári sem nú er að líða og verður því leigjendum til hagsbóta við álagningu skatts á næsta ári. Þess er vænst, að húsaleiga verði betur fram talin eftir þessa breytingu á skattalögunum.
Í fimmta lagi er mikilvægt ákvæði í frv. sem varðar refsivexti. Lagt er til að vangreiðsla á hluta af sköttum valdi ekki því, að allur ógreiddur skattur falli þegar í gjalddaga ásamt þungum dráttarvöxtum á alla upphæðina. Þykir núgildandi regla svo ósanngjörn, þótt hún hafi verið í lögum um margra ára skeið, að ekki verði lengur við unað. Þess vegna er sem sagt lagt til að aðeins sá hluti greiðslunnar, sem fallinn er í gjalddaga, safni á sig dráttarvöxtum, en ekki allar eftirstöðvarnar, eins og nú er gert ráð fyrir.
Ég hef nefnt fimm mikilvægustu atriði þessa skattafrv., en tvö önnur ákvæði voru í þessu frv. sem bæði tóku verulegum breytingum við meðferð málsins í Nd. Þau fimm, sem ég nefndi, tóku hins vegar engum breytingum og yfirleitt ekki aðrar greinar frv. efnislega séð en þær sem ég nú ætla að nefna og varða annars vegar reiknuð laun og hins vegar fyrningar.
Í frv., sem ríkisstj. lagði fram í aprílbyrjun, var gert ráð fyrir því, eins og kunnugt er, að 59. gr. tekjuskattslaganna um reiknuð laun atvinnurekenda yrði felld niður. Þessi grein, eins og hún er í núgildandi lögum, er að flestra dómi meingölluð. Hún er mjög ósveigjanleg að efni til og sennilega er það ástæðan til þess, að hún hefur verið framkvæmd af skattstjórum mjög ósveigjanleg — og það sem verra er: ljóst þykir að hún hafi verið nokkuð mismunandi framkvæmd eftir skattumdæmum. Auk þess þótti þessi regla ákaflega ósanngjörn gagnvart bændum þar sem viðmiðunartekjur þeirra voru ákvarðaðar mjög háar og var þar bæði miðað við dagvinnuþátt í verðlagsgrundvelli landbúnaðarvara og yfirvinnu.
Margir hafa ímyndað sér að 59. gr. skattalaganna væri sérstaklega til þess fallin að koma í veg fyrir skattsvik, en svo er ekki. Önnur ákvæði skattalaga eru fremur ætluð í því skyni og þá sérstaklega 96. gr. skattalaga. En 59. gr. gerir ráð fyrir því, að allir þeir, sem stunda vinnu við eigin atvinnurekstur, ætli sér laun samsvarandi þeim launum sem launþegar hafa hjá hliðstæðum fyrirtækjum. Vandamálið verður þá það, að þessi litlu fyrirtæki kunna að vera rekin með verulegu tapi. Eftir sem áður gerir greinin ráð fyrir að viðkomandi atvinnurekandi reikni sér þessi fastákveðnu laun, og breytir engu þótt það hafi þær afleiðingar að tapið af rekstrinum verði þeim mun meira. Þetta atriði hefur mjög verið gagnrýnt. Menn hafa bent á að verið væri að leggja skatt á tekjur sem aldrei hefðu orðið til.
Vissulega má segja að þetta sé gert hjá fyrirtækjum sem eru rekin í félagsformi vegna þess að þar er öllum ætlað að reikna sér laun. En ég tel að í raun og veru sé ákaflega hæpið að jafna þessum tveimur fyrirtækjaformum algjörlega saman vegna þess að fyrirtæki, sem rekin eru í eigin nafni atvinnurekenda, eru yfirleitt lítil fyrirtæki sem þola það ekki að verið sé að skattleggja tekjur sem ekki hafa orðið til, meðan aftur á móti fyrirtæki, sem eru stærri í sniðum, eins og fyrirtæki í félagsformi eru yfirleitt, þola frekar að færa milli ára af þessari ástæðu.
Ég féllst á það við undirbúning þessa frv. að afnema 59. gr. með öllu út úr lögunum, enda taldi ég að unnt væri að styðjast við 96. gr. eftir sem áður hvað varðar eltingarleik við þá atvinnurekendur sem hugsanlega telja ekki tekjur sínar fram með eðlilegum hætti eða á tortryggilegan og ófullnægjandi hátt.
Niðurstaðan hefur nú orðið sú í Nd., að 59. gr. verði tekin inn aftur og þá verulega breytt frá því sem áður var. Þar er ekki gert ráð fyrir að viðmiðunartekjur bænda séu miðaðar við allan vinnuþáttinn í verðlagsgrundvelli landbúnaðarins, heldur einungis 2/3 hluta vinnuþáttarins.
Eins er ljóst að öryrkjar og aldraðir geta ekki beðið tjón af notkun þessarar reglu, og yfirleitt á það að vera tryggt eftir þá breytingu, sem gerð hefur verið á greininni, að ekki sé verið að leggja skatt á peningatekjur sem ekki hafa orðið til. En vissulega má segja að eins og greinin er nú eftir meðferð málsins í Nd. sé hugsanlegt að lagður sé skattur á fyrirtæki, sem rekin eru í nafni einstaklinga, með þeim hætti, að fyrningarnar séu þá lækkaðar að sama skapi eða tekjufærsla vegna skulda, því að í greininni, eins og hún er nú eftir breytinguna sem orðin er eftir umr. í Nd., er gert ráð fyrir að ákvörðun skattstjóra samkv. þessari grein megi aldrei mynda tap sem er meira en nemur samanlögðum almennum fyrningum samkv. 38. gr. og gjaldfærslu samkv. 53. gr.
Þegar ákveðið var að fella niður 59. gr., eða gera till. til Alþingis um að hún yrði felld niður, var jafnframt talið óhjákvæmilegt að taka inn aðra grein í staðinn sem takmarkaði fyrningar í þeim tilvikum þegar reksturinn skilaði litlum sem engum tekjum og þar með engum skattgreiðslum í ríkissjóð. Þess vegna varð til 17. gr. frv. sem gerir ráð fyrir að útgjöld vegna fyrningar í atvinnurekstri séu lækkuð um allt að 10% ef hreinar tekjur í rekstrinum eru undir 5% af brúttótekjum. Eins og mönnum er kunnugt greiða mörg fyrirtæki lítinn sem engan tekjuskatt, og var markmiðið með þessu ákvæði að bókaður hagnaður yrði tekinn til endurskoðunar og fyrningarútgjöldin lækkuð ef hagnaður reyndist undir ákveðnu lágmarki.
Í raun og veru má segja að eðli þessa ákvæðis sé ákaflega keimlíkt ákvæðinu í 59. gr., eins og það er nú orðið eftir þær breytingar sem Nd. hefur gert á þessu ákvæði, vegna þess að þar er einmitt gert ráð fyrir að fyrningar séu lækkaðar til þess að ná fram reiknuðum launum hjá mönnum sem reka fyrirtæki í eigin nafni, en hér var um að ræða ákvæði sem áttu ekki einungis við um þessi fyrirtæki, heldur líka um alla lögaðila.
Niðurstaðan varð sú í Nd., að jafnhliða því sem 59. gr. var tekin inn aftur var þetta ákvæði fellt niður. Það var ekki gert með mínu samþykki eða eftir minni till. og greiddi ég því ekki atkv., en það er önnur saga. Ákvæðið var fellt út úr frv. og 17. gr. er því horfin þaðan.
Þetta eru þær tvær meiri háttar breytingar sem komu fram í Nd., en nokkrar fleiri mætti nefna og þá sérstaklega það, að námsfrádráttur, sem ekki nýtist námsmönnum meðan á námi stendur, er frádráttarbær í 5 ár eftir að námi lýkur, en þó aðeins sá hluti námsfrádráttarins sem ekki nýtist meðan á náminu stendur. Er þetta að sjálfsögðu töluvert ólíkt því sem áður gilti.
Eins var samþykkt m. a. í Nd. að launagreiðendur skyldu ekki halda eftir meira en 75% af heildarlaunagreiðslum hverju sinni til greiðslu á gjöldum samkv. lögum þessum og gjöldum samkv. IV. kafla laga nr. 73 1980. Þessi ákvæði hvor tveggja tel ég vera til mikilla bóta á frv. og raunar allar þær frumvarpsgreinar sem samþykktar hafa verið.
Ég sé ekki, herra forseti, ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál að svo stöddu, en legg til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. fjh.- og viðskn.