16.05.1981
Efri deild: 104. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4524 í B-deild Alþingistíðinda. (4623)

297. mál, tilraunastöð Búnaðarsambands Suðurlands

Frsm. (Egill Jónsson):

Herra forseti. Landbn. Ed. hefur fjallað um frv. til l. um Tilraunastöð Búnaðarsambands Suðurlands og Rannsóknastofnunar landbúnaðarins eins og það liggur fyrir, og hafði nefndin í þeim efnum samband við forráðamenn Búnaðarsambands Suðurlands sem mættu á fundi hjá nefndinni og gáfu þar upplýsingar.

Í Laugardælum hefur verið starfandi í 27 ár tilraunastöð sem hefur verið rekin af Búnaðarsambandi Suðurlands, en leigutíminn var einungis 25 ár. Það kom í ljós að ekki náðist samkomulag um framhaldsleigu nema þá til fárrá ára í senn og jörðin var ekki gefin föl til kaups. Þannig leit því út að Búnaðarsambandið mundi lenda í erfiðleikum með að fá samastað fyrir þessa starfsemi til langs tíma. Þá gerðist það að þrjú systkini, Jón Árnason og tvær systur hans, Ingileif og Sigríður, gáfu Búnaðarsambandinu jörðina Stóra-Ármót sem liggur að Laugardælum og er búin miklum landkostum, bæði að því er varðar ræktunarskilyrði, stærð og hlunnindi og væntanlega líka aðstæður til að afla heits vatns. Þarna voru komnar upp í hendur á Búnaðarsambandinu hinar ákjósanlegustu aðstæður, þær er best varð á kosið, til að flytja starfsemina frá Laugardælum og byggja hana upp í Stóra-Ármóti með þá reynslu að baki, sem fengist hefur með störfum Búnaðarsambandsins í Laugardælum, til viðbótar þeirri þekkingu sem nútímarannsóknir hafa leitt af sér.

Búnaðarsamband Suðurlands hefur þegar hafið nokkrar framkvæmdir að Stóra-Ármóti. Þar hefur verið endurbyggt stórt íbúðarhús og hefur kostnaður við þær endurbætur numið í kringum 15 millj. gkr. Hlaða var byggð á s. l. ári sem er 200 rúmmetrar að nýtanlegu rými fyrir þurrhey, og er hún sérstaklega byggð með það fyrir augum að þar sé hægt að gera ýmsar samanburðarrannsóknir á hinum ýmsu aðferðum við verkun þurrheys. Hins vegar vantar að byggja viðbótarheyrými fyrir vothey og að sjálfsögðu allar aðrar útihúsabyggingar sem nauðsynlegar eru fyrir hina áformuðu starfsemi að Stóra-Ármóti. Nú er verið að vinna að reikningu á tilraunafjósi og er þess jafnvel vænst, að hægt verði að byggja grunn þeirrar byggingar á þessu hausti.

Eins og menn sjá af þessu eru áform þarna stór. Út af fyrir sig er mjög mikilvægt að sú reynsla hefur fengist af störfum Búnaðarsambands Suðurlands, öll þau ár sem það hefur rekið tilraunastöðina í Laugardælum, að því er ákaflega vel treystandi. Því er stórum auðveldara og það gerir reyndar kleift fyrir Alþingi að ganga til móts við þau verkefni sem þar eru einmitt áformuð.

Mér er vel kunnugt um að tilraunastarfsemi í landbúnaði hefur legið undir nokkurri gagnrýni og hefur reyndar svo verið um nokkurt skeið. Sú umræða hefur á vissan hátt frekar fengið byr á síðari árum vegna þeirrar umræðu sem hefur farið fram í þjóðfélaginu um framleiðsluvandamál í landbúnaði. Ég vil undirstrika það hér alveg sérstaklega, að þó að atvinnuvegir — landbúnaðurinn í þessu tilviki — lendi í erfiðleikum má að sjálfsögðu með engum hætti mæta því með því að draga úr framförum heldur með hinu gagnstæða. það verður þá að teita nýrra leiða til að skapa aðstæður til bættrar afkomu með öðrum hætti.

Að þessu leyti hefur starfsemin hjá Búnaðarsambandi Suðurlands þó sérstöðu vegna þess að búreksturinn þar hefur aldrei verið rekinn á ábyrgð hins opinbera. Búreksturinn, sem hefur þar lagt grundvöll að tilraunastarfseminni, hefur verið áhætta þeirrar stofnunar og Búnaðarsambandið hefur borið ábyrgð á rekstri Laugardælabúsins. Í þeim efnum eru ekki gerðar tillögur um neinar breytingar frá því sem verið hefur. Aftur á móti er hér kveðið á um nánara samstarf á milli tveggja rannsóknaraðila, þ. e. Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og tilraunastöðvarinnar í Laugardælum, og með þessu frv. er starfsemin í heild tengd með formlegum hætti ákveðnar við tilraunaverkefnin í landinu almennt séð.

Það frv., sem hér liggur fyrir, hefur með þessum orðum að verulegu leyti verið skýrt. Þó þykir mér vert að undirstrika hér ákvæði 4. gr. frv. þar sem segir að þátttaka ríkissjóðs í kostnaði við mannvirkjagerð og rekstur ákvarðist af fjárveitingum hverju sinni. Hér er að sjálfsögðu ekki um skuldbindandi ákvörðun af hendi ríkissjóðs að ræða og hlýtur að metast við fjárlagagerð hverju sinni og þá að sjálfsögðu út frá þeim heildarviðfangsefnum sem tekin eru til athugunar og þá til lengri tíma. Þær framkvæmdir, sem þegar hafa verið unnar í Stóra-Ármóti, bæði varðandi ræktun og mannvirkjagerð, hafa að öllu leyti verið kostaðar af Búnaðarsambandi Suðurlands.

5. gr. frv. er hins vegar skuldbindandi, en þar er kveðið á um að tilraunastöðin skuli hafa einn sérfræðing og einn tilraunamann starfandi og að laun þeirra skuli greidd af Rannsóknastofnun landbúnaðarins, sem eins og allir hér vita fær fjármagn sitt frá ríkissjóði. Hér er þó ekki um verulega breytingu að ræða frá því sem verið hefur því að tilraunastjórinn í Laugardælum hefur verið launaður með þessum hætti og Laugardælastöðin hefur líka fengið sérfræðilega aðstoð frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins þar sem einn sérfræðingur þeirrar stofnunar hefur haft yfirumsjón og skipulagt rannsóknarverkefnin í Laugardælum. Þetta er nánast útfærsla á því sem fyrir er. Ég undirstrika það, svo sem ég hef sagt hér áður, að það verður ekki breyting á ábyrgð Búnaðarsambandsins gagnvart þessum rekstri frá því verið hefur.

Það, sem ég hef nú sagt og skýrt, hef ég að sjálfsögðu mælt hér í nafni nefndarinnar. Ég ætla hins vegar að segja það frá mínu brjósti, að ég hefði talið að 6. gr. hefði verið betri ef hún hefði verið með öðrum hætti, en þar er kveðið á um stjórn tilraunastöðvarinnar í Laugardælum. Þar er gert ráð fyrir að einn stjórnarmanna sé valinn af Búnaðarsambandi Suðurlands, annar af Rannsóknastofnun landbúnaðarins og sá þriðji skipaður af landbrh. Ég hefði talið það meiri styrk fyrir þessa starfsemi ef Búnaðarsambandið hefði borið ábyrgð á tveimur mönnum, skipað tvo menn, og með tilliti til þeirra ábyrgðar, sem það hefur á rekstri, hefði ég talið þá skipan mála eðlilegri. Ég tel líka að tilrauna- og rannsóknarþættinum væri fyllilega borgið með þátttöku forstjóra Rannsóknastofnunar landbúnaðarins í stjórn tilraunastöðvarinnar.

Reynslan á eftir að skera úr um hvaða form verður heppilegast í þessum efnum. Við þær aðstæður, sem nú eru, fylgir þessu að mínu mati aukin áhætta, því að það er mjög gott samband á milli Rannsóknastofnunarinnar og Laugardælabúsins, en ég er sannfærður um að Búnaðarsamband Suðurlands mun vinna og standa að þessu verkefni sem sínu eins og það hefur gert fram til þessa dags.

Að lokum, herra forseti, hafa nm. skrifað undir nál. og er ekki ágreiningur um afgreiðslu málsins í landbn. Ed. Alþingis.