16.05.1981
Neðri deild: 97. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4531 í B-deild Alþingistíðinda. (4635)
190. mál, almannatryggingar
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Án þess að orðlengja frekar þetta mál er rétt að upplýsa vegna þeirra ummæla hv. þm., sem flytur þessa till., að ríkisstj. muni nú ekkert um þetta eftir að búið sé að fella niður sjúkratryggingagjald af tekjum undir 6.750 gömlum millj., að sennilega mundi samþykkt þessarar till. hafa í för með sér u. þ. b. 3 milljarða gkr. tekjutap fyrir ríkissjóð.
Ég vil líka benda mönnum á það, að ef menn eru á móti því að sjúkratryggingagjald sé lagt á hærri tekjur fella menn að sjálfsögðu frv. í heild og lögin. Þá er ekkert sjúkratryggingagjald lagt á. Að fella niður þessa einu grein, 3. tölul., en láta hitt standa væri aftur á móti algjör meiningarleysa. Þá stæðu eftir skattalög án þess að í þeim væri nokkuð getið um hvert gjaldið væri sem ætti að leggja á.