16.05.1981
Efri deild: 105. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4541 í B-deild Alþingistíðinda. (4682)
275. mál, atvinnuleysistryggingar
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Hér er á ferðinni frv, sem flutt er í framhaldi af yfirlýsingu ríkisstj. 27. okt. s. l. við gerð kjarasamninga. Frv. hefur hefur í för með sér ýmsar veigamiklar breytingar á skipulagi Atvinnuleysistryggingasjóðs og starfsreglum hans.
Í 16. gr. frv. er kveðið á um það, hún er um þá sem hafa öðlast rétt til atvinnuleysisbóta, að til þess að öðlast rétt til atvinnuleysisbóta skuli maður hafa unnið a. m. k. 425 dagvinnustundir í tryggingaskyldri vinnu á síðustu 12 mánuðum. Kemur þetta í stað ákvæða gildandi laga um 1032 dagvinnustundir í heilsdagsvinnu og 516 dagvinnutíma í hálfsdagsvinnu.
Í öðru lagi er gert ráð fyrir því í frv. þessu, að sá, sem sækir námskeið eða gengur undir starfsþjálfun til þess að öðlast hæfni í starfi sínu eða til að stunda ný störf, njóti á meðan bóta í allt að sex vikur ef atvinnuleysi hefði skapað honum rétt til slíkra bóta þegar starfsþjálfunin eða dvölin á námskeiðinu hófst. Hér er um að ræða ákaflega þýðingarmikið ákvæði að mínu mati sem skapar möguleika á því að beita Atvinnuleysistryggingasjóði til að undirbúa fólk til endurmenntunar og endurþjálfunar þegar um er að ræða t. d. flóknar tæknibreytingar í störfum sem menn hafa stundað um árabil.
Í þriðja lagi gerir 20. gr. frv. ráð fyrir því, að umsækjandi bóta skuli skrá sig vikulega hjá vinnumiðlun. Kemur þetta í stað ákvæða gildandi laga um daglega skráningu. Einnig er í greininni nýmæli þess efnis, að stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs geti við tilteknar kringumstæður ákveðið að skráning fari fram oftar.
Í 22. gr. er fjórða meginbreytingin. Þar er gert ráð fyrir því, að samfelldum bótadögum verði fjölgað úr 130 í 180 á 12 mánaða tímabili.
Í 23. gr. er að finna ákvæði um ákvörðun dagpeninga. Þar er gert ráð fyrir að dagpeningar verði á bilinu fjórðungur til fullra launa samkv. efsta starfsaldursþrepi 8. flokks Verkamannasambands Íslands. Að auki eru barnadagpeningar 4% nefndra launa fyrir hvert barn. Loks er ákveðið að greiða skuli iðgjald til lífeyrissjóðs af bótunum. Greiðir bótaþegi 4% og Atvinnuleysistryggingasjóður 6%.
Sjötta meginbrtt. er sú, að þar er um að ræða nýjar reglur að því er varðar ákvörðun bótaréttar hvers umsækjanda. Þar er miðað við dagvinnustundafjölda á síðustu 12 mánuðum, eins og ég sagði áðan. Hámarksbætur greiðast þegar dagvinnustundir eru 1700 eða fleiri, en lágmarksbætur þegar þær eru 425.
Í sjöunda lagi er gert ráð fyrir því í frv. þessu, að ríkissjóður geti ábyrgst greiðslur úr sjóðnum ef hann þrýtur fé. Þá er vert að vekja sérstaka athygli á því, að felld er niður viðmiðun við tekjur maka eins og verið hefur í Atvinnuleysistryggingasjóði.
Í breytingum, sem gerðar voru í hv. Nd., var tekið tillit til hugmynda sem fram höfðu komið, ég trúi í þessari deild, frá hv. þm. Lárusi Jónssyni og fleiri kannske, varðandi það, að heimilt sé að veita ákveðinn stuðning úr Atvinnuleysistryggingasjóði ef um er að ræða mikið og víðtækt atvinnuleysi af völdum náttúruhamfara, t. d. hafíss er lokar höfnum á stórum landsvæðum. Þessi breyting var gerð samhljóða í Nd., og á það í rauninni við um allar þær breytingar sem þar voru gerðar nema eina. Sú breyting snertir ákvörðun iðgjalds til Atvinnuleysistryggingasjóðs og þó öllu heldur iðgjaldsgrunninum.
Í frv. ríkisstj. var gert ráð fyrir að atvinnurekandi greiddi iðgjald til Atvinnuleysistryggingasjóðs er væri 1% af útborguðu vikukaupi fyrir dagvinnu samkv. 8. launaflokki A. Verkamannasambands Íslands, efsta starfsaldursþrepi. Við meðferð málsins í hv. Nd. komu fram ábendingar um það frá Vinnuveitendasambandi Íslands og fleiri aðilum að ríkisstj. hefði heitið því að hækka ekki tilkostnað atvinnuveganna vegna framgangs þessa máls hér á Alþingi. Í þessum efnum vitnuðu atvinnurekendasamtökin til yfirlýsingar sem undirrituð hafði verið í umboði nokkurra ráðh. við frágang kjarasamninga. Í þeirri yfirlýsingu var í raun og veru ekki verið að tala um neitt annað en iðgjaldsprósentuna sjálfa. Það veit ég vegna þess að ég átti aðild að því að semja og setja saman og ganga frá þessari yfirlýsingu. Í umræðum um þetta mál var aldrei minnst á það, við hvaða taxta nákvæmlega ætti að miða. Það var mál sem við áttum í raun og veru eftir að gera upp. Þessar ábendingar hins vegar, sem komu fram í hv. Nd., höfðu í för með sér að menn töldu óhjákvæmilegt að taka nokkurt tillit til þeirra. Vinnuveitendasambandið gerði kröfu um að miðað væri við 6. taxta, en það er í raun og veru algjör lágmarkstaxti, nánast að segja unglingataxti. Það var tillaga Vinnuveitendasambandsins. Niðurstaðan í hv. heilbr.- og trn. Nd. var sú að hafna í rauninni þessari ósk. Í staðinn varð í n. samstaða um að leggja til að þarna væri miðað við 8. taxta neðsta starfsaldursþrep eða byrjunarlaun. Með þessum hætti var málið afgreitt úr hv. Nd. til þessarar deildar. Ég er þeirrar skoðunar, að það sé í rauninni ákaflega mikilvægt atriði að tryggja betur en nú er gert fjárhag og stöðu Atvinnuleysistryggingasjóðs. Ég hef áhyggjur af henni eins og hún er. Ég held hins vegar að það sé í raun og veru ákaflega þýðingarmikið að við náum þessum miklu breytingum á skipan Atvinnuleysistryggingasjóðs fram nú hið fyrsta, jafnvel þó að tæpt sé með iðgjaldsprósentuna eins og er. En taka verður það mál upp í kjarasamningum síðar á þessu ári og öðrum viðræðum stjórnvalda og verkalýðshreyfingar, með hvaða hætti hugsanlegt sé að tryggja betur en nú er gert stöðu Atvinnuleysistryggingasjóðs. Enda þótt þessi sé mín skoðun og hafi verið, sem ég vildi láta koma hér fram úr ræðustól Alþingis, á þessu iðgjaldi Atvinnuleysistryggingasjóðs og ég hafi flutt frv. svona sem stjfrv. í öndverðu, taldi ég mér skylt og eðlilegt af mér sem ráðh. í þessum málaflokki að reyna að stuðla þarna að samkomulagi, og á því byggðist líka sú niðurstaða sem varð í hv. Nd. Ég vænti þess, herra forseti, að viðtökur þessa frv. verði ekki síður góðar í þessari deild en í Nd.
Ég legg til að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til heilbr.- og trn. og 2. umr.