19.05.1981
Efri deild: 110. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4574 í B-deild Alþingistíðinda. (4761)

290. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Þetta frv. hefur lengi verið til meðferðar hér á Alþingi og fjh.- og viðskn. beggja deilda unnu að þeim breytingum, sem frv. hefur tekið í meðferð þingsins. Við umr. í Nd. komu fram af hálfu formanns fjh.- og viðskn. þær meginástæður sem liggja að baki þeim breytingum, sem nefndirnar í heild standa að, og þeim sjónarmiðum sem við stuðningsmenn ríkisstj. viljum lýsa í tengslum við afgreiðslu þessa frv. Mér finnst óþarfi að vera að endurtaka þau sjónarmið hér, en læt það aðeins koma fram að meiri hl. fjh.- og viðskn. þessarar deildar leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt eins og það kemur frá Nd., en aðrir nm. hafa skilað sérstökum nál. Þó ber nú að hafa það í huga að Alþfl.-menn og Sjálfstfl.-menn í Nd. hafa átt verulegan hlut að því að búa frv. í þann búning sem við tökum afstöðu til hér. Það skapar því ekki rétta mynd af afstöðu manna til þessa máls að nefndin skuli hafa klofnað í minni og meiri hluta í þessu máli, en við skulum ekki vera að gera stóra hluti úr því. Það er sjálfsagt að stjórnarandstaðan skeri sig frá við og við a. m. k.