19.05.1981
Efri deild: 110. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4579 í B-deild Alþingistíðinda. (4763)

290. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. 2. minni hl. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Það frv., sem hér er til umr., í þeim búningi sem það hér birtist okkur, er í mörgum meginatriðum frábrugðið því frv. sem hæstv. fjmrh. lagði fram á sínum tíma. Um ýmsar þær breytingar, sem gerðar hafa verið, ríkti frá upphafi alger samstaða eða lítill sem enginn ágreiningur milli stjórnmálaflokkanna hér á Alþingi. Það gildir t. d. um almennar leiðréttingar og umorðanir sem reynslan af framkvæmd nýju skattalaganna leiddi í ljós að væru nauðsynlegar. Það gildir líka um ýmsar ívilnanir og leiðréttingar á skattlagningu ákveðinna hópa, þó að í vissum tilvikum höfum við fulltrúar Alþfl. talið að lengra ætti að ganga í þeim efnum.

Við sættum okkur við og teljum viðunandi að fá niðurfellingu gildandi ákvæða um skattskyldan eignaauka af aukavinnu, sem maður leggur fram utan venjulegs vinnutíma við byggingu eigin íbúðarhúsnæðis, og heimild til frádráttar á helmingi greiddrar húsaleigu fyrir íbúðarhúsnæði til eigin nota svo og um ívilnun í eignarskatti vegna skerts gjaldþols. Hins vegar höfum við talið að koma hefði átt betur til móts við einstæða foreldra en gert hefur verið í þessum tillögum ríkisstj., og er þó með þeim stigið verulegt skref í þá áttina. Það verður að teljast árangur af þeim málflutningi sem við Alþfl.-menn höfðum uppi hér fyrir ári, þar sem við sýndum fram á það með skýrum dæmum, að frv. hæstv. fjmrh. þá mundi íþyngja stórum hluta einstæðra foreldra. Hæstv, ráðh. fékkst þá ekki til þess að ljá þeim rökum eyra þó óvefengjanleg væru. En það var skipuð nefnd til þess að fara ofan í þessi mál og í sannleika sagt staðfesti hún allan málflutning Alþfl. að því er varðaði skattlagningu einstæðra foreldra og íþyngingu á skattbyrði á stórum hópi þeirra. Þannig tel ég að sá tillöguflutningur og sá málflutningur, sem Alþfl. hafði uppi í þessum efnum, hafi skilað verulegum árangri til hagsbóta fyrir hóp af fólki sem stendur frekar höllum fæti í þjóðfélaginu svo ekki sé sterkar að orði kveðið.

Það má segja að þriðja meginefni frv., eins og það kom frá hæstv. fjmrh., hafi verið fráhvarf frá einu af meginatriðum gildandi skattalaga, og kannske var þetta eina meiri háttar stefnumótun ríkisstj. utan þess að halda uppi mikilli skattpíningu í landinu. Ég á hér við till. í frv., eins og það birtist frá fjmrh., um niðurfellingu reiknaðra launa til þeirra sem starfa við eigin atvinnurekstur eða hafa sjálfstæða starfsemi með höndum, — reiknuð laun sem taki mið af endurgjaldi fyrir sambærilegt starf sem viðkomandi hafði fengið sem launþegi hjá öðrum.

Það er álit og hefur verið álit okkar þm. Alþfl., að þetta ákvæði gildandi laga um reiknaðar tekjur manna, sem stunda eigin atvinnurekstur, sé og hafi verið eitt af mikilsverðustu og þörfustu ákvæðum hinna nýju skattalaga, þeirra sem nú eru í gildi. Alþfl. hefur um árabil talið að skilja beri milli atvinnurekstrarmanna annars vegar og einkabúskapar þeirra hins vegar, og þetta ákvæði um reiknuðu launin er ein meginforsendan fyrir því, að slíkt sé unnt. Þetta er í rauninni stórmerkilegt nýmæli í íslenskri skattalöggjöf og reyndar þótt víðar væri leitað, og þm. Alþfl. studdu mjög eindregið þessar umbætur þegar þær voru lögleiddar árið 1978.

Hæstv. fjmrh. lagði hins vegar til í frv. sínu að þessi ákvæði yrðu felld úr lögum, og það gerði hann án þess að geta rökstutt þá till. með öðru en því að benda á nokkra framkvæmdalega misbresti og annmarka sem orðið höfðu vegna þess að undirbúningur álagningarinnar var seint á ferðinni vegna seinlætis ríkisstj. við að gera till. um nauðsynlegar breytingar á skattamálunum þá.

Alþfl. tók þegar í stað eindregna afstöðu gegn till. ráðh. um niðurfellingu hinna reiknuðu launa, og þingflokkur Alþfl. var eini flokkur þingsins sem það gerði. Hann lét andstöðu sína koma fram þegar í stað, bæði í nefndarstörfum og eins við 1. umr. um málið í Nd. Fulltrúar Alþfl. hafa svo unnið að því í fjh.- og viðskn. í umboði flokksins að ná samstöðu um að efnisatriði gildandi laga héldust, þó þannig að sjálfsögðu að taka tillit til þeirra lagfæringa sem nauðsynlegt væri að gera í ljósi reynslunnar. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að undir formennsku hv. þm. Halldórs Ásgrímssonar náðist samkomulag milli allra nm. um að hafna þessari till. fjmrh. Nm. í fjh.- og viðskn. voru sammála um að leggja til að till. í frv. ríkisstj. um afnám reiknuðu launanna yrðu felldar, en lagagreinar um umreiknuðu launin yrðu nokkuð umorðaðar, ekki síst til þess að tryggja samræmdari og eðlilegri framkvæmd, en án þess að megintilgangi ákvæðanna væri haggað. Það er vitaskuld okkur Alþfl.-mönnum mikið ánægjuefni, að samkomulag skuli hafa orðið um að hrinda þessari tilraun fjmrh. til að afnema þessi ákvæði um reiknaðar tekjur manna sem stunda eigin atvinnurekstur samkv. 59. gr. tekjuskattslaganna. Við teljum mjög mikilvægt að þetta skyldi takast.

Ég skal svo ekki fjölyrða frekar um þetta, en tel að það sé mikið hagsmunamál fyrir alla alþýðu þessa lands að þessari tilraun skyldi verða hrundið, og ég fagna því, að það skyldi takast svo víðtæk samstaða um það.

Á hinn bóginn er það svo með ákvæði skattalaganna eins og fulltrúar ríkisstj. vilja standa að þeim varðandi skattstiga og persónuafslátt, að þau fela í sér áframhaldandi skattpíningu. Með samþykkt á þessum skattstiga ríkisstj. er ekki tryggður kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna, eins og ríkisstj. hafði þó heitið verkalýðshreyfingunni og þar með öllum launþegum þessa lands. Það er vitaskuld með öllu óviðunandi að þannig skuli vera staðið að máli af hálfu ríkisstj.

Í samræmi við það markmið að standa við þetta heit og treysta kaupmátt ráðstöfunartekna heimilanna í því óvissuástandi, sem nú ríkir, og draga úr tekjuskattsheimtunni samkv. stefnumörkun Alþfl., flyt ég till. um breyt. á ákvæðum laganna um skattstiga og persónuafslátt eins og segir í nál. frá mér. Varðandi grg. með þessum till. vísast að öðru leyti til nál. fulltrúa Alþfl. í fjh.- og viðskn. Nd.

Það má segja að umr. um skattstigann eigi sér nokkurn aðdraganda. Í skattstigafrv., sem lagt var fram af minnihlutastjórn Alþfl. árið 1980, var gert ráð fyrir að tekjuskattur af almennum launatekjum yrði felldur niður í tveimur jöfnum áföngum á tveimur árum. Samkv. till. Alþfl. í frv. um skattstiga og persónuafslátt frá 1980 var gert ráð fyrir að meðallaunþegafjölskylda yrði tekjuskattslaus í tveimur jafnstórum áföngum á álagningarárinu 1980 vegna tekna ársins 1979 og álagningarárinu 1981 vegna tekna ársins 1980. Þetta frv. varð ekki samþykkt, heldur samþykkti Alþingi annað skattstigafrv. frá núv. ríkisstj. sem hafði í för með sér verulega hækkun skatta frá fyrra ári og mikla skattahækkun frá skattstigatillögum minnihlutastjórnar Alþfl. Það er nú svo komið að skattbyrði beinna skatta eða álagðir skattar í hlutfalli af tekjum álagningarárs hafa aldrei orðið meiri en á s. l. ári. Það eru engin dæmi um það frá fyrri árum að svo hafi orðið, og greiðslubyrði beinna skatta hefur aðeins einu sinni orðið hærri á s. l. 20 árum heldur en var í fyrra.

Ríkisstj. hefur með þeim till., sem hún nú gerir, og hennar stuðningsmenn ekki staðið við fyrirheit sitt um að gera ráðstafanir í skattamálum sem lækki skattlagningu þessa árs frá árinu 1980. Eins og till. ríkisstj. eru og miðað við verðlagsforsendur ríkisstj. er ekki gert ráð fyrir að greiðslubyrði beinna skatta breytist svo nokkru nemi á árinu 1980 eða miðað við árið sem leið. Og þá er rétt að hafa í huga að þá var greiðslubyrði beinna skatta sú næstmesta sem upplýsingar liggja um frá s. l. 20 árum.

Hæstv. fjmrh. hefur leikið þann leik að hækka skattana fyrst og telja mönnum síðan trú um að hann væri að lækka skattana með því að lækka innheimtutölur sínar sem voru þegar í upphafi langt fyrir ofan það sem áður hefur tíðkast.

Þær till., sem ég flyt fyrir hönd Alþfl. í þessari hv. deild, fela í sér breytingar á 21. og 22. gr. varðandi skattstiga og persónuafslátt. Till. eru í meginatriðum þær að því er skattstiga varðar, að af fyrstu 4 millj. skattskyldra tekna greiðist 20%, af tekjum á bilinu 4–9 millj. greiðist 30%, af tekjum á bilinu 9–12 millj. greiðist 45% og af tekjum yfir 12 millj. greiðist 50%.

Að því er, persónuafsláttinn varðar er gert ráð fyrir að hann verði 6600 nýkr. sem nýtist til greiðslu allra opinberra gjalda nema fasteignagjalda, og sá persónuafsláttur, sem þá kann að verða ónýttur, greiðist til gjaldanda allt að 2200 nýkr.

Tilgangurinn með þessum till, er m. a. að ná því markmiði að afnema tekjuskatt af almennum launatekjum í áföngum.

Enn fremur er ítrekuð sú till., sem þm. Alþfl. gerðu við afgreiðslu brbl. ríkisstj. um kjaraskerðingu í vetur, nefnilega að ónýttur persónuafsláttur skuli ganga upp í öll opinber gjöld skattþegns og maka hans nema fasteignagjöld, en ekki aðeins upp í hluta þeirra eins og till. ríkisstj. gera ráð fyrir, og enn fremur að ónýttur persónuafsláttur, sem þá kynni að verða eftir, verði greiddur út til fólks yfir 25 ára aldri allt að 2200 nýkr., en þó ekki til atvinnurekenda.

Þessi till. Alþfl. um útborganlegan persónuafslátt og fjölgun opinberra gjalda, sem ónýttur persónuafsláttur getur gengið til, er fyrst og fremst mjög til hagsbóta fyrir ýmsa lágtekjumenn: sjúklinga, gamalt fólk og aðra þá sem mjög lágar tekjur hafa og eiga í vök að verjast í hinu verðbólgusjúka þjóðfélagi.

Auðvitað er með ýmsum dæmum hægt að sýna fram á mismun á þeim skattstigatill., sem Alþfl. flytur, og till. ríkisstj. varðandi skattstiga og persónuafslátt. Það er rétt að nefna fáein dæmi:

1. Samkv. till. ríkisstj. eru skattleysismörk hjóna í tekjuskatti með meðaltekjuskiptingu um 7.5 millj. miðað við tekjur á s. l. ári. Þessi sömu hjón mundu samkv. till. Alþfl. um skattstiga mega hafa um einni millj. kr. meira í tekjur án þess að þurfa að greiða af tekjuskatt.

2. Ungur tekjulítill námsmaður, sem þarf samkvæmt till. ríkisstj. að greiða sérstaklega kirkjugarðsgjald og sóknargjald þó svo að hann eigi ónýttan persónuafslátt, hann mundi ekki lenda í því samkvæmt till. Alþfl., heldur fengi hann að nota sinn ónýtta persónuafslátt til greiðslu beggja þessara gjalda.

Við getum tekið þriðja dæmið um aldraðan tekjulitinn einstakling eða öryrkja sem hefur litlar tekjur, hefur orðið fyrir sérstöku áfalli, og væri yfir 25 ára aldri og stundaði ekki atvinnurekstur. Hann fær samkvæmt till. ríkisstj. að nota ónýttan persónuafslátt upp í eignarskatt, sjúkratryggingagjald og útsvar, en allur persónuafsláttur, sem þá kann að vera óráðstafað, fellur niður. Samkv. till. Alþfl. mundi þessi sami tekjulági aldraði maður eða öryrki auk þess fá að nota óráðstafaðan persónuafslátt til að greiða kirkjugarðsgjald, bæði sitt og maka síns, ásamt sóknargjaldi og fá auk þess útborgaðar allt að 2200 nýkr. sem þá kynnu að verða eftir.

Fjórða dæmið má taka af einhleypum manni með 45 þús. nýkr. eða 4.5 millj: gkr. tekjur á árinu 1980. Hann þyrfti að greiða 1100 kr. í tekjuskatt samkvæmt frv. ríkisstj., en þessi sami einstaklingur mundi nánast verða tekjuskattslaus samkvæmt till. Alþfl.

Fimmta dæmið skal rakið um einstætt foreldri með 7 millj. 370 þús. gkr. í tekjur á árinu 1980. Það mun þurfa að greiða 2400 kr. í tekjuskatt samkvæmt till. ríkisstj., en samkvæmt till. Alþfl., þeim till. sem ég mæli hér fyrir, mundi þessi sami einstaklingur aðeins greiða 1100 kr. í tekjuskatt.

Herra forseti. Ég hef gert grein fyrir viðhorfum okkar Alþfl.-manna til þess frv. sem hér er til umfjöllunar. Afstaða okkar er í megindráttum sú, að að því er varðar almennar leiðréttingar og umorðanir erum við algerlega sammála því. Að því er varðar ívilnanir og leiðréttingar um aukavinnu og að því er varðar húsaleigu erum við sammála því. Við teljum að mikill sigur hafi unnist með því að hrinda áhlaupi fjmrh. til þess að afnema regluna um reiknuð laun þeirra sem við eigin atvinnurekstur starfa. Við fögnum því, að það skyldi takast. Í fjórða lagi teljum við að það skattstigafrv., sem ríkisstj. hér áformar að fá samþykkt, rísi ekki undir því fyrirheiti, sem ríkisstj. hefur gefið verkalýðshreyfingunni, og muni alls ekki duga til þess að treysta ráðstöfunartekjur heimilanna í því óvissuástandi sem nú ríkir. Þess vegna leggjum við ríka áherslu á að till. okkar varðandi skattstiga og persónuafslátt verði samþykktar, en till. ríkisstj. hafnað með sama hætti og gert var varðandi 59. gr. þar sem áhlaupi ríkisstj. var hrundið með samstilltu átaki alþm.