11.11.1980
Sameinað þing: 17. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í B-deild Alþingistíðinda. (477)

61. mál, vegurinn undir Ólafsvíkurenni

Flm. (Gunnar Már Kristófersson):

Herra forseti. Á þskj. 65 hef ég leyft mér að flytja till. til þál. um hvernig best verði hagað endurbótum á veginum undir Ólafsvíkurenni, sem hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta kanna hvernig best verði hagað endurbótum á veginum undir Ólafsvíkurenni, þannig að komið verði í veg fyrir hættu af grjóthruni og snjóflóðum.“

Á árunum 1963 og 1964 var lagður vegur fyrir ólafsvikurenni er tengir saman Neshrepp utan Ennis og Ólafsvík. Með honum opnaðist hringleið um Snæfellsnes sem tengir saman alla þéttbýlisstaði þar svo og sveitahéruð.

Vegurinn er mikil samgöngubót fyrir íbúa á norðanverðu Snæfellsnesi, auk þess sem hann er nauðsynlegur vegna heilsugæslu, atvinnurekstrar og annarra samskipta þéttbýlissvæða á nesinu. Það er viðurkennt vandamál, að þessi vegur er hættulegur vegna grjóthruns og snjóflóða, en hann hefur þá sérstöðu umfram aðra vegi lagða við svipaðar aðstæður, að hann er að hluta lagður í snarbrattri skriðu þar sem engir einstakir steinar hanga utan í, heldur er öll skriðan úr lausum steinum þar sem losun á einum getur valdið losun á öðrum og þar með allri skriðunni.

Vestast í Enninu er vegurinn sprengdur inn í Þursaberg, en ofan við það er laus snarbrött skriða. Vandamálið er því þríþætt: Í fyrsta lagi hrun á bæði smáu og stóru grjóti úr skriðu og hátt ofan úr Enni, í öðru lagi hætta á falli stórra stykkja úr þursaberginu ofan á veg og í þriðja lagi er einnig fyrir hendi hætta á snjóflóðum sem falla ekki ósjaldan.

Nokkrar umræður hafa farið fram um möguleika á að koma í veg fyrir þessar hættur, bæði meðal vegagerðarmanna og heimamanna, og hefur helst verið hallast að því, að um tvær lausnir væri að ræða: Að byggja yfir veginn og láta þannig hrun og snjóflóð fara yfir hann og fram í sjó. Er talið að byggja þurfi yfir um 1000 m af honum til að koma í veg fyrir þessa hættu. Önnur lausn gæti hugsanlega verið að byggja veginn frammi í sjó, en sá vegur gæti líklega orðið laus við hrun. Hins vegar mætti búast við að snjóflóð gætu náð fram á hann. Vegurinn yrði að vera mjög hár til að verja hann fyrir sjávaröldum, því sjávarsveifla á þessum slóðum er um 5 metrar. Talið er að lengd vegar, ef byggður yrði fram í sjó, þyrfti að vera um 1500 metrar.

Um fleiri leiðir gæti verið að ræða til að draga úr hættu á þessum vegi, þó talið sé að þessar tvær séu líklegastar til bóta.

Ályktun þessi miðar að því að ríkisstj. láti kanna hvernig gera megi þennan veg hættulausan og þannig tryggja öruggari samgöngur milli þéttbýlisstaða á Snæfellsnesi.

Með flutningi á þessari till. vil ég vekja athygli á mikilvægi góðra samgangna um Snæfellsnes, ekki aðeins milli þeirra staða, sem Ennisvegur tengir saman beint, Neshrepps utan Ennis og Ólafsvíkur, heldur einnig milli allra þéttbýlisstaða þar svo og sveitahéraða. Segja verður eins og er að vegakerfið á norðanverðu Snæfellsnesi, sem og reyndar í Vesturlandskjördæmi nær öllu, sé heldur bágborið, enda ljóst að sú tilhögun, er á var höfð allt fram undir síðasta ár, að jafnstór framkvæmd og bygging Borgarfjarðarbrúar var talin með almennum vegaframkvæmdum í kjördæminu og fjármögnuð af vegafé þess, hafi valdið því, að dregið hafi úr uppbyggingu og viðhaldi vega annars staðar í kjördæminu. Enginn má þó taka þessi orð mín svo, að ég sé óánægður með þá gífurlegu samgöngubót sem tilkoma Borgarfjarðarbrúar er. Þvert á móti lýsi ég yfir ánægju minni með þá framkvæmd. Hins vegar tel ég að hana hefði átt að fjármagna sérstaklega frá upphafi. Það er reyndar skoðun mín að allar vegaframkvæmdir á þjóðvegi nr. 1, hringveginum, eigi að fjármagna sérstaklega og hann ekki teljast til kjördæmisvega. Ýmis rök mæla að mínu mati með því, að sá háttur sé á hafður.

Eins og ég sagði áðan er fjármagn til framkvæmda við Borgarfjarðarbrú nú ekki inni í almennu vegafé kjördæmisins, enda brá svo við, eftir að sá háttur var upp tekinn, að sjaldan seinni ár hefur verið unnið eins mikið við uppbyggingu og viðhald vega í kjördæminu. En betur má ef duga skal. Ég tel að Vesturlandskjördæmi, og þá helst Snæfellsnes, hafi dregist það langt aftur úr miðað við önnur kjördæmi, ef undan er skilin Borgarfjarðarbrúin varðandi uppbyggingu og viðhald vega að sérstakt tillit verði að taka til þess við endurskoðun vegáætlunar og gerð fjárlaga nú.

Sú þáltill., sem hér er til umr., beinist að því að kanna hvernig einstakt vandamál verði best leyst, en það er, eins og áður er sagt, hvernig best verði komið í veg fyrir þær hættur er að vegfarendum um ólafsvíkurenni steðja. Allir, sem til þekkja, vita að þetta er mikið verkefni og brýnt og full ástæða til að fé verði varið sérstaklega til könnunar og tilrauna á hvernig leysa megi þetta vandamál. Ég vil benda á að fé til könnunar og tilrauna hefur verið varið til svipaðs vandamáls í Ólafsfjarðarmúla, og ekki er síður ástæða til að svo verði gert vegna vegarins undir Ólafsvíkurenni.

Óhætt er að fullyrða að þær hættur, sem steðja að vegfarendum undir Ólafsvíkurenni, hái öllum eðlilegum samgöngum milli þéttbýlisstaða á nesinu, sem þó eru nauðsynlegar vegna fleiri þátta er fram koma í grg. Til dæmis má nefna að á Rifi er flugvöllur sem ekki aðeins gegnir því hlutverki að vera áætlunarvöllur fyrir báða staði, Ólafsvík og byggðirnar fyrir austan Enni, heldur ekki síður að vera sjúkraflugvöllur fyrir þessi byggðarlög. Að Rifi og í Ólafsvík eru nokkuð stórar verstöðvar. Þessi flugvöllur er einnig mikilvægur vegna þjónustu við bátaflotann á báðum stöðum. Betri og öruggari samgöngur milli staðanna munu verða hvati til meiri samskipta íbúa þessara byggðarlaga á þessum sviðum og fleiri.

Þá má nefna að löggæsla fyrir þessi byggðarlög er staðsett í Ólafsvík, og að auki hefur samvinna milli þessara staða á sviði atvinnurekstrar og menningarmála, eins og áður er sagt, farið vaxandi undanfarin ár og telja verður að slík samvinna geti farið enn vaxandi á komandi árum.

Einnig má benda á að ástæða er til að ætla að í framtíðinni muni stjórnvöld leggja ríkari áherslu á meiri samvinnu byggðarlaga, sem stutt er á milli, í ýmsum málaflokkum. Ég tel að á milli byggðakjarnanna í Neshreppi og ólafsvík og einnig annarra þéttbýlisstaða á Snæfellsnesi geti verið meiri samvinna á ýmsum sviðum til heilla fyrir þá og þjóðina í heild. Grundvöllur þess er að greiðar samgöngur séu á milli þeirra.

Herra forseti. Það er ekki háttur minn að flytja langar ræður og það hef ég ekki heldur gert nú. í þeim fáu orðum, sem ég hef sagt, hef ég að nokkru gert grein fyrir því vandamáli sem við á utanverðu Snæfellsnesi eigum við að etja vegna þessa vegar. Auðvitað er það ekki tæmandi. Það er von mín að þessari till. verði vel tekið og hún fái afgreiðslu á þessu þingi, svo brýnt er málið.

Að lokum óska ég eftir að að lokinni þessari umr. verði till. vísað til hv. allshn.