19.05.1981
Efri deild: 111. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4585 í B-deild Alþingistíðinda. (4772)

290. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég er andvígur sérstökum skattfríðindum einstakra stétta. Ég er þeirrar skoðunar, að við eigum, þar sem þörf er á, að sýna það í laununum ef við metum eitt starf öðrum fremur, en ekki að veita sérstök skattfríðindi. Hér hygg ég að upprunalega, þegar út á þá braut var farið, hafi mönnum orðið talsvert á og þarna hafi verið rétt eitt bragðið í tengslum við kjarasamninga og reddingu á sínum tíma á málefnum útgerðarinnar.

Það er náttúrlega ljóst mál, að hlutaskipti eru þegar komin inn í hinar ótrúlegustu launagreiðslur í útgerðinni, þar sem það er t. d. ekki orðið fátítt að forstjórar eru upp á hlut, laun þeirra miðuð við meðalhlut skipstjóra sums staðar, en meðalhlut háseta þar sem við hv. þm. Guðmundur Bjarnason þekkjum best til fyrir norðan. Ég hygg að þar gætu fordæmin orðið býsna mörg.

Nú er það ekki svo um þá till. sem hv. þm. Lárus Jónsson hefur borið fram hér við 3. umr. í þessari deild. Þar er um að ræða hlut landmanna sem ráðnir eru við mótorbáta nyrðra, og skiptir þar mestu máli tiltölulega þröngt svæði við Eyjafjörð þar sem netaveiðar hafa nú færst í vöxt. Sú hugmynd er býsna forn og miklu eldri en sérstakur skattafrádráttur sjómanna að skilgreina landmann þannig að það séu beitingamenn við vertíðarbáta. Um þetta atriði væri e. t. v. einna bærastur hæstv. viðskrh., sem á sæti í Ed. Ég man ekki betur en hann væri hlutaráðinn landformaður á einhverju skeiði ævi sinnar og varð frægur fyrir röskleika og fyrirhyggju um gjörvallt Austurland á þeim tíma. (Gripið fram í: Og fékk engan skattfrádrátt.) Og fékk engan skattfrádrátt, en umbun í lofi fyrir vel unnið starf, sem hefur líka nokkurt gildi í okkar samfélagi eða hafði það fyrir austan þar sem menn voru gjarnan metnir til manngildis eftir því, hvernig þeir stóðu sig við sjóinn.

Hugtakið landmaður á vertíð mun eiga fyrst og fremst rætur að rekja til Vestmannaeyja og Suðurnesjanna, þar sem títt var að róið var með línu fyrri hluta vertíðar og beitingamennirnir og aðgerðarmennirnir gengu síðan á bátinn þegar farið var á netaveiðar og þurfti meiri mannskap um borð. En þetta var skilgreiningin á hugtakinu landmaður á vetrarvertíð. Það hefur verið lagt síðan til grundvallar þessari hugsun, að það skuli vera beitingamenn, hlutaráðnir beitingamenn, sem fyrst og fremst komi þarna til greina. Nú hef ég orð frómra manna fyrir því, að svo misjöfn sé framkvæmd þessara ákvæða skattalaganna að sums staðar nái þau einnig til akkorðsmanna í beitingu sem alls ekki séu ráðnir upp á hlut. Ég fæ ekki með nokkru móti séð hvernig eigi að gera reginmun á stöðu landmannsins, sem vinnur við netin í landi, og beitingamannsins, heldur eigi að vera á valdi yfirmanna skattheimtunnar að sjá til þess, að menn fái rétt sinn í þessu og einhvers konar orðaleikur með skilgreiningu á fornum hugtökum í sambandi við útgerð á Suðurlandi sé ekki látinn ráða um það, hvort menn njóti þarna jafnréttis.

Ég skil mótrök hæstv. fjmrh. Ég skil þau rök sem hann færði fram í ræðu sinni áðan, en vil inna hann eftir því, hvort hann gæti ekki flutt okkur um það yfirlýsingu, gefið Ed. allhaldgott vilyrði fyrir því, að gerð verði gangskör að því að leiðrétta þetta misrétti í framkvæmd. Þótt menn séu formfastir í fjmrn. hlýtur að vera hægt að setja þess háttar verkreglur sem komi í veg fyrir að slík skattfríðindi smiti alla leið upp til forstjórans.