19.05.1981
Sameinað þing: 84. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4589 í B-deild Alþingistíðinda. (4790)

187. mál, vegáætlun 1981--1984

Frsm. meiri hl. (Geir Gunnarsson):

Herra forseti. Till. til þál. um vegáætlun fyrir árin 1981–1984 hefur verið til umfjöllunar í fjvn, allnokkurn tíma. Nefndin hefur haldið marga fundi um málið svo og undirnefnd, og skilar n. sameiginlega brtt. sínum á þskj. 918, en fulltrúar minni hl. gefa út sérstakt nál. Nefndin stendur öll að tillögunum að öðru leyti en því, að hv. 6. landsk. þm., Karvel Pálmason, var andvígur þeirri breytingu sem gerð var á þeim hlutfallstölum sem beitt er við skiptingu milli kjördæma á fjárveitingum til stofnbrauta og hafa nokkur áhrif á innihald þeirra tillagna sem fluttar eru um fjárveitingar til einstakra framkvæmda. Nefndin naut liðsinnis Snæbjarnar Jónassonar vegamálastjóra og starfsfólks hans og flyt ég bestu þakkir nefndarinnar fyrir þá mikilsverðu aðstoð.

Það er jafnan svo við afgreiðslu vegáætlunar að glöggt kemur í ljós, að þar er fjallað um það málefni sem hvað viðkvæmast er þm. Ég hef þá reynslu, að enda þótt afgreiðsla fjárlaga sé að sjálfsögðu umfangsmeiri og spanni yfir fjölþættara svið en afgreiðsla vegáætlunar sé afgreiðsla vegáætlunar þó að ýmsu leyti erfiðari og vandrataðri leiðir til þess samkomulags um skiptingu fjármagns og heildarafgreiðslu sem jafnan er leitað eftir, enda taka allir hv. alþm. þátt í þeirri skiptingu fjármagns innan einstakra kjördæma sem fjvn. leggur síðan fram sem sínar tillögur, og nákvæmlega er vegið og metið hvert hver einasta króna fer.

Í grg. með þeirri þáltill. um vegáætlun, sem hér er til afgreiðslu, var tekið fram að nauðsynlegt kynni að reynast að taka rammaskiptingu vegáætlunarinnar til endurskoðunar ef verðlagsforsendur röskuðust. Þjóðhagsstofnun hefur nú sent frá sér nýja spá um þróun verðlags 1981 og er samkv. henni talið að meðalhækkun verðlags milli áranna 1980 og 1981 verði 52% í stað 42% sem var forsenda í þáltill. Jafnframt er nú við það miðað að meðalverðlagshækkun frá 1981 til 1982 verði 35% í stað 30% í þáltill. Þessar breytingar á forsendum valda 7% hækkun á grunni áætlunarinnar fyrir árið 1981 og 15.2% hækkun árin 1982–1984. Afleiðingar þessara breyttu verðlagsforsendna koma óhjákvæmilega fram í bundnum liðum vegáætlunarinnar og mundu valda skerðingu á framkvæmdaliðum ef ekki væri séð fyrir hliðstæðri hækkun tekna frá því sem gert er ráð fyrir í þáltill. Brtt. n. eru miðaðar við þessar breyttu verðlagsforsendur, og enn fremur er nú gert ráð fyrir greiðsluhalla á vegáætlun frá 1980 sem reyndist 3.3 millj. kr. í vetrarviðhaldi og 1 millj. 350 þús. kr. vegna lakari innheimtu markaðra tekna en gert hafði verið ráð fyrir, eða samtals 4 millj. 604 þús. kr.

Til þess að mæta þessum útgjaldaauka, jafnframt því sem miðað er við að heildarútgjöld til vegamála nemi 2.1% af vergri þjóðarframleiðslu og vöxtur hennar verði 2.5% á ári, er í till. n. gert ráð fyrir aukningu tekna frá því sem greinir í þáltill. með þeim hætti að bensíngjald verði hækkað einu sinni á þessu ári, þ. e. upp úr miðjum maí, í þeim mæli sem lagaheimildir leyfa og þungaskattur hækki 1. júní n. k. í samræmi við hækkun byggingarvísitölu frá 1. jan. til 1. apríl á þessu ári. Hækka þá markaðir tekjustofnar Vegasjóðs um 13.5 millj. kr. 1981, en lántökur munu hækka um 10.1 millj. kr. frá því sem greinir í þáltill. vegna aukinna lánveitinga frá Framkvæmdastofnun ríkisins og lánveitinga frá heimaaðilum í Eyjafirði. Lánveitingar frá Framkvæmdastofnun ríkisins munu þá nema 25.8 millj. kr. í ár, og gert er ráð fyrir hliðstæðum lánveitingum á síðari árum vegáætlunarinnar.

Vegna breyttra verðlagsforsendna og þeirrar auknu tekjuöflunar, sem fyrr er getið, hækka markaðir tekjustofnar frá áætlun í þáltill., svo sem fyrr er sagt, um 13.5 millj. kr. 1981. Árið 1982 hækka þessir tekjuliðir um 30.8 millj. kr., árið 1983 um 32.2 millj. og 1984 um 33.3 millj. En í því sambandi er þess að geta, að verðlagsforsendur eru þær varðandi árin 1982, 1983 og 1984, að gert er ráð fyrir 35% meðaltalsverðhækkun milli áranna 1981 og 1982, en útgjalda- og tekjutölur fyrir árin 1983 og 1984 eru settar fram á sama verðgrunni og 1982, enda kemur vegáætlun til endurskoðunar á árinu 1983.

Þegar verðlagsforsendur hafa verið endurmetnar nema heildarútgjöld til vegamála samkv. till. fjvn. á árinu 1981 411 millj. 460 þús. kr., á árinu 1982 582 millj. 300 þús. kr., á árinu 1983 597 millj. 350 þús. kr., á árinu 1984 612 millj. 500 þús. kr., eða samtals heildarútgjöld til vegamála á áætlunartímabilinu 2203 millj. 610 þús. kr.

Fjvn. gerir ekki till. um röskun á milli framkvæmdaþátta frá því sem gert var ráð fyrir í þáltill. að öðru leyti en því, að í þáltill. var með skiptingu fjár til stofnbrauta annars vegar og brúa hins vegar miðað við að brýr á stofnbrautum yrðu í vaxandi mæli fjármagnaðar af fjárveitingum til almennra verkefna á stofnbrautum. Fjvn. taldi þetta ekki rétta stefnu og leggur til að fluttar verði eftirtaldar fjárhæðir af stofnbrautum á brúarframkvæmdir: 1982 3 millj. 950 þús. kr., 1983 4 millj. 350 þús. kr. og 1984 4 millj. 790 þús. kr. Auk þess felast í till. um skiptingu fjár innan kjördæma nokkrar tillögur þm. í einstökum kjördæmum um flutning á fjárveitingum milli stofnbrauta og þjóðbrauta.

Það er nýmæli í tillögum fjvn., að lagt er til að halda eftir óskiptu fjármagni til nýframkvæmda á síðari árum áætlunarinnar, þ. e. 10% fjármagnsins á árinu 1982 og 20% á árinu 1983, en fjárveiting á síðasta ári áætlunarinnar er öll óskipt að öðru leyti en því, að framlagi til sérverkefna er skipt á einstakar framkvæmdir einnig á árinu 1984 að 80%. Þessi till. að skipta ekki öllu fjármagni til nýframkvæmda á árunum 1982 og 1983 er gerð í því skyni að draga úr líkum á því að endurskoða þurfi vegáætlun árlega, eins og þurft hefur að gera undanfarin ár, auk þess sem auðveldara ætti að vera, ef þessi regla er notuð, að standa að reglubundinni endurskoðun annað hvert ár.

Gert er ráð fyrir því, að því óskipta fjármagni til framkvæmdaþátta, sem ekki er bundið við ákveðin kjördæmi, verði ráðstafað í samráði við fjvn., en óskiptu fjármagni til stofnbrauta og þjóðbrauta verði ráðstafað til almennra verkefna í hverju kjördæmi samkv. ákvörðunum þm. viðkomandi kjördæmis.

Við gerð síðustu vegáætlana hafa verið notaðar hlutfallstölur til að ákvarða skiptingu fjármagns milli kjördæma, annars vegar í stofnbrautir og hins vegar þjóðbrautir, og var þá miðað við umferð og ástand vegakerfisins eins og það var 1976. Fjvn. endurskoðaði þær reglur, sem lágu til grundvallar þessum hlutfallstölum, bæði út frá því sjónarmiði, að umferð og ástand vegakerfis innan einstakra kjördæma hefur breyst, og hins vegar var endurskoðað gildi einstakra þátta sem áhrif hafa á hlutfallstölur. Niðurstaðan varð sú, að samþykkt var í nefndinni með öllum atkv. gegn einu að breyta þessum hlutfallstölum nokkuð og nota einn aukastaf í útreikningum hlutfallstölunnar, en áður höfðu verið notaðar heilar tölur. Vegna þess að fyrir árið í ár er um að ræða endurskoðun fjárveitinga sem þegar hafði verið skipt í fyrri vegáætlun er eldri hlutfallstalan látin gilda áfram í ár, og ákveðið var að fyrir árið 1982 gilti meðaltal fyrri hlutfallstölu og nýrrar, en síðan ný hlutfallstala úr því. Hér er um að ræða eitt viðkvæmnismálið við skiptingu vegafjár. En þess ber að geta, að þessar hlutfallstölur ráða þó ekki skiptingu nema hluta framkvæmdafjárins því að fjárveitingar til bundinna slitlaga, sérverkefna og brúa nema talsvert hærri upphæðum en fjárveitingar til stofnbrauta og þjóðbrauta.

Brtt. n. við flokkun vega eru gerðar í samráði við þm. viðkomandi kjördæma, en af þeim tillögum má nefna að lagt er til að fallið verði frá þeirri till. í þáltill., að Vestfjarðavegur um Bröttubrekku hverfi úr tölu stofnbrauta, og gerð er tillaga um að Þorlákshafnarvegur frá Suðurlandsvegi við Hveragerði að Þrengslavegi ofan við Þorlákshöfn verði stofnbraut.

Þegar rætt var í fjvn. um brýnustu verkefni í vegamálum komu óhjákvæmilega til sérstakrar athugunar þeir hlutar vegakerfisins þar sem vegfarendum stafar tíðum lífshætta af skriðuföllum, grjóthruni og snjóflóðum, en þar er einkum um að ræða Ólafsfjarðarmúla, Ólafsvíkurenni og Óshlíð milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar. Á öllum þessum stöðum standa nú yfir athuganir og rannsóknir á þeim valkostum, sem til greina koma til úrbóta, og kostnaði við þá. Meðan þessum störfum er ólokið er ekki unnt að gera neinar raunhæfar tillögur um framkvæmdir eða röðun þeirra, en ljóst er, að um er að ræða mjög kostnaðarsamar framkvæmdir. Lausleg ágiskun bendir til að heildarkostnaður yrði um 200 millj. kr. á verðlagi á ár eða um 20 milljarðar gkr. Fjvn. taldi ekki unnt að áætla fé til þessara framkvæmda af því fjármagni sem til ráðstöfunar var, bæði vegna þess að rannsóknum er ekki nógu langt komið og fjárveitingar innan þess fjármagnsramma, sem fyrir hendi var, mundu skerða fjármagn til annarra framkvæmda meira en við yrði unað. Fjvn. hefur því unnið að því, að á þessum málum yrði tekið með sérstakri fjáröflun sem yrði síðan tekin upp í vegáætlun þegar fyrir sérstöku fjármagni hefði verið séð. Liggur nú fyrir yfirlýsing frá hæstv. samgrh. til fjvn. um sérstakar ráðstafanir til fjáröflunar vegna þessara vegaframkvæmda, og er sú yfirlýsing birt sem fskj. með nál. meiri hl.

Samkv. þeim brtt., sem hér liggja fyrir, verður varið fjármagni til nýrra þjóðvega, brúa og fjallvega sem hér segir: 1981 204 millj. 480 þús. kr., 1982 281 millj. 200 þús. kr., 1983 284 millj. 600 þús. kr., 1984 287 millj. 800 þús. kr., eða samtals á áætlunartímabilinu til nýrra þjóðvega, brúa og fjallvega 1058 millj. 80 þús. kr. en það jafngildir 105 milljörðum 808 millj. gkr. Af þessari fjárhæð fara á næstu 4 árum 237 millj. 510 þús. kr. til þess framkvæmdaþáttar sem nefndur er sérverkefni, en þar er um að ræða meiri háttar verkefni sem talin eru hafa verulegt gildi fyrir samgöngukerfið í heild eða stóra hluta þess. Mun ég nú geta einstakra verkefna í þeim framkvæmdaþætti. En hafa ber í huga, að kostnaður og fjárveitingatölur fyrir árið 1981 eru á áætluðu verðlagi í ár, en tölur fyrir árin 1982, 1983 og 1984 eru á áætluðu verðlagi ársins 1982.

Biskupstungnabraut: Verkefnið tekur til endurbyggingar vegarins frá Suðurlandsvegi að bundnu slitlagi ofan Þingvallavegar í Grímsnesi, 10 km, ásamt byggingu brúar á Sog hjá Þrastarlundi. Stefnt er að því að ljúka verkefni þessu að mestu á áætlunartímabilinu og verja til þess 20.3 millj. kr. á árunum 1981–1984.

Þingvallavegur: Verkefnið felur í sér endurbyggingu vegarins úr Mosfellsdal til Þingvalla, 30 km. Gert er ráð fyrir að um 2/3 hlutar verksins vinnist á áætlunartímabilinu og til þess verði varið 14.8 millj. kr.

Hafnarfjarðarvegur: Endurbygging vegarins frá Kópavogi til Hafnarfjarðar ásamt nauðsynlegum gatnamótamannvirkjum. Gert er ráð fyrir að vegurinn verði breikkaður í 4 akreinar, en verkinu ljúki ekki að öðru leyti. Til verksins verði varið 8.06 millj. kr. í ár af fjárveitingu til sérverkefna og 2 millj. af fjárveitingu til stofnbrauta og 5 millj. kr. á næsta ári af fjárveitingum til sérverkefna.

Reykjanesbraut: Hér er um að ræða gerð vegar frá Breiðholtsbraut í Reykjavík að Reykjanesbraut við Kaplakrika í Hafnarfirði, 7 km. Verkið hefst árið 1982, en lýkur ekki á áætlunartímabilinu. Til framkvæmda við Reykjanesbraut verður varið 28 millj. kr. af fjárveitingum til sérverkefna á árunum 1981–1984 og 2.2 millj. kr. af fjárveitingum til stofnbrauta árið 1983.

Vesturlandsvegur um Borgarfjörð: Gerð vegar og brúar yfir Borgarfjörð. Reiknað er með að verkinu verði lokið 1982 og varið verði til framkvæmdarinnar í ár og næsta ár samtals 12.8 millj. kr.

Vesturlandsvegur um Holtavörðuheiði: Endurbygging vegar úr Norðurárdal í Borgarfirði að Brú í Hrútafirði, 37 km. Verkinu lýkur ekki á áætlunartímabilinu, en til þess verður varið 21.5 millj. kr. á árunum 1981–1984.

Vestfjarðavegur um Önundarfjörð: Lokið verður gerð vegar með bundnu slitlagi yfir Önundarfjörð á þessu ári. Kostnaðaráætlun er 2.3 millj. kr.

Djúpvegur, tenging Inn-Djúps: Verkefnið tekur til endurbyggingar og nýbyggingar vegar frá Hólmavíkurenni yfir Steingrímsfjarðarheiði að Laugarbóli í Ísafjarðardjúpi, 65 km. Reiknað er með að unnt verði að koma leið þessari í umferðarhæft ástand á áætlunartímabilinu, en verkefninu ljúki ekki. Áætlað er að til verksins verði varið um 29.3 millj. kr. á áætlunartímabilinu.

Norðurlandsvegur um Héraðsvötn: Gerð brúar lýkur væntanlega á þessu ári og hún tekin til umferðar. Gerð vegar og varnargarða verður lokið á áætlunartímabilinu. Kostnaður er áætlaður 16.3 millj. kr.

Norðurlandsvegur um Eyjafjarðarleirur: Reiknað er með að undirbúningsframkvæmdir hefjist í lok áætlunartímabilsins og til þeirra verði varið 3.3 millj. kr.

Norðurlandsvegur um Víkurskarð: Verkefnið innifelur gerð vegar frá Miðvík á Svalbarðsströnd um Víkurskarð að Fnjóskárbrú, 13 km. Reiknað er með að vegurinn komist í umferðarhæft ástand árið 1983 og verði að mestu lokið undir bundið slitlag á áætlunartímabilinu. Gert er ráð fyrir að til framkvæmdanna verði varið 23.4 millj. kr.

Austurlandsvegur um Hvalnesskriður: Þar er um að ræða endurbyggingu og nýbyggingu vegar frá Hofsá í Álftafirði að Össurá í Lóni, 30 km. Gert er ráð fyrir, að verkefni þessu ljúki að mestu undir bundið slitlag á tímabilinu. Kostnaður er áætlaður 16.6 millj. kr.

Norðausturvegur á Vopnafjarðarheiði: Endurbygging vegar í Langadal og Möðrudal. Verkefninu lýkur ekki á tímabilinu. Til þessara framkvæmda verður varið 3.2 millj. kr. á árunum 1982 og 1983.

Óhætt er að fullyrða að samstaða er meðal þm. um, að varanlegar úrbætur í vegamálum eru einhverjar nauðsynlegustu og arðbærustu framkvæmdir sem þjóðin getur staðið að, og er þá ekki einungis um að ræða kalda arðsemisútreikninga, heldur eru áhrif bættra samgangna mikilvæg í félagslegum efnum og geta fremur en flest annað skipt sköpum um byggðajafnvægi og félagslegt jafnrétti meðal íbúa landsins. Ýmsar aðstæður geta valdið því, að ekki reynist unnt að leggja fé til þessara nauðsynlegu framkvæmda í þeim mæli sem almennt er sóst eftir, enda í mörg horn að líta um framkvæmdir í heilbrigðismálum, orkumálum, skólamálum og öðrum þáttum samgöngumála en vegamálum, og til skamms tíma hafði sú þróun staðið um alllangt árabil, að fjárveitingar til nýframkvæmda í vegamálum rýrnuðu að raungildi ár frá ári. Á þessu varð mjög veruleg breyting með samþykkt vegáætlunar 23. maí 1979 þegar fjárveitingar til nýbyggingar vega voru auknar svo að á s. l. ári jukust nýframkvæmdir að raungildi um 52% frá næsta ári á undan. Með þeirri vegáætlun, sem hér liggur fyrir til afgreiðslu, helst á þessu ári sú mikla aukning framkvæmda, sem varð 1980, og um nokkra viðbótaraukningu ætti að verða að ræða síðari ár áætlunarinnar.

Ég vil að síðustu færa félögum mínum í fjvn. þakkir fyrir samstarfið við afgreiðslu vegáætlunar og þá einkum fyrir það, að þeir hafa lagt sig fram um, að unnt væri að ná sem víðtækastri samstöðu um hvert einstakt atriði málsins innan þess ramma, sem markast af því heildarfjármagni sem veitt er til vegamála. Enn fremur ítreka ég þakkir mínar til vegamálastjóra og hins ágæta starfsliðs hans.