19.05.1981
Sameinað þing: 84. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4613 í B-deild Alþingistíðinda. (4797)

187. mál, vegáætlun 1981--1984

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það var hæstv. samgrh. sem fyrst og fremst gaf mér tilefni til þess að standa hér upp aftur, en það er eins og fyrri daginn með hæstv. ráðh., að enginn af þeim sést nú hér, ekki einn einasti hvorki sá ráðh., sem málið heyrir undir, hæstv. samgrh., né fjmrh., sem ættu þó að vera viðstaddir báðir tveir slíka umr. En hæstv. samgrh. verður þá að hafa það að á hann sé deilt að honum fjarverandi, því að hér á hann að vera.

En áður en ég kem að því vil ég aðeins segja örfá orð út af því sem hv. þm. Alexander Stefánsson sagði áðan. Hann er líka farinn núna, ég verð líka að tala við hann fjarverandi. Hann sagðist vera undrandi á óánægju okkar Vestfirðinganna með breytinguna á skiptingu milli kjördæma sem gert er ráð fyrir í þessari vegáætlun. Ég skil ekki að hv. þm. þurfi að vera hissa á þeirri óánægju þegar það liggur fyrir, að skiptiprósenta okkar lækkar frá því að geta verið 18% niður í 16% í stofnbrautum. Að vísu er það rétt, að hún hækkar í þjóðbrautum, en sú prósenta, sem við höfum haft í þjóðbrautum undanfarandi ár, hefur verið alveg með ólíkindum lág. Menn virðast ekkert líta á þá staðreynd mála, að á Vestfjörðum eða í Vestfjarðakjördæmi er samgöngumálum þannig háttað að heil byggðarlög eru gersamlega einangruð, ekki svo vikum skiptir, heldur svo mánuðum skiptir á hverjum vetri. Þessu vilja menn líta fram hjá, telja ástæðulaust annað en að Vestfirðingar þakki sérstaklega fyrir að málið skuli vera svona. Það er furðulegt að slíkur talsmáti skuli heyrast frá þm. Vesturl., hv. þm. Alexander Stefánssyni. Ég hélt þó að þeir þyrftu líka á að halda bættum samgöngum og bættu vegakerfi.

Þá vil ég leiðrétta það sem hv. þm. sagði um að það hefði verið samstaða í fjvn. um að breyta útreikningnum. Það er rangt. Ég var líka andvígur því að hafa af okkur sem svaraði hálfu prósenti á Vestfjörðum með því að breyta útreikningnum, með því að taka upp tugabrotafyrirkomulagið. Það leiðrétti ég hér með. Það var ekki samstaða um það í fjvn. heldur — eðlilega ekki.

Það er út af fyrir sig ágætt að hv. þm. Alexander Stefánsson fagnaði sérstaklega yfirlýsingu samgrh. Ég sé nú ekki sérstaka ástæðu til að fagna því sérstaklega þó að einn af þm. þess kjördæmis, sem nú situr í ráðherrastól, en hefur barist við það svo árum skipti að fá leiðréttingu sinna mála, skrifi undir yfirlýsingu sem ráðh. um að hann ætli að beita sér fyrir einhverju ákveðnu. Og þá kem ég að því sem hæstv. ráðh. kvartaði mest yfir, að ég skyldi ekki þakka honum sérstaklega fyrir það frumkvæði sem hann taldi sig hafa haft í þessu máli. Hvert er frumkvæði hæstv. ráðh. í þessu?

Á árinu 1972 beittum við hv. þm. Matthías Bjarnason okkur fyrir því í fjvn., að tekin var inn á vegáætlun af rannsóknarfé fjárveiting til þess að rannsaka yfirbyggingu á Óshlíðarvegi — árið 1972. Hæstv. núv. samgrh. hefur verið þm. Vestf. allar götur síðan. Hvaða frumkvæði hefur hann haft í því máli? Hann hefur auðvitað haft sama áhuga á því og við hinir þm. Vestf., að eitthvað væri gert í málinu. En það er fyrst núna sem þetta næst þó fram, þessi yfirlýsing, svo umdeilanleg sem hún kann þó að vera vegna þess að hún er ekki nógu ákveðin. Það er fyrst núna sem hún fæst fram vegna þrýstings heima fyrir, ekki bara frá Vestfjörðum, heldur og frá Vesturlandi og Norðurlandi eystra, vegna þess að þar eru vegir sem álíka er ástatt um og á Vestfjörðum. Það er vegna þess þrýstings og þeirrar kröfu heima úr héraði sem málið hefur þó náð þessum áfanga. Sendinefndir á sendinefndir ofan hafa komið á Vestfjörðum til þess að knýja á um þetta mál, og ég hygg að svo sé einnig úr hinum kjördæmunum sem hér eiga hlut að máli. Ég segi því eins og hv. þm. Matthías Bjarnason sagði áðan:Ég bíð með þakklætið þangað til ég sé að hæstv. ráðh. tekst að fá samþykki í ríkisstj. fyrir að leggja málið fyrir Alþingi, sem ég vona að hann fái. En það skulu menn vita, að fáist slíkt samþykki ekki í ríkisstj. verður málið tekið upp hér í þinginu, og það er að ég held, yfirgnæfandi meiri hl. fyrir því í þinginu að málið verði afgreitt á þennan hátt hvað sem ríkisstj. kann að segja.

Það var ekki meira frumkvæði hjá hæstv. ráðh. en það, að það er búið að bíða núna í rúma viku eftir að fá hann til þess að skrifa þessa yfirlýsingu. Það er búið að bíða eftir því í viku. Og hún var svo loðin í fyrsta skiptið að tvær aðrar tilraunir varð að gera til þess að koma einhverju lagi á málið þannig að það væri ekki opið í alla enda. Á þessu stigi málsins þarf hæstv. samgrh. því ekki að búast við þakklæti frá mér til hans fyrir frumkvæði í málinu. Það má vel vera að það komi að því að ég þakki honum fyrir málið, ef hann sér því nokkurn veginn farborða í gegnum ríkisstj. Ég óttast ekki að málið nái ekki fram að ganga hér í þinginu því að fyrir því er meiri hluti hér á Alþingi. Það strandar þá í ríkisstj. ef það strandar einhvers staðar. En takist þetta, sem ég vona, þá skal ég sannarlega þakka hæstv. samgrh. — ekki frumkvæðið, heldur að hafa unnið að því með öðrum þm., bæði frá Vestfjörðum og annars staðar, að málið fengi þann framgang og þann endi sem ég vona að það fái með því að í þetta verði ráðist þegar á næsta ári.