19.05.1981
Sameinað þing: 84. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4617 í B-deild Alþingistíðinda. (4799)

187. mál, vegáætlun 1981--1984

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Það er nú komið að því verki, sem að jafnaði er dapurlegast að sitja undir og ég tala ekki um að vinna fyrir þá sem þurfa að bera ábyrgð á því á ári hverju á Alþingi, og það er að afgreiða vegáætlun.

Það er dálítið sérkennilegt að hlusta á stjórnarsinna, sem ábyrgð bera á þessu ófremdarástandi, standa hér uppi kvartandi og kveinandi. Hv. 4. þm. Vesturl. byrjaði reyndar ræðuna sína á því að kyssa á vöndinn og hæla hæstv. samgrh. sérstaklega fyrir það, af því sem hann var barinn til að skrifa undir yfirlýsingu um að biðja um áætlun um að gera eitthvað fyrir lífshættulegan veg í nágrenni við hv. þm En þegar þeir standa hér upp og kvarta og kveina mega þeir helst til með að ljúka ræðuhöldum sínum með þeirri einföldu yfirlýsingu sem er ekki nema staðreynd og sannleikur: Auk þess ber ég alveg ábyrgð á þessu sem einn af stjórnarþm.

Fyrir hverja eru þessar ræður haldnar? Fyrir auða ráðherrastóla, þar sem sýnt er fram á það með sönnum dæmum að alls staðar skortir peningana og allt framtak og allan vilja til framtaks hjá þeim sem pólitíska forustu hafa. Það gerir það ekki hjá Vegagerðinni, sem áratugum saman hefur verið tilbúin að taka við miklu meira fé og hefur miklu meira framkvæmdaafl en við höfum nokkurn tíma notfært okkur. Við hverja og yfir hverju eru þessir menn að kvarta, sem ráða ferðinni, þegar þeir horfa á það að peningarnir, sem koma frá umferðinni, eru teknir ófrjálsri hendi í ríkishítina, en vegamálin svelt? Dettur þessum hv. þm. og stjórnarliðum í hug að þeir hræri hjarta manns til einhverrar sérstakrar meðaumkunar með gersamlega ófærum vegum eins og finnast um allt Vesturlandskjördæmi, varla nokkur spotti fær svo vel sé. Maður getur ekki hrærst mikið við að hlusta á þessar harmatölur hjá þeim mönnum sem gætu ráðið því að taka hér til höndum. Er það kannske ekki þeirra till. um langtímaáætlun í samgöngumálum sem hæstv. samgrh. hefur borið fram? Og hver er hún? Til 20 ára. Það getur vel verið að það drepi þá ekki, hrunið í Ólafsvíkurenni, og hann komi í veg fyrir það á næstu árum. En þá drukkna þeir í einhverjum forarpyttunum í staðinn, svo að það er vandséð, hvort betra er að rotast eða drukkna í því efni. Það sýnir sig að á stundum, jafnvel fyrir 7 árum, var tekið til allmiklu meira fé af vergri þjóðarframleiðslu heldur en þessi 20 ára vesæla áætlun samgrh. gerir ráð fyrir — og ég hef ekki heyrt einn einasta mann af stjórnarliðinu gagnrýna þessa áætlun. Við gerum okkur vissulega vonir um það, sem höfum borið fram allt aðra áætlun, að ná einhverjum árangri í þessum málum, að við getum sveigt þessi ósköp af leið í rétta átt. En það er eftir að sjá hverju fram vindur í þeim efnum.

Hv. 1. þm. Vesturl. gat þess, að till. sjálfstæðismanna í vegamálum væri óraunsæ. Það þyrfti þá helst að vita að hvaða leyti hún er það. Það er nefnilega fullkomið óraunsæi að halda fram þeirri stefnu sem nú gildir í samgöngumálum, — óraunsæi ef menn hafa þjóðarhag í huga. Ég minni á það, að okkar tillöguflutningur var m. a. byggður á því, þótt þar væru tiltekin ákveðin verkefni innan framkvæmdatímabila, að sérfræðingarnir okkar úr Vegagerðinni fengju að raða þessu skynsamlega innan áætlunartímabilsins miðað við arðsemi vega þannig að allt væri tekið með í dæmið. Það er bara fyrirsláttur framkvæmdalausra og getulausra manna að afgreiða þessa till. okkar, sem er tímamótatill. í þessum sökum, sem eitthvert óraunsæi. Og hvað skeður svo þegar upp kemur till. um að verja verulega auknu fé úr Byggðasjóði til framkvæmda í vegamálum, — hvað skyldi þá ske, — peningum úr Byggðasjóði til verkefnis sem er langsamlega mikilvægasta byggðamálið? Þá er auðvitað brugðið hart við og Byggðasjóður skorinn niður sem nemur jafnvel meira fjármagni en það sem menn höfðu í huga að verja til vegagerðar árlega. Þetta er allur myndarskapurinn. Og við sjáum myndarskapinn í tveimur mikilvægustu málaflokkunum okkar, orkumálunum núna, og þau ætla ég ekki, herra forseti minn, að fara að ræða. Það gefst tími til þess innan skamms að fletta blöðunum þeirra þar og hefur raunar verið gert upp á síðkastið. En hér er næstmikilvægasti málaflokkurinn og þó er með þessum ódæmum að þessu staðið.

Ég hirði ekki um að ræða einstaka liði. Það mun vera rétt, sem hv. 4. þm. Vesturl. sagði, að menn, kjósendur, allir landsbúar bíða með óþreyju eftir að sjá niðurstöðu á vegáætlun hverju sinni. En ég fullyrði að t. a. m. nú og jafnan áður mun varla nokkurt plagg verða til annarra eins vonbrigða og þær niðurstöður, sem menn fá svo í hendurnar. Þannig er nú að þessum málum staðið þótt hver mæli upp í annan hér af ráðamönnum um lífsnauðsyn á framkvæmdum í þessum málaflokki. Það er alveg sýnt, það hefur sýnt sig upp á síðkastið, að við megum ekki gera ráð fyrir neinum verulegum breytingum á því meðan sama stjórnarstefna og sömu stjórnarherrar fara með völd í landinu. Ég geri mér engar gyllivonir í því efni. Það verður haldið áfram að lurfast við þessi mál með þeim hætti sem við höfum hér fyrir augum, og það er þeim mun hryggilegra, eins og ég segi, sem það liggur fyrir að þetta eru einhver mikilvægustu málefni okkar. Og ég verð að segja það, að það er vafasamur gróði að því að fá aukin bundin slitlög ef það á einvörðungu að bitna á því að byggja vegina í héruðum landsins upp úr snjó. Ef engu er bætt við, en aukið við þennan lífsnauðsynlega þátt sem bundna slitlagið vissulega er, þá vitum við hvernig fer fyrir samgöngunum innan héraðanna, enda gefur nú þegar á að líta í vegáætluninni sem liggur fyrir hér til umr. Það bitnar auðvitað á framkvæmdum þar. Við höfum hins vegar lagt til í okkar till. að það yrði gert sérátak um bundnu slitlögin, að meginhluta Vegasjóðsins, sem við höfum handa í milli, yrði ráðstafað til verkefnanna við byggingu veganna upp úr snjó og tengingu þeirra innan héraðanna, en sérstök fjáröflun færi fram til bundna slitlagsins. Öðruvísi vinnst þetta auðvitað ekki. Menn eru að reyna að gera sig góða með því að auka slitlögin stórum, en sækja alla peningana í uppbyggingu veganna og viðhaldið. Má auðvitað öllum mönnum ljóst vera til hvers það leiðir. En það er hryggileg staðreynd, að við skulum árum saman verða við það að búa að hafa áhugalitla framkvæmdamenn í æðstu yfirstjórn þessarar blessaðrar þjóðar, — áhugalitla í hinum mikilvægustu málaflokkum, eins og t. a. m. þessum sem við nú ræðum um.

Ég hef lítið heyrt til hæstv. samgrh. í þessum sökum nema úrtölur einar. Það klingdi við hér í allan fyrravetur þar sem talað var við hann af fjölmiðlum, helst daglega, að hann bar það á borð, þegar menn voru að spyrja um aukin framlög til vegamála og samgöngumála, að hann spurði þá á móti: Ætlið þið að draga úr sjúkrahúsbyggingum, ætlið þið að draga úr skólabyggingum? — eilíft nudd og aumingjaskapur í öllum svörum, enginn hugur til neins stórátaks í málefnunum. Ekki er ástandið svona hjá þeim þjóðum þar sem við þekkjum til og þykjast búa menningarlífi í þjóðfélagi sínu. Menn ættu að leggja leið sína til Færeyja og líta á hvernig staðið er að þessum málum þar, þar sem liggja blúndulagðir vegir fram á hvert fuglabjarg. Og þar eru menn ekki árum saman að hæla sér af því að hafa brotist eins og 700 metra í gegnum Oddsskarð. Þar hafa þeir lagt jarðgöng, a. m. k. tvenn, sem ég hygg að séu milli 2.5 og 3 km. Þegar ég var viðstaddur setningu Lögþingsins þeirra reyndust samgöngumálin vera sá málaflokkurinn sem langmestu fé var varið til. Og þannig er þetta um allar jarðir þar sem menn vilja búa vel um sig. Þar við bætist að þjóðhagslega séð getur varla hagstæðari og arðvænlegri framkvæmdir, að við skulum eiga í tugum, jafnvel hundruðum km sem gætu gefið af sér yfir 100% í arð og samt skuli vera með þessum hætti að málum staðið. En enda þótt maður megi ekki við bindast að taka til máls og gagnrýna þessa hluti, þá er hitt bersýnilegt, að það er talað fyrir daufum eyrum. Allt stóðið, 10 manna, hæstv. ríkisstjórnarstóð, sér ekki ástæðu til þess, einn einasti maður að hlýða á þá umr. sem um þennan næstmikilvægasta málaflokk þjóðarinnar fer fram nú á hinu háa Alþingi, næst á eftir orkumálunum. Það getur vel verið að þeir fjölmenni hér aðeins betur þegar að því kemur að greiða atkv. um orkuverin þeirra sem þeir eru að mála á vegginn nú. Herra forseti. Ég hirði ekki um að þylja þessa raunatölu lengur. Það kemur í engan stað niður. Það vantar áhugann hjá þeim sem ráða ferðinni — allan áhuga. Peningarnir, sem umferðin gefur af sér, eru til og þetta eru svo hagkvæmar og arðgefandi framkvæmdir að við höfum leyfi til þess að taka stórkostleg erlend lán þess vegna. Þetta hefur margsinnis verið sýnt fram á. Geta okkar til framkvæmda og framkvæmdaafl er einnig miklu, miklu meira en við nýtum okkur. En hitt er ljóst, þótt ég bindi vonir við að tillögugerð sjálfstæðismanna í samgöngumálum muni verða til þess aðeins að ýta við þessum málum í jákvæða og rétta átt, þá munu sjálfstæðismenn og Sjálfstfl. ekki draga af sér við það þegar í stað er hann nær einhverjum tökum til stjórnar í þessu þjóðfélagi, þá mun hann vissulega taka þessa sína tillögugerð og málafylgju upp, eins og hún hefur birst hér á hinu háa Alþingi, og sýna fram á, að það er ekkert óraunsæi sem þar er á ferðinni, heldur lífshagsmunamál sem er ekkert annað en að hrinda í framkvæmd, eitt af hinum allra mikilvægustu sem við blasa og óunnin eru.

Nei, það verður að segjast eins og er, að með ólíkindum má telja þau grimmu örlög sem við búum við, að ekki skuli vera meiri áhugi og vilji til verkanna heldur en við höfum hér dæmin um á þessu einhverju dapurlegasta plaggi sem Alþingi er ætlað að afgreiða.