19.05.1981
Sameinað þing: 85. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4625 í B-deild Alþingistíðinda. (4804)
Almennar stjórnmálaumræður
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Aftur og aftur í allan vetur hefur iðnrh. boðað að eftir fáeinar vikur mundi hann birta þjóðinni stefnu sína í virkjunarmálum. Fyrir rúmri viku fékk svo þjóðin að sjá hvað þessi ráðh. Alþb. telur vera stefnumörkun, þegar hann lagði fram frv. sitt um raforkuver. Það er skemmst frá að segja að í frv. fólst engin stefnumörkun. Þvert á móti var það staðfesting á áframhaldandi aðgerðaleysi ráðh. og ríkisstj. í þessum málaflokki. Samþykkt frv. í núverandi formi gefur iðnrh. hins vegar tækifæri til þess að halda áfram að flækjast fyrir og tefja allar framkvæmdir, eins og hann og hans flokkur, Alþb., hafa tíðkað fyrr og síðar. Í raun og sannleika fjallar frv. ríkisstj. einungis um að halda áfram að teikna og hanna virkjanir. Að því leytinu var frv. óþarft. Hitt er verra, að í því felst möguleiki þessa ráðh. Alþb. til að tefja málin enn frekar og spilla þannig fyrir sókn til bættra lífskjara.
Það er kannske ekki nema von að þessum ráðh. Alþb. gangi illa að koma saman skynsamlegri orkustefnu. Hann er nefnilega fangi eigin fordóma og síns flokks, fangi þeirra fordóma, að ekki megi reisa hér orkufrek iðjuver. Sannleikurinn er sá, að án uppbyggingar á orkufrekum iðnaði er allt tal um stórfelld virkjunaráform út í hött. Sé ekki ætlunin að reisa og reka iðjuver, sem byggja framleiðslu sína á stórnotkun raforku, er hvorki ástæða né aðstaða til stórfelldra virkjunarframkvæmda. Það er eins víst að ráðh. sé þetta ljóst, en vilji reyna að dylja það í lengstu lög og af því stafi sú sýndarmennska sem hann nú leikur með frv. sínu. Án orkufreks iðnaðar geta Austfirðingar gleymt áformum um virkjun í sínum landshluta á næstu árum og Norðlendingar sömuleiðis því að nærtækar endurbætur á vatnsvegum á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu munu þá duga að sinni.
Á næstu tveimur áratugum þarf að finna ný atvinnutækifæri fyrir 25–30 þús. manns. Ekki gerist það í landbúnaði, ekki í sjávarútvegi með auðlindirnar í sjónum ýmist fullnýttar eða ofnýttar. Virkjun orkunnar í fallvötnum landsins til orkufreks iðnaðar er á hinn bóginn álitlegasti valkosturinn sem Íslendingar eiga til að treysta lífskjörin í landinu og fjölga atvinnutækifærum. Verði ekki þegar tekin upp sú stefna má búast við vaxandi landflótta og stöðvun efnahagslegra framfara. En hér verður ekki skapað traustara og betra þjóðfélag nema fylgt sé fastmótaðri stefnu og að stefnan í málefnum orkufreks iðnaðar og í virkjunarframkvæmdum fylgist að.
Alþfl. telur brýnt að þegar í stað verði teknar ákvarðanir um slíka stefnumörkun. Alþfl. telur að slík stefna eigi að fela í sér eftirfarandi meginþætti:
Í fyrsta lagi, að samningagerð um sölu raforku til orkufreks iðnaðar verði tekin af iðnrh. og falin sérstakri orkusölunefnd sem Alþingi kjósi, enda hafa iðnrh. og ríkisstj. þegar sannað getu- og áhugaleysi sitt í þessum málum. Orkusölunefndin ætti að miða störf sín við að sala til orkufreks iðnaðar a. m. k. fjórfaldist á næstu tveimur áratugum og vinna sérstaklega að því að fljótlega rísi þrjú ný iðjuver: eitt á Austurlandi, eitt á Norðurlandi og eitt í suðvesturhluta landsins, auk stækkana á þeim orkuverum sem fyrir eru.
Í öðru lagi teljum við, að virkjunarframkvæmdir ættu að vera á hendi eins aðila, Landsvirkjunar, sem öllum sveitarfélögum landsins yrði gert kleift að gerast aðilar að.
Í þriðja lagi, að til þess að geta nýtt þau tækifæri, sem bjóðast, og til að tryggja samfelldar virkjunarframkvæmdir verði að taka upp þau vinnubrögð, að á hverjum tíma séu fyrir hendi nokkrir fullhannaðir virkjunarvalkostir umfram það sem er í rekstri eða í byggingu þannig að gripa megi þau tækifæri sem gefast.
Í fjórða lagi, að þeim virkjunarvalkostum, sem nú eru til umfjöllunar, verði þegar raðað og framkvæmdir tímasettar með eftirfarandi hætti:
Í fyrsta lagi, að framkvæmdir á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu miðist við 250 mw. viðbót í raforkuframleiðslu á árunum 1983–1985 að meðtalinni seinustu vél Hrauneyjafossvirkjunar.
Í öðru lagi, að Blönduvirkjun og framkvæmdir við hana verði miðaðar við að orkuframleiðsla þar geti hafist árið 1986.
Og í þriðja lagi, að Fljótsdalsvirkjun geti hafið orkuframleiðslu í áföngum á árunum 1987–1989.
Ef hins vegar ekki nást samningar við landeigendur um virkjun Blöndu fyrir mitt sumar verði Blönduvirkjun frestað, en Fljótsdalsvirkjun flýtt að sama skapi.
Þessi virkjunarstefna á að vera grundvöllurinn sem miðað er við í uppbyggingu orkufreks iðnaðar, og frá henni verði einungis vikið ef ekki nást samningar um hagkvæma orkusölu í samræmi við hana.
Með stefnumótun þessari yrði höggvið á þann úrræðaleysishnút sem nú drepur öll virkjunarmál í dróma. Öllum málsaðilum væri ljóst hver stefnan er, og allir gætu einbeitt sér að því að framkvæma verkin í stað þess að eyða kröftunum í orðagjálfur, skýrslugerð og tilgangslausa togstreitu, eins og nú viðgengst fyrir forgöngu ríkisstj.
Það er ekki hægt að hafa alla enda lausa eins og ríkisstj. gerir. Það verður að miða virkjunarstefnuna við ákveðin markmið og vinna að því að finna orkufrek iðnaðartækifæri í samræmi við hana. Þannig teljum við Alþfl.-menn að eigi að halda á málum, og við erum reiðubúnir til samstarfs við aðra um meginþætti þessarar stefnu. Sjálfstæðismenn hafa lýst svipaðri stefnu, og ég ætla að samstaða verði milli Alþfl. og Sjálfstfl, um veigamikla þætti þessara mála. Og ég þykist vita að margir framsóknarmenn séu í hjarta sínu samþykkir þessari stefnumörkun, og ég vildi vona að þeir létu hyggjuvit sitt og skynsemi ráða — þjóðinni til heilla — og losuðu sig af þeim klafa núllstefnunnar sem Alþb. hefur bundið þá á. Á sama hátt eru vitaskuld skynsemdarmenn innan Alþb. sem ættu að fylgja fordæmi Alþb.-mannsins Hrafnkels Jónssonar á Eskifirði og koma til liðs við þessa umbóta- og framfarastefnu, segja skilið við Alþb.
Ég þykist vita að Hjörleifur Guttormsson iðnrh. komi hér á eftir og mæli fagurlega og segi ykkur að þetta sé nú allt á góðri leið og málin vandlega undirbúin og vel að öllu hugað. En ég segi ykkur bara: Trúið honum varlega, því að enginn undirbúningur stenst þegar forsenduna vantar. Hjörleifur getur talið upp langar romsur af skýrslum og athugunum, en í þeim er ekkert hald þegar ákvarðanir eru ekki teknar. Hann gæti t. d. vitnað í frv. um stálbræðslu, steinullarverksmiðju og sjóefnavinnslu. En hvað sem um þau verður skipta þau engu varðandi orkufrekan iðnað og beislun fallvatnanna. Stálbræðsla og steinullarverksmiðja mundu nefnilega samtals einungis nýta 15.5 mw eða minna en 7% af uppsettu afli Blönduvirkjunar, það er allt og sumt.
Annars hefur iðnrh. ekki einungis orðið þjóðinni til skaða með töfum og tafsi og neitunarvaldi í orku- og iðnaðarmálum. Hann hefur líka með framkomu sinni og málatilbúnaði í svonefndu ÍSAL-máli, hvað svo sem niðurstöðum kann að líða, rýrt traustið á Íslendingum erlendis og stórspillt möguleikum okkar á skynsamlegum viðræðum við erlenda aðila um orkufrek iðnaðartækifæri. Er það reyndar með endemum ef rétt er að nú síðast hafi iðnrh. afþakkað það, að fulltrúar endurskoðunarfyrirtækisins Coopers & Lybrand, sem gera áttu upp ágreininginn milli ráðh. og ÍSAL, kæmu hingað í síðustu viku til að skýra frá viðhorfum sínum. Ætli ráðh. vilji tryggja að þingið sé farið heim þegar niðurstaðan berst?
Herra forseti. Virkjun fallvatnanna samhliða uppbyggingu orkufreks iðnaðar er leið okkar Íslendinga til bættra lífskjara. Þingflokkur Alþfl. hefur mótað afdráttarlausa stefnu í þeim málum.
Í herbúðum ríkisstj. ríkir aðgerðaleysi í orkumálum sem reyndar mörgum öðrum málum. Þessari ríkisstj. virðist ekki einu sinni ætla að takast að nýta þær góðu ytri aðstæður, sem nú ríkja, til að ná stöðugleika í efnahagsmálum. Á hinn bóginn birtist nei-stefnan, núllstefnan í hverju málinu á eftir öðru: ekki flugstöð, ekki nýja olíutanka í Helguvík, enga breytingu á olíuviðskiptum, enga nýja uppbyggingar- og framfarastefnu í átvinnumálum, ekki orkufrekan iðnað og þá ekki virkjanir. Íhaldssemin ríður húsum. Það má engu breyta. Erkiíhaldið birtist Alþb.
Þessa íhaldssömu nei-stefnu, núllstefnu ættu allir um bótasinnar að taka höndum saman um að hrista af sér. Við verðum að hefja hér framfarasókn, treysta lífskjörin og atvinnumöguleikana svo við getum sinnt þeim brýnu félagslegu verkefnum sem óleyst eru: leyst úr húsnæðismálum ungs fólks með eðlilegum hætti í stað þeirrar villimennsku sem nú ríkir, séð öldruðum fyrir þeirri umönnun sem þeir þurfa og eiga kröfu á, bætt aðbúnað á vinnustöðum og sinnt málefnum fatlaðra af myndarskap, svo nokkur dæmi séu tekin. Að þessu teljum við Alþfl. menn að verði að vinna. Óvissan og óstöðugleikinn verða að víkja úr íslensku þjóðfélagi. Við getum byggt hér traust þjóðfélag og stefnt til betri líkskjara ef við nýtum auðlindir landsins af framsýni og skynsemi. Við getum búið öllum Íslendingum gott líf í þessu landi ef við leggjumst á eitt og hættum að hjakka í sama farinu eins og núv. ríkisstj. gerir. Það sem þarf er samstaða allra umbótasinna. Um slíka framfarasókn ættum við að sameinast og að því telur Alþfl. að verði að stefna. — Góðar stundir.