19.05.1981
Sameinað þing: 85. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4643 í B-deild Alþingistíðinda. (4810)
Almennar stjórnmálaumræður
Guðmundur J. Guðmundsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Í gær fékk þjóðin að heyra ein furðulegustu tíðindi sem hún hefur lengi heyrt. Sjúkrahúslæknar hafa sagt upp störfum þótt kjarasamningar þeirra séu ekki úr gildi fallnir. Þeir hafa stofnað félag sem tekur að sér að vinna eftir reikningi, og nú hefur hin fyrirhugaða þjónusta verið verðlögð. Tímakaup sérfræðings verða 420 kr. lágmarkskaup, 420 kr. á klst., í gömlum krónum 42 000 kr. á klst. á meðan almennt verkafólk hefur 20–26 kr. á klst. Fyrir hvert útkall að degi til ætla þessir sérfræðingar sér að fá minnst 6 klst. sem gerir um 250 þús. gkr. plús 7 þús. kr. í ferðastyrk, eða um 260 þús. gkr. fyrir hvert útkall sérfræðings að degi til. Fimm útköll sérfræðings á dag ættu eftir þessum taxta að kosta tæpar 1300 þús. gkr. eða rösklega mánaðarkaup alþingismanns og þykja alþingismenn þó vel launaðir.
Þetta eru kröfur frá sérfræðingum sem að vísu eru hæfir, flestir hverjir, en ríkið hefur kostað nám þeirra og hefur ekki talið það eftir sér. Ríki og bæjarfélög hafa byggt sjúkrahúsin, og öll hin dýru tæki til þeirra hefur almenningur borgað. Öll aðstaða er ókeypis. Og lágmarkskrafa er u. þ. b. eða upp undir tuttuguföld laun verkamanns. Á sama tíma krefst stór hluti þessara manna að læknadeildinni sé að mestu lokað.
Hvað er raunverulega hér að ske? Ef læknar komast fram með þessar kröfur, þá vitanlega koma aðrir sérfræðingar á eftir og þá er verið að skapa sérfræðingaveldi á Íslandi sem verður algjörlega sérstakur þjóðflokkur í íslensku þjóðfélagi.
Það hefur verið baráttumál almenns launafólks í landinu að koma á fullkominni heilsugæslu og læknaþjónustu, og það er forsenda þess velferðarþjóðfélags sem við stefnum að. Að undanförnu hefur verið mikið rætt um neyðarástand í aðbúnaði og heilbrigðisþjónustu aldraðra. Frumvörp til að bæta hér úr hafa verið flutt hér á hv. Alþingi. Er nú ekki brýnna í hugum almennings að halda áfram á þessari braut en að fimmfalda laun lækna? Ég vil spyrja þig, almenni hlustandi: Telur þú að brýnasta málið í dag sé að margfalda laun lækna?
Ég hélt að það væri brýnna að hækka kaup hinna lægst launuðu og elli- og örorkulífeyrisþega sem margir hverjir búa enn við óviðunandi kjör.
Það má vel vera að einhver byrjunarlaun lækna í föstu starfi sé réttlátt að lagfæra til samræmis þegar samningar eru lausir. En læknar almennt búa ekki við léleg launakjör í dag. Það hefur verið svo um árabil að læknar hafa verið ein virtasta stétt landsins. Í hópi þeirra eru afburðamenn sem aldrei verður fullþakkað. Og læknar eiga að hafa góð laun. En hinu er ekki að neita, að meðal yngri manna í stéttinni ber sífellt meira á þeirri ófélagslegu tilhneigingu að halda sig utan sjúkrasamlaga og grimmari peningasjónarmiðum en áður hafa þekkst. Ég er ekki að leggja hér dóm á bandarískt þjóðlíf í heild, en allir kunnugir menn þar í landi telja læknaþjónustu og öryggisleysi gagnvart henni einn dimmasta blettinn á bandarísku þjóðlífi.
Vill ekki læknastéttin, sem skipuð er að miklum meiri hluta frábærlega hæfum mönnum og virtum, athuga sinn gang betur áður en hún fer að umturna íslensku þjóðlífi og gera lækna og þjónustu þeirra að lúxus í íslensku þjóðfélagi?
Þegar rætt er um íslenskt efnahagslíf, sem við gagnrýnum mjög, verðum við þó að hafa vel í huga að á Íslandi er nær ekkert atvinnuleysi. En í flestum nágrannalöndum okkar er atvinnuleysi og í sumum löndum mjög víðtækt, t. d. í Bretlandi. Fólk, sem komið er yfir tvítugt, hefur þar aldrei fengið vinnu og sumir hafa enga von um að úr rætist á næstu árum. Við skulum þó þakka að Íslendingar eru lausir við það jarðneska helvíti sem atvinnuleysi er.
Umræður á þessu Alþingi hafa á margan hátt verið sérstæðar. Alþfl. er utangátta, enda virðist gengi hans vera lágt meðal kjósenda í dag. Einstakir þm. Sjálfstfl. hafa einbeitt sér að persónulegum svívirðingum og illyrðum um hæstv. forsrh. og samflokksmenn hans í ríkisstj. Þetta heimilisböl flokksins yfirskyggir allan annan málflutning annarra þm. flokksins sem að ýmsu leyti standa vel og efnislega að málum. Og svo heiftúðugur er þessi málflutningur einstakra þm. flokksins að í málflutningi þeirra eru Alþb.-menn sakleysingjar og jafnvel dýrlingar á móti samflokksmönnum þeirra í ríkisstj. Allur lestur og innanflokksdeilur Sjálfstfl. eiga frekar heima í Valhöll en hér á Alþingi.
Í stjórnarmyndunarviðræðunum eftir kosningar kom ákaflega skýrt fram að sjálfstæðismenn með Geir Hallgrímsson í broddi fylkingar töldu skilyrði þess, að hægt væri að ráða við verðbólguna, væri að vísitala væri tekin af kaupi að mestu eða verulegu leyti eða kaup beinlínis lækkað. Því miður tók Alþfl. undir þennan söng. Það tókst að mynda ríkisstj. án þess að þessi áform kæmust í framkvæmd. Stjórnarandstaðan hefur hampað því, að vísitalan hafi verið skert um 7 stig 1. mars s. l. Það má að vísu geta þess, að kaupmáttur á árinu 1981 hefur alla mánuði ársins fram til þessa verið hærri en á árinu 1980.
En þetta er rétt með 7 stigin. En þess er aldrei getið, hvað launþegar fengu í staðinn. Í staðinn kom 1.5% skattalækkun á lægri laun og meðallaun. Þetta hefur verið vefengt af stjórnarandstöðunni. En menn úr öllum flokkum frá Alþýðusambandinu áttu þess kost að fara ítarlega í skattaútreikningana og viðurkenndu allir að skattalækkunin væri staðreynd.
Sá minnkandi kaupmáttur, sem var á árinu 1980, var vegna vísitöluákvæða í svokölluðum Ólafslögum sem skertu vísitölugreiðslur. Nú strax 1. júní n. k. fá launþegar tæplega 1% meiri vísitöluhækkun en ella hefði orðið vegna breyttra ákvæða um vísitölugreiðslur samkvæmt bráðabirgðalögunum frá áramótum. Og það sem eftir er ársins verða vísitöluákvæði hagstæðari launþegum sem getur numið 2–4 stigum.
En brbl. fólu líka í sér hert verðlagsákvæði, og það ætti að vera launþegum til hagsbóta. En þegar ríkisstj. framlengir hindrun á verðhækkunum umturnast Geir Hallgrímsson og Vinnuveitendasambandið og segja að með þessum lögum sé verið að gera Ísland að lögregluríki. Persónulega er ég á því, að á ýmsum sviðum hefði mátt standa fastar á verðlagseftirliti þó ég viðurkenni að ýmsar hækkanir hafi verið óhjákvæmilegar. En sjá menn ekki pólitík Geirs Hallgrímssonar? Í stjórnarmyndunarviðræðum er krafist afnáms vísitölugreiðslu á kaup til að hindra verðbólgu. Ári síðar umturnast sami maður yfir, að ótakmarkaðar verðhækkanir skuli ekki leyfðar í landinu, og það kallað lögregluríki. Baráttan gegn verðbólgunni virðist eingöngu vera gegn launum, en ekki gegn verðhækkunum.
Hér er ekki tími til að gera þessum málum ítarlega skil. En það er sérstætt ástand á Íslandi þessi árin. Í verkföll fara atvinnurekendur sem margir hverjir hika ekki við að loka atvinnufyrirtækjum sínum eða stöðva þau ef þeir fá ekki verðhækkanir sem þeir krefjast. Síðan koma flugmenn og læknar utan samninga og ýmsir aðrir forréttindahópar. En alþingismenn skulu muna það, að fyrst og síðast hafa þeir dýrustu skyldurnar við þá, sem lægst hafa launin, að tryggja atvinnuöryggi þeirra. Og þeir hafa ríkar skyldur við elli- og örorkulífeyrisþega og heilbrigðisþjónustu við þá. Hálaunastéttirnar allar eiga að koma þar langt á eftir. — Ég þakka áheyrnina.