20.05.1981
Efri deild: 112. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4668 í B-deild Alþingistíðinda. (4826)
138. mál, tollskrá
Frsm. (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Eins og ég gat um í framsöguræðu minni hefur þetta mál, sem hér er til umr., fengið nokkuð ítarlega meðferð í fjh.- og viðskn. Nd. og einnig að hluta til á sameiginlegum fundum fjh.- og viðskn. beggja deilda. Við vitum að breytingar á tollskrá geta verið mjög flókið mál og þurfa þó nokkurrar umræðu við áður en þær eru framkvæmdar. Það mál, sem við erum hér að afgreiða, var rækilega kannað áður en tekin var afstaða til þess. Sá háttur að flytja brtt. á síðustu stundu, svo að afbrigða þurfi með slíkum hætti eins og gert var áðan, held ég að sé ekki vænleg aðferð til að fá fram breytingar á tollskrá, heldur sé nauðsynlegt að menn skoði það mál í nefndum þingsins. Harma ég þess vegna að flm. þessarar brtt. skyldi ekki hafa samband við okkur í fjh.- og viðskn. eða við 1. umr. málsins lýsa áhuga sínum á því að bæta nýjum þætti í það frv. sem hér liggur fyrir. Vil ég þess vegna mælast til þess við flm. að hann dragi þessa brtt. til baka þannig að hægt sé að skoða þessi mál við betri kringumstæður, en ekki verði farið að greiða atkv. um þetta hér þar sem málið kemur nánast fyrirvaralaust eða fyrirvaralítið til okkar kasta. Ef flm. er hins vegar ekki reiðubúinn að gera það verð ég að mælast til þess við hv. deild að þessi brtt. verði felld.