11.11.1980
Sameinað þing: 17. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í B-deild Alþingistíðinda. (483)
26. mál, nýting ríkisjarða í þágu aldraðra
Flm. (Helgi Seljan):
Herra forseti. Á þskj. 27 hef ég leyft mér ásamt hv. þm. Stefáni Jónssyni og hv, þm. Skúla Alexanderssyni að flytja svohljóðandi till. til þál.:
„Alþ. ályktar að skora á ríkisstj. að láta fara fram könnun á þeim möguleika að nýta ríkisjarðir í nánd þéttbýlisstaða með góða heilsugæsluaðstöðu sem dvalarheimili fyrir aldraða eða festa kaup á jörðum í þessu skyni.
Dvalarheimilin yrðu byggð upp sem smáar einingar, þar sem búandfólk, sem flytja þarf af bújörðum sínum vegna aldurs eða heilsubrests, gæti haft smábúskap, sameiginlega eða út af fyrir sig undir ákveðinni yfirstjórn og með vissri aðstoð.
Reynt yrði að tengja slík heimili svo sem kostur væri við smáiðnað í sveitum einnig.“
Þessi till. hefur tvívegis áður verið flutt og flutt fyrir henni þá ítarleg framsaga og vísast til þess í meginatriðum.
Í fyrsta lagi er ástæða til að leggja áherslu á að hér er um könnun að ræða, en hún er hins vegar fyllilega ómaksins verð. Það skal fram tekið, eins og sagt er í l. málsgr., að þetta er ekki alfarið bundið ríkisjörðum, heldur sé einnig að því vikið að festa kaup á jörðum í þessu skyni.
Hugmyndin að þessu er, eins og segir í grg., m.a. komin frá þeim sem hér ættu gerst að vita, þ.e. frá sveitafólki sem orðið hefur að fara á dvalarheimili í þéttbýli þvert gegn innsta vilja sínum, aðeins af því að um annað var ekki að ræða, — sveitafólki sem ekki gat rekið sjálfstæðan erfiðan búskap, — búandfólki sem hafði alla orku og krafta til að hafa smábúskap með höndum, — fólki sem situr nú að mestu auðum höndum, en vildi gjarnan leggja hönd á plóginn að einhverri verðmætasköpun í þjóðfélaginu og þá eðlilega helst þeirri sem tengist lífsstarfi þess um langan aldur. Þessi sjónarmið eru hér sett fram í tillöguformi eins og þau komu frá þeim aðilum sem vöktu fyrst máls á þessu.
Hér er vikið að nokkrum spurningum sem við þurfum að láta athuga varðandi könnun af þessu lagi:
Það er fyrst spurningin um form. Það er orðið það form sem nú er algengast, sem betur fer, að hér sé um að ræða dvalarheimili með vinnuaðstöðu, með endurhæfingu, með tómstundaiðju. Þessi stefna er orðin allsráðandi: smáar einingar í stað hæla.
Tengsl við heilsugæsluaðstöðu eru sjálfsögð og þess gætt að þarna sé ekki um of miklar fjarlægðir að ræða þegar um er að ræða það sem í þessari till, felst: að nýta bújarðir til uppbyggingar slíkra lítilla dvalarheimila.
Við komum að spurningunni um umhverfi, það umhverfi sem fólk vill vera í, þær lífsvenjur sem fólk hefur vanið sig á, og þá auðvitað nátengt því lífshamingjunni, hvernig samræma megi og aðlaga allt þetta sem best.
Við komum að spurningunni um fyrirkomulag sem þessi könnun tæki til, að reyna að nýta þá aðstöðu sem fyrir hendi kann að vera. Aðstaða á ýmsum ríkisjörðum og öðrum jörðum, sem vel kynnu að vera þess virði að festa kaup á, kann að vera slík að það þurfi lítið fyrir þær að gera hvað varðar húsakost til að unnt væri að koma þessu í framkvæmd.
Hér er um það að ræða að þarna eru starfskraftar sem annars nýttust ekki, og kemur þá um leið inn á lífsfyllingu þess fólks sem þarna ræðir um.
Í grg. er nokkur vísbending um hugsanlegt fyrirkomulag þar sem segir að könnun þessa eigi að gera sem besta því hér gæti hið aldraða fólk búið við svipaðar aðstæður og lífsstarf þess hefur við miðast, með þeirri aðstoð að sjálfsögðu sem nauðsynleg kann að reynast, bæði varðandi vissa yfirstjórn, ráðsmann eða forstöðumann, nauðsynlega aðstoð varðandi vélanotkun og ef með þarf einhverja heimilishjálp. Síðan segir að smáar einingar væru hér eðlilegastar, en þó yrði stærð þeirra að fara eftir hagkvæmni varðandi nýtingu jarðar og ekki síður fjárhagslegri hagkvæmni.
Um leið skal minnt á að erlendis eru til dæmi í svipuðu formi sem hafa þótt gefast vel. Könnunin ætti að taka mið af því.
Ég held að aðalatriðið í þessu máli sé að reyna að leysa ákveðið vandamál varðandi lífsvenjubreytingu og hina snöggu röskun sem verður á högum öllum. Ég bendi á það alveg sérstaklega, að nú er ég fullviss þess að bændur búa tengur en vera skyldi á jörðum sínum vegna þess að þeir treysta sér ekki til þess að hverfa frá lífsstarfi sínu og vegna þess að þeir hafa ekki aðstöðu til að halda því áfram þó í smærra mæli væri, eins og hér er gert ráð fyrir. Hér er gert ráð fyrir að það yrði í mjög litlum mæli, en engu að síður alveg nægilega miklum til þess að þeir hlytu af því bæði lífsfyllingu varðandi starf og eins möguleika varðandi einhverjar smátekjur.
Í grg. er bent á atvinnumál aldraðra í heild. Sú athugun mun að vísu í fullum gangi og það er þá von að aðgerðir fylgi í kjölfarið, annaðhvort með ákveðinni löggjöf um atvinnumál aldraðra eða þá þætti í löggjöf með að sjálfsögðu skipulagðri framkvæmd sem afleiðingu þess.
Það er einnig bent á aðra þál., sem samþ. hefur verið hér á Alþ. og könnun hefur farið fram á hjá Framkvæmdastofnun ríkisins, um smáiðnað í sveitum, þjónustu — sem framleiðsluiðnað. Sú könnun leiddi í ljós að ótrúlega margir vildu hagnýta sér þessa iðnaðarmöguleika ef þeir væru fyrir hendi og tryggt væri að þeir stæðust sæmilega fjárhagslega. Þetta mun sem sagt vera að komast af athugunarstigi og yfir á framkvæmdastig. Tenging við þessa könnun hlýtur að vera sjálfsögð.
Ég held að ekki sé ástæða til að vera að fara ítarlega út í þessa till. núna. Hún hefur áður verið flutt. Fyrir henni hefur áður verið flutt ítarleg framsaga og vitnað m.a. í erlendar fyrirmyndir og einnig þær hugmyndir sem það fólk hafði sem til mín leitaði um flutning þessarar till. Það má einskis láta ófreistað í þá átt að samfélagið ræki skyldur sínar við aldraða þjóðfélagsþegna sína. Hér er um lið að ræða í þeirri viðleitni. Hann gæti reynst farsæll sá þáttur, ef grunur okkar flm. reynist réttur, að hér geti verið um hagfellda, mannlega og þjóðhagslega lausn að ræða.
Ég vil svo, herra forseti, leggja til að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. atvmn.