20.05.1981
Efri deild: 112. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4676 í B-deild Alþingistíðinda. (4838)
313. mál, steinullarverksmiðja
Jón Helgason:
Herra forseti. Ég þakka iðnn. fyrir góða afgreiðslu á þessu máli. Ástæðan fyrir því, að ég tel mig þurfa sérstaklega að bera fram þakkir, er sú, að ég er tengdur öðrum þeim aðila sem sýnt hefur áhuga á því að koma upp steinullarverksmiðju, þ. e. Jarðefnaiðnaði hf. á Suðurlandi. Þetta félag var stofnað árið 1974 og í því eru 36 af 38 sveitarfélögum á Suðurlandi, auk fjölmargra einstaklinga. Bygging og rekstur steinullarverksmiðju var eitt af þeim verkefnum sem það tók strax fyrir til umræðu og athugunar á stofnfundi sínum.
Ég ætla ekki að fara að rekja það, hvernig Jarðefnaiðnaður hf. hefur unnið að þessu máli fram á þennan dag. Það væri vitanlega löng saga ef ætti að rekja það nákvæmlega, og er hér ekki staður og stund til þess, enda veit ég ekki hvort það er aðalatriðið. Það, sem held ég hljóti að vera aðalatriðið fyrir byggingu svona verksmiðju, er rekstrargrundvöllurinn sem hún byggist á. Þar er vitanlega mest í húfi fyrir þá sem hana byggja, að undirstaðan sé á viðunandi grunni byggð. En það verða vitanlega fleiri aðilar sem það munu skoða. Það verða þeir lánveitendur sem koma til með að veita lánsfé til að byggingin nái fram að ganga. Jarðefnaiðnaður hf. hefur unnið að þessu á þeim grundvelli að hér yrði um samnorrænt verkefni að ræða og mun verða leitað eftir lánsfé úr samnorrænum lánasjóðum. Þeir munu þá vitanlega athuga mjög nákvæmlega hvernig sá grundvöllur er sem Jarðefnaiðnaður hugsar sér að verði fyrir rekstri þessarar verksmiðju.
Ég býst við að við séum öll sammála um að það er leiðinlegt þegar upp kemur togstreita milli staða um svona verkefni. Þess vegna verð ég að segja það, að mér fannst það breyta málinu töluvert mikið þegar það kom í ljós nú í vetur, að hér er ekki eingöngu um það að ræða, heldur um mjög skiptar skoðanir þeirra tveggja aðila, sem áhuga hafa sýnt á þessu verkefni, um hvers konar fyrirtæki væri hugsanlegt að yrði að ræða. Það getur vel verið að þetta fari að einhverju leyti eftir ólíkum staðháttum. En það hefur komið í ljós, að Sunnlendingar telja að það sé vænlegra að byggja stærri verksmiðju, sem yrði þegar í upphafi útflutningsaðili og þar gæti þá orðið um að ræða upphaf að miklu stærri framleiðslu hér á landi ef vel tækist til. Fyrir norðan telja menn hins vegar að grundvöllur sé aðeins fyrir tiltölulega litla verksmiðju.
Eins og ég sagði áðan er það rekstrargrundvöllurinn sem skiptir þarna mestu máli, og þegar þannig er komið, að þarna er um tvenns konar rekstur að ræða sem er nokkuð ólíks eðlis, ætti að vera hægara að gera sér grein fyrir staðreyndum og meta hvar hagkvæmt er að hafa þetta því að ég held að það sé engum til góðs að koma upp fyrirtæki sem yrðu eilíf vandræði með.
Ég ætla ekki að fara að metast um þetta að öðru leyti, en vildi þó aðeins að gefnu tilefni taka það fram, að það er misskilningur að Suðurland sé hluti af stór-Reykjavíkursvæði. Það er vitanlega ekki nýtt, að það komi fram, og vafalaust skiljanlegt fyrir þá, sem lengra eru í burtu, að finnast það muni vera auðveldara fyrir Sunnlendinga að teljast til þessa svæðis en þá sem lengra eru í burtu. En það er óhætt að segja að nálægðin hafi þá bæði neikvæð og jákvæð áhrif, enda er það niðurstaðan í áliti byggðadeildar að þörf muni vera fyrir uppbyggingu á atvinnurekstri á báðum stöðum.
Ég ætla ekki að fjölyrða frekar um þetta, vil aðeins endurtaka þakklæti mitt til n. fyrir góða afgreiðslu á málinu.