20.05.1981
Efri deild: 112. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4684 í B-deild Alþingistíðinda. (4848)
275. mál, atvinnuleysistryggingar
Lárus Jónsson:
Herra forseti. Við hv. þm. Salome Þorkelsdóttir höfum ritað undir nál. í þessu máli með fyrirvara. Það er aðeins út af einu atriði sem þessi fyrirvari er gerður og ber hann ekki að skoðast á einn eða annan hátt sem neins konar afstaða gegn þessu máli. Þvert á móti styðjum við þetta merka mál og teljum, að þarna sé um að ræða nokkrar umbætur í löggjöfinni um atvinnuleysistryggingar.
Það er aðeins eitt atriði sem við höfum fyrirvara um, og það eru deiluatriði milli ríkisstj. og vinnuveitenda annars vegar og verkalýðshreyfingarinnar hins vegar. Í 10. gr. er kveðið svo á, að atvinnurekendur skuli greiða 1% af ákveðnum taxta í iðgjöld til Atvinnuleysistryggingasjóðs. Atvinnurekendur leggja fram skriflegt plagg undirritað af fulltrúum ríkisstj. þar sem segir að iðgjald í Atvinnuleysistryggingasjóð skuli vera óbreytt, og skilja atvinnurekendur það þannig að iðgjaldið eigi að haldast eins og það var, en ríkisstj. skýrir sinn málflutning þannig að 1% gjaldið sé óbreytt og hún hafi átt við prósentustigið. Það er náttúrlega nánast broslegt að þegar menn skrifa undir að eitthvert ákveðið gjald skuli haldast óbreytt geti menn breytt grundvellinum eins og þeim sýnist ef prósentan er sú sama. Þetta er eins og hver önnur véfrétt. Hv. þm. Karl Steinar rakti hvernig þetta mál hefði borið að verkalýðshreyfingunni, að sagt hefði verið að þarna yrði um að ræða 1% af fiskvinnslutaxta. Hér er sem sagt um þrætumál að tefla. Við vildum hafa fyrirvara um afstöðu til þess og sitjum hjá í þessu deilumáli.