20.05.1981
Efri deild: 112. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4684 í B-deild Alþingistíðinda. (4850)
275. mál, atvinnuleysistryggingar
Karl Steinar Guðnason:
Herra forseti. Ég hef einmitt borið fram brtt. varðandi þessa grein og bent á að með samþykkt þessarar greinar sé verið að svíkjast aftan að verkalýðshreyfingunni og þjóna atvinnurekendum í baráttu þeirra fyrir því að gera Atvinnuleysistryggingasjóð svo vanmegnugan sem hugsast getur. Brtt. mín var felld. Ég mun því ekki greiða atkv. um þessa grein.