20.05.1981
Efri deild: 113. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4688 í B-deild Alþingistíðinda. (4877)

293. mál, söluskattur

Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Það frv., sem hér er til umr., var flutt af fjórum þm. og var Sigurlaug Bjarnadóttir 1. flm. þess. Í frv. er kveðið á um að sá hluti kostnaðarverðs vöru, sem stafar af flutningi hennar milli staða innanlands, skuli ekki mynda stofn til söluskatts, skuli söluskattsskyldum aðilum heimilt að draga aðkeyptan flutningskostnað innanlands vegna söluskattsskyldra söluvara frá heildarveltu áður en söluskatti eru gerð skil.

Það kom fram hér í hv. deild fyrr í dag, að breytingar á lögum um söluskatt eru mjög flóknar, sérstaklega ef gera á viðamiklar undanþágur frá greiðslu söluskatts hjá aðilum sem að öðru leyti eiga að greiða söluskatt af viðskiptum sínum, þjónustu eða framleiðslu. Þetta mál, sem hér er til umr., hefur áður komið til meðferðar hér á þingi og þá hefur komið fram, bæði í formlegum umræðum og eins við umfjöllun málsins í nefndum, að hér er kveðið á um mjög flókin atriði sem vafasamt er að hægt sé að framkvæma með góðu móti þótt margir hafi fullan vilja á því að létta undir með þeim sem búa langt frá upphafsstað vörunnar, hvort sem það er framleiðslustaður eða innflutningshöfn, og séu þess vegna reiðubúnir að skoða þetta mál nánar. Við í meiri hl. fjh.- og viðskn. teljum hins vegar nauðsynlegt að málið fái víðtækari athugun en hér hefur verið mögulegt að framkvæma, og í trausti þess, að slík athugun fari fram á vegum réttra aðila sem til þess hafa góða þekkingu og víðtæka reynslu í framkvæmd ákvæða af þessu tagi, leggur meiri hl. n. til að frv. verði vísað til ríkisstj.