20.05.1981
Neðri deild: 101. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4696 í B-deild Alþingistíðinda. (4893)
312. mál, sjóefnavinnsla á Reykjanesi
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Það er að sjálfsögðu eðlilegt að hv. nefnd, sem fær þetta mál til meðferðar, líti á forsendur þeirra till. sem hér liggja fyrir.
Ég kveð mér hér hljóðs aðeins til að víkja að því, sem kom fram einkum í máli hv. 9. þm. Reykv., að hér væri verið að taka mikla áhættu og áhættu sem skattborgarar landsins yrðu þolendur af ef eftir færi og þetta reyndist ekki arðbært fyrirtæki. Ég vil vekja sérstaka athygli á því, sem fram kom í frv. upphaflega, að gert er ráð fyrir að farið sé hægt í sakirnar í þessu máli og það sé unnið að þessu áfram sem þróunarverkefni og endanlegar ákvarðanir um byggingu 40 þús. tonna saltverksmiðju verði ekki teknar fyrr en að betur athuguðu máli og þá væntanlega á næsta ári. Í aths. við frv., eins og það var lagt fyrir hv. Ed., kemur fram á bls. 5 tillaga um málsmeðferð þar sem segir svo, með leyfi forseta:
„Verði ákvörðun tekin um byggingu saltverksmiðju leggur nefndin til að framhaldið verði eftirfarandi“ — og Saltvinnslunefnd og iðnrn. gerðu hennar tillögu um málsmeðferð að sinni:
„1. Byggð verði 8000 tonna saltverksmiðja til að vinna að markaðsþróun með fisksalt í stórum stíl.
2. Núverandi tilraunaverksmiðja verði nýtt til þess að gera vinnslutilraunir með kalíframleiðslu og framleiðslu á fínsalti.
3. Boruð verði ein vinnsluhola á svæðinu veturinn 1981–82 og aukið við rannsóknir á svæðinu.
4. Undirbúin verði verkhönnun á 40 000 tonna verksmiðju og tilboða aflað í sölu á afurðum.“
Annars staðar kemur það fram, að gert er ráð fyrir að það verði verkefni næsta árs að fjalla um og undirbúa þennan framhaldsáfanga, þennan 40 000 tonna áfanga, sem byggði á þeirri vinnsluaðferð sem þróuð hefur verið í tilraunaverksmiðjunni á Reykjanesi á vegum Undirbúningsfélags saltverksmiðju þar. Það verður að sjálfsögðu tekið tillit til þeirra viðbótarupplýsinga sem væntanlegar eru af frekari markaðstilraunum með því salti sem fæst úr þessari 8000 tonna verksmiðju. Þessi 8000 tonna verksmiðja er ekki reist á þeirri tækni sem á að byggja á í hinni endanlegu verksmiðju, heldur er þar fyrst og fremst um að ræða að nýta það gufuafl, sem streymir upp úr borholum á Reykjanesi nú, til eins konar eimingar svipað og gert er í sólarlöndum. Þetta salt úr 8000 tonna verksmiðjunni á því að fast með tiltölulega einföldum tilkostnaði, en vinnslu, sem ekki gefur hliðstæðar aukaafurðir og gert er ráð fyrir í endanlegri saltverksmiðju. Á þetta vil ég leggja áherslu til að minnka hrollinn í þeim hv. þm. sem hafa áhyggjur af þessu máli. Þó er ég út af fyrir sig ekki að finna að því, það er ofureðlilegt að menn vilji hugsa sig um í sambandi við afgreiðslu á slíkum málum.
Það er kannske ekki þörf á að vekja athygli á að menn skyldu gæta að eðli þeirra umsagna sem berast, þó að ég ætli ekki að fara að gefa þeim neinar sérstakar einkunnir. Það er að sjálfsögðu ljóst að hagsmunaleg atriði geta komið inn í slíkar umsagnir og endurspeglast í þeim, og við það er ekkert óeðlilegt, — hagsmunir m. a. þeirra sem telja sig hafa hag af því að flytja salt til landsins og standa fyrir sölu þess hér. Á það ber auðvitað líka að líta. Ég er ekki að gera lítið úr þeim aths. sem slíkum, en það segir sig nokkuð sjálft að þar getur verið um mat að ræða sem er litað af hagsmunaaðstæðum.
Vegna tilkostnaðar við þennan 8000 tonna áfanga, sem gert er ráð fyrir að ráðist verði í og nánast er verið að taka hér afstöðu til með því að samþykkja þessa heimild, er gert ráð fyrir að kostnaður við þann áfanga, ásamt öðrum kostnaði sem falli til á þessu ári, verði um 18 millj. kr. Hlutafé, sem lagt yrði í fyrirtækið Sjóefnavinnsluna hf. til að standa undir þessu, er aðeins hluti af þessari upphæð því að þarna er á fleira að líta en beinan stofnkostnað við þennan áfanga.
Þetta vildi ég að fram kæmi, en n. mun að sjálfsögðu líta á þau álitamál, sem hér hafa verið nefnd, og fleiri sem upp kunna að koma.