20.05.1981
Neðri deild: 101. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4708 í B-deild Alþingistíðinda. (4905)
261. mál, jafnrétti kvenna og karla
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Ég er alveg undrandi á því, að hæstv. forseta skuli þykja það eitthvað óeðlilegt að þm. vilji ræða niðurstöðu úr n., jafnvel þó að flm. málsins hafi — ég verð að segja að honum hafi líklega verið þröngvað til að fallast á þessa niðurstöðu málsins til þess að málið fengi afgreiðslu vegna þess að líklega hafa einhver afturhaldsöfl hér í þinginu og í nefndinni ætlað sér að drepa málið algerlega. Það bindur að sjálfsögðu ekkert hendur þm. almennt og því er þeim heimilt að ræða það sem hér er lagt til, sem er frávísun á málinu með rökstuddri dagskrá. Og það eru kannske til meiri jafnréttismenn hér í deildinni en hv. flm. málsins. Þó að ég sé á engan hátt að draga í efa vilja hans til jafnréttis, síður en svo, er jafnvel hugsanlegt að menn vilji ganga enn þá lengra í jafnréttinu.
Út af því, sem hv. þm. Garðar Sigurðsson sagði, er ekkert undarlegt þó menn fari í mörgum tilfellum að gera hv. þm. upp skoðanir vegna þess að það er í vaxandi mæli sem þessi hv. þm. er hættur að hafa skoðanir í málum. Öðruvísi er ekki hægt að gera þetta en með því að gera honum upp skoðanir. Engar skoðanir hafa komið fram frá hans hálfu í þessu máli frekar en öðrum. Þetta er tíðarandi sem nú er ríkjandi innan dyra hjá hv. þm. Garðari Sigurðssyni.
Nú ég verð að segja það, að mér finnst afskaplega leitt til þess að vita, að þetta mál skyldi verða afgreitt með þessum hætti. Það ber vott um afturhaldssemi, að mér finnst, hjá hv. þingnefnd að afgreiða málið með þeim hætti að vísa því frá. Ég lít svo á að þetta nál. og till. um rökstudda dagskrá sé beinlínis um að að vísa málinu frá. (Gripið fram í.) Ég treysti í engu á forsjá þessa máls í höndum hæstv. ríkisstj., tala nú ekki um með hæstv. félmrh. í broddi fylkingar því að þar hræða sporin sannarlega. Málinu er síður en svo borgið þó að því verði vísað til hæstv. ríkisstj. Ég hefði því talið að það hefði verið þingdeildinni til meiri sóma að afgreiða málið með eðlilegum hætti, láta á það reyna hvort ekki væri hægt að knýja fram jafnrétti — með ofbeldi segja sumir. Það getur stundum þurft að beita slíkum aðferðum ef hestar eru staðir. Það virðast margir staðir hér á hv. Alþingi eða í þessari deild að því er varðar jafnrétti. Það hefði því átt að láta á það reyna, hverjir voru staðastir í þessum efnum. Vissulega finnst mér þessi till. um rökstudda dagskrá bera þess merki hvar þá er fyrst og fremst að finna, að undanskildum flm.