11.11.1980
Sameinað þing: 17. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 645 í B-deild Alþingistíðinda. (492)

69. mál, félagsbú

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að fara nokkrum orðum um þá ágætu till. sem hér er til umr. Ég hefði satt að segja talið eðlilegt að hv. þm. Framsfl. tækju til máls um þennan dagskrárlið í Sþ., en það fer lítið fyrir þeim í þingsölum þessa stundina.

Hér er á ferðinni ein af þeim till. sem gætu að mörgu leyti auðveldað og gert minna úr þeim vanda sem nú er við að stríða í íslenskum landbúnaði.

Það kemur fram í grg. þessarar till. að félagsbúum fylgja margir kostir. Við það má bæta að kostirnir eru t.d. aukin og betri nýting vélakosts, en það er einhver alvarlegasti þátturinn í rekstri í landbúnaði núna hversu laklega vélakostur er nýttur, einfaldlega vegna þess að það þarf að leggja mikla áherslu á t.d. heyöflun stuttan tíma á ári, þegar vélakostur er notaður skamman tíma, og fleira af því lagi. Þarna kemur einnig fram bætt nýting á húsrými, m.a. ef um félagsbú er að ræða.

Ég vil líka nefna annað atriði, sem er ekki hvað síst mikilvægt, og það er auðveldari stjórnun á framleiðslu. Félagsbú af því tagi, sem hér eru til umræðu, eru stjórnunarlega miklu hagkvæmari einingar í búrekstri.

Sannleikurinn er sá, að ef þetta form kæmist á í ríkara mæli en nú er hér á landi er það mín eindregna skoðun að þarna væri m.a. fundin leið til að draga í fyrsta lagi úr miklum kostnaði við búrekstur og til að auðvelda stjórnun á framleiðslu. Ég skal rökstyðja þetta m.a. með því að benda á það, sem fulltrúar bænda hafa sjálfir sagt og haldið fram, að stórbýlin væru að mörgu leyti þau hagkvæmustu og það ætti að stuðla að því að stækka búin. Á þennan hátt er það gert, að vísu á öðrum grundvelli en búskapur er almennt rekinn á.

Herra forseti. Ég vildi ekki láta hjá líða að taka undir þessa till., sem mér finnst vera af hinu góða. Ég sakna þess mjög, að fulltrúar Framsfl. skuli ekki vera hér í sal til að ræða þetta mál. Þetta er býsna veigamikið mál og ef menn hugleiða það örlítið nánar er þetta mjög merkilegt mál og er vert allrar umr. og umþenkingar af hálfu þessarar háu stofnunar.