20.05.1981
Neðri deild: 101. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4721 í B-deild Alþingistíðinda. (4929)
288. mál, Landakaupasjóður kaupstaða og kauptúna
Frsm. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Félmn. fjallaði um frv. til l. um Landkaupasjóð, eins og frv. var orðið eftir meðferð í hv. Ed.
Eins og fram kom þegar frv. var tekið hér til 1. umr. gerði hæstv. forseti þessarar deildar þá aths. við fyrirsögn frv. eins og það kom frá hv. Ed., að hér væri ekki um rétt nafn að ræða í fyrirsögn frv. Nefndin fjallaði um frv. í heild og leggur til að það verði samþykkt. En meiri hl. n. flytur brtt. á sérstöku þskj., þskj. 916, þess efnis við fyrirsögn frv., að í stað „Landkaupasjóð“, eins og frv. hafði verið breytt í Ed., komi: Landakaupasjóð.
Herra forseti. Ég þarf ekki að eyða tíma í framsögu fyrir málinu að öðru leyti. Nefndin er, eins og ég tók fram, sammála efni frv., en meiri hl. hennar leggur til nafnbreytinguna.