20.05.1981
Neðri deild: 101. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4723 í B-deild Alþingistíðinda. (4937)
281. mál, lífeyrissjóður sjómanna
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Mér er ljúft og skylt að verða við þeirri beiðni að draga brtt. mínar á þskj. 639 til baka þar sem n. hefur tekið tillit til þeirra. Brtt. þessar voru til komnar vegna þess, að ég á sjálf ekki sæti í fjh.- og viðskn., og í samráði við kollega minn í Tryggingastofnun, Kristján Guðjónsson deildarstjóra þar, þótti okkur tryggara að leggja þessar tillögur fram. Síðan var hann að sjálfsögðu kallaður til samráðs við nefndina. Hans till. og mínar voru eflaust á nákvæmlega sama veg og ég dreg þess vegna mínar brtt. góðfúslega til baka.