20.05.1981
Neðri deild: 102. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4727 í B-deild Alþingistíðinda. (4953)

313. mál, steinullarverksmiðja

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Þessu máli var kastað hér inn í löngu máli fyrir örfáum dögum. Það fer á færibandinu í gegnum Ed. Þetta mál er undarlegt í alla staði. Undarlega er staðið að öllum vinnubrögðum og frv. er óákveðið. Það er ekki einu sinni vitað um stærð eða stað þeirrar verksmiðju sem talað er um að reisa. Það er ágreiningur um það á milli landshluta hvar slík verksmiðja eigi að vera, og Alþingi er ætlað að synda í gegnum þetta í önnum sínum nú.

Mér finnst lítilsvirðing ráðh. fyrir Alþingi vera að færast í aukana síðustu daga. Hann hefur verið þekktur fyrir annað, hæstv. iðnrh., en að vera stuttorður, en svo stuttorður hélt ég að hann yrði ekki að hann sýndi ekki þessari hv. deild. þá virðingu að skýra a. m. k. frá í höfuðatriðum því sama og hann mælti fyrir í Ed. og sömuleiðis þeim rökum sem eru fyrir því að breyta ýmsu í þessu frv. í meðförum Ed. Þetta lætur hæstv. ráðh. alveg undir höfuð leggjast.

Það getur vel verið að þm., sem styðja þessa ríkisstj., láti bjóða sér slík vinnubrögð og þyki þetta gott. En það er til of mikils ætlast af ríkisstj. og hæstv. iðnrh. að stjórnarandstaða kyssi á vöndinn og geri allt eins og þessum herrum þóknast. Hér er ekki un þingleg vinnubrögð að ræða. Það er hægt að sætta sig við að lítið einfalt mál komi frá annarri deild án þess að mælt sé fyrir því. En það er ekki hægt að sætta sig við að stórmáli, sem lagt er fyrir seinni deild og ekki hefur fengið betri meðferð og lengri en það mál hefur fengið í Ed., sé kastað í hendurnar á þdm. og atkvgr. eigi svo að fara fram um að vísa málinu til nefndar og 2. umr., og þar eru menn með keyrin yfir stjórnarliðunum til þess að afgreiða mál án þess að vita neitt hvað verið er að gera. Á svo þessi þjóð að bera virðingu fyrir löggjafarsamkomu sem stendur þannig að vinnubrögðum í stórmálum?