20.05.1981
Neðri deild: 102. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4737 í B-deild Alþingistíðinda. (4968)
335. mál, framkvæmdasjóður aldraðra
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Fyrir heilbr.- og trn. þessarar deildar liggja tvö frv. sem voru óútkljáð og þau einu sem nefndin hefur ekki afgreitt af öllum frv. sem til hennar hefur verið vísað í vetur: í fyrsta lagi frv. um heilbrigðis- og vistunarþjónustu fyrir aldraða, sem lagt var fram og fylgt úr hlaði af hæstv. félmrh., og frv. flutt af Pétri Sigurðssyni og fleiri um sérhannað húsnæði aldraðra og öryrkja. Það varð að samkomulagi í n. að ekki væri tími til að afgreiða og samræma þessi mál á þessu þingi. Það kom fram mjög eindregin ósk frá heilbr.- og trmrh. um að út úr hans frv., stjfrv., væri tekinn kaflinn um fjáröflun til framkvæmdasjóðs aldraðra. Þessum kafla hefur verið breytt hér nokkuð að tillögum ráðh. Þegar formaður n. óskaði eftir því og bar fram ósk ráðh. um að n. flytti þetta frv. taldi ég, eins og almennt er siður, vera eðlilegt að nm. skoruðust ekki undan því að flytja slíkt frv., en ég tók jafnframt fram við formann n., sem talaði við mig um þessi mál, að ég áskildi mér rétt til að flytja eða fylgja brtt. sem fram kunna að koma.
Ég held að um það verði ekki deilt að hlutverkið, sem þessi sjóður á að gegna, er mjög mikilvægt og allir þm. hljóta að lýsa áhuga sínum á því að bæta þar stórum úr frá því sem verið hefur. Hins vegar má mjög um það deila, hvernig fjáröflun til slíks verkefnis sem þessa eigi að fara fram. Hún er hér talin upp í 2. gr. þessa frv. í fimm liðum. Það er inneign Byggingarsjóðs aldraðs fólks, sem flyst yfir á þennan sjóð, og frjáls framlög og aðrar tekjur, sem til kunna að falla, og vaxtatekjur, en aðaltekjuöflunin er sú 100 kr. skattlagning á hvern skattskyldan einstakling, sem hefur verið gerð hér að umræðuefni, og í öðru lagi beint framlag ríkissjóðs eftir ákvörðun við gerð fjárlaga hverju sinni.
Nú finnst mér skipta verulegu máli hvernig aflað er fjár til að sinna þessu verkefni. Ég get ekki fyrir mitt leyti fallist á að greiða atkv. með till. Magnúsar H. Magnússonar og Jóhönnu Sigurðardóttur um að leggja 1% álag á lagðan tekju- og eignarskatt einstaklinga og félaga, í fyrsta sinn árið 1981, jafnvel þó talað sé nú um það og þyki vinsælt umræðuefni hjá sumum að mörg félög í landinu greiði ekki tekjuskatt. Ég held að það væri ekki bætandi á Flugleiðir að leggja á þær tekjuskatt ofan á milljarða tap og ýmis önnur fyrirtæki í landinu.
Hins vegar er hér um að ræða að æskilegra hefði verið að mínum dómi að beint framlag ríkissjóðs hefði verið ákveðið í þessum lögum — beint framlag sem hækkaði eftir skattvísitölu — annaðhvort til að sinna verkefninu öllu, eða þá að fallast á að einhverjum hluta, litlum hluta, tekjuskattsins væri varið í þessu skyni. Ég tel ekki fært, eftir að við erum búnir að afgreiða tekju- og eignarskattsfrv., að bæta við 1% álagi nokkrum dögum eftir það, á sama tíma og við sjálfstæðismenn gagnrýnum og teljum of háa þessa beinu skatta og alveg sér í lagi eignarskattana á almennt íbúðarhúsnæði. Við getum ekki í sömu andránni staðið að aukaskattlagningu sem þessari. Hitt hefði verið æskilegri leið að mínum dómi, en þar ræður ekki stjórnarandstaðan. Það verður að vera ákvörðun þeirra sem ríkisstj. styðja, hvort þeir vilja fara þessa leið eða þá sem er í 1. lið 2. gr. þessa frv.
Ef við fulltrúar Sjálfstfl. í þessari nefnd hefðum sagt að okkur varðaði ekkert um þetta, við vildum ekki eiga neina aðild að þessu frv., væri hægt að ásaka okkur fyrir að við hefðum ekki áhuga á að sinna því brýna verkefni sem þessum sjóði er ætlað. Ég segi því fyrir mitt leyti, að ég tel þessa leið heldur hafa komið til greina. Ef meiri hluti Alþingis eða meiri hl. þessarar hv. deildar er á annarri skoðun, stjórnarmeirihlutinn, og þessi till. liggur fyrir eins og nú er mun ég fyrir mitt leyti greiða henni atkvæði, en eingöngu af þeirri miklu og brýnu þörf sem er á því að auka fjármagn í þessu eina tilviki, að efla byggingar fyrir aldrað fólk í landinu.
Það er ósköp eðlilegt að menn hafi mismunandi skoðanir á hinum svokölluðu nefsköttum eða mörkuðu tekjustofnum eða hvað við eigum að kalla það. Ég segi fyrir mitt leyti að ég er fremur andvígur mörkuðum tekjustofnum eða nefsköttum, en það er mér ekki svo heilagt mál að ég geti ekki í einstökum tilfellum sveigt af leið ef ég tel að það sé brýnt fyrir gott og þarft málefni. Í þessu tilfelli geri ég það og get það. Hæstv. ráðh. hefur og lýst því yfir, sem er alveg örugglega sjónarmið allrar nefndarinnar, að þetta frv., ef að lögum verður, verði hluti af því frv. sem samið verður og örugglega verður lagt fyrir næsta Alþingi.
Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál. Ég lýsi því enn yfir að ég vil ekki bregða fæti fyrir framgang þess, heldur fremur styðja að því að það fái hraða afgreiðslu hér í hv. deild og væntanlega þá einnig í Ed.
Það kom fram í ræðu áðan að rétt væri að vísa þessu frv. til fjh.- og viðskn. Auðvitað má um það deila. Það er ekkert óeðlilegt að það sjónarmið komi fram, af því hér er að verulegu leyti um fjármál að ræða þó að hlutverkið sé auðvitað fyrst og fremst á sviði heilbr.- og trn. En við verðum líka í leiðinni að huga að því, að þetta er aðeins hluti af miklu stærra máli sem verður í heilbr.- og trn. Mér væri alveg sama í hvora n. málið færi, því að það vill svo til að ég á sæti í báðum þessum n., en ég tel fyrir mitt leyti eðlilegra að málinu verði vísað til heilbr.- og trn. sem hefur flutt það og haft með þau frv. að gera sem hafa orðið til þess að þetta frv. hefur orðið til og verið hér flutt.