20.05.1981
Neðri deild: 102. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4739 í B-deild Alþingistíðinda. (4969)
335. mál, framkvæmdasjóður aldraðra
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Ég get ekki látið hjá líða að láta þá skoðun mína í ljós, að á þeim bráðum átta árum, sem ég hef setið hér á þingi, hef ég sjaldan heyrt talað af eins lítilli sannfæringu gegn nokkru máli, sem á annað borð hefur verið talað í eða á móti, og hv. 9. þm. Reykv. gerði. Orðin, sem hann sagði, báru mér því allt annan skilning á afstöðu hans en þau gáfu til kynna, enda trúi ég því ekki, að hann hafi neitt við þetta frv. að athuga, og hefði það orðið hans hlutverk á sínum tíma, þegar hann var ráðh., að koma því á framfæri hefði hann áreiðanlega talað í líkum tón og þeir tveir menn sem hér töluðu, annar núv. heilbrmrh. og hinn fyrrv. heilbrmrh., sem virðast hafa meiri skilning vegna þess að þeir standa nær vandamáli fólksins en hv. þm. virðist gera, þrátt fyrir að vandamálið blasi við hvert sem lítið er hér í Reykjavík. Það vitum við báðir. Við erum báðir aldir upp hér í Reykjavík. En það vill nú svo til að ég ferðaðist vítt og breitt um landið undanfarna mánuði, má segja, meira en áður, og varð var við nákvæmlega sama vandamálið hvar sem komið er. Sameiginlegt átak er því nauðsynlegt.
Ég hefði viljað lenda hér í verulega harðri umræðu við flokksbróður minn, hv. 7. landsk. þm., vegna þess að það er í hverju einasta máli sem hann hefur einhverjar athugasemdir að gera. Hann hefur mál sitt um frv. á þskj. 965 með því að sækja mál sitt harla langt og nota orð sem ætluð eru til þess eins að æsa upp aðila vinnumarkaðarins gegn þessu frv. En mér er ljúft að rifja það upp, að aðilar vinnumarkaðarins leggja mikla áherslu á stórauknar framkvæmdir í þessum málaflokki einmitt, í vistunarmálum aldraðra. Ég vil minna hv. þm. á tiltölulega nýtekna ákvörðun Verslunarmannafélags Íslands þar sem það hefur í huga að nota eigin sjóði til að auka hraðann á byggingum fyrir aldraða og þá aðallega að sjálfsögðu fyrir aldraða félagsmenn sína. Það eru yfirleitt eldri félagar í verkalýðsfélögunum sem á efri árum eru í mestri þörfinni fyrir vistun og umhyggju, og ég held að verkalýðsfélögin hafi oft svarað í verki öllum þeim spurningum sem þm. bar fram. Að sjálfsögðu er rétt að verða við óskum hv. þm. ef hann telur nauðsynlegt að fá forustumenn verkalýðsfélaganna á fund einhverra þingnefnda til að staðfesta það sem þeir hafa margsinnis rekið á eftir, en það eru byggingar á dvalar- og vistunar- eða umhugsunarheimilum fyrir aldrað fólk og sérstaklega þá sem hafa eytt langri ævi á vinnumarkaðinum sem almennir verkamenn.
Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á, að hv. 7. landsk. þm. ætli sér með einhverjum bolabrögðum að telja framgang þessa máls. Það getur vel verið að vandamál aldraðra hafi ekki brunnið svo mjög á honum persónulega, en ég get fullvissað hann um að vandamál aldraðra brennur einhvern tíma á hverjum okkar sem er, hvort sem það er okkur persónulega eða á nánum ættingjum. Ég frábið mér það sem hann hefur þegar sagt í þessu máli, og ég get næstum því sagt fyrir fram: Ég frábið mér allt það sem hann á eftir að segja. — Hann talar þar ekki fyrir mína hönd sem sjálfstæðismanns. Sjálfstfl. í borgarstjórn Reykjavíkur hefur sýnt að hann er á allt annarri skoðun en þm., og það hefur sjálfstæðisfólk í sveitarstjórnum vítt og breitt um landið líka sýnt.
Ég vil leyfa mér að lýsa yfir stuðningi mínum við framkomið frv. til l. um framkvæmdasjóð aldraðra á þskj. 965. Þá styð ég einnig þá ákvörðun heilbr.- og trn. Nd. að fresta umr. og afgreiðslu á frv. til l. um heilbrigðisog vistunarþjónustu fyrir aldraða. Samþykkt á þessu frv. til laga um framkvæmdasjóð aldraða markar djúp spor í þá átt að leysa þann mikla vanda sem vistun á öldruðu fólki er í okkar annars góða samfélagi. Ég er viss um að almenningur tekur þessum nefskatti vel. Og ég vil segja að það tekur þessum skatti mun betur þar sem féð rennur ekki til ríkissjóðs. Það rennur ekki til ríkissjóðs, það er misskilningur hjá hv. 7. landsk. þm. Ég skildi hann illa ef hann talaði ekki á þann máta að hér væri um ríkissjóðstekjur að ræða.
Ég vil segja að samtakamáttur fólksins í landinu er hér virkjaður í góðu máli. Hér er ungum sem öldnum gert að skyldu að snúa saman bökum til lausnar á því vandamáli sem brennur hvað sárast á íslenskri þjóð.
Fólkið í landinu hlýtur að fagna því aukna átaki til lausnar á vistunarvandamálum aldraðra sem af samþykkt þessa frv. mun leiða. Heilbr.- og trn. sýnir með flutningi þessa frv. frábæran skilning á þessu vandamáli aldraðra. Ég vil persónulega þakka henni fyrir vel unnin störf vegna þess að það var auðvelt fyrir nm. að afgreiða frv. eins og það lá fyrir neikvætt eða drepa það á einhvern annan hátt. En ábyrgðina, sem á n. hvíldi, skildu nm. Ég vil segja að þetta frv. er Alþingi til sóma og ég held að ekkert hafi verið borgarstjórn Reykjavíkur meira til framdráttar — öllum flokkum — en einmitt samþykkt á líkum aðgerðum í borgarstjórn Reykjavíkur á sínum tíma. En það átti erfitt uppdráttar, og ég ætla ekki, nema að gefnu tilefni frá flokksbróður mínum, að rifja upp þá sögu. (HBl: Ég held þú ættir að gera það ef þú ert ekki búinn að gleyma henni.) Ég óska eftir því, herra forseti, að í eitt skipti fái ræðumaður að tala án frammígrips frá hv. 7. landsk. þm. Það er kominn tími til að hann læri sína lexíu og mannasiði á sama hátt og hann gerir kröfur til annarra þm.
Ég hef starfað að byggingarframkvæmdum fyrir aldraða í þau tíu ár sem ég hef verið borgarfulltrúi í Reykjavík, og ég veit því hve brýnt er að auka fjárveitingu til þessa málaflokks. Bæjarfélög um land allt hafa sýnt þessum málaflokki sívaxandi áhuga og víðast hvar er nú myndarlega að staðið í byggingarframkvæmdum fyrir aldraða þrátt fyrir skort á framkvæmdafé. Vonandi leysir samþykkt þessa frv. þann vanda. Hér er verið að gera átak til lausnar á uppsöfnuðum vanda þjóðfélagsins og því þarf þann samtakamátt meðal þjóðarinnar allrar sem lýsir sér í því, að þessi höfðatöluskattur og ákveðna upphæð er lögð til.
Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þá brtt. sem hér er á þskj. 983, en ég mun ekki fylgja henni. Ég mun greiða atkv. gegn henni og með till. heilbr.- og trn. til lausnar þessum mikla vanda.