20.05.1981
Neðri deild: 102. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4745 í B-deild Alþingistíðinda. (4972)

335. mál, framkvæmdasjóður aldraðra

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Mér er kunnugt um að hv. 3. þm. Reykv., Albert Guðmundsson, var hér á árum áður mikill íþróttamaður. Ég held að hann hafi reyndar ekki stundað hnefaleika. En sjaldan hefur mér fundist hann slá eins undir belti og hann gerði í ræðu sinni áðan. Mér er nær að ætla að honum sé ekki alveg ljóst hvað það var sem hann var raunverulega að segja. Ég gerði hér fyrr í kvöld aths., en ekki við þetta málefni, heldur við þá fjáröflunarleið sem farin er. Þarna er skylt að gera skýran greinarmun á. Ég lýsti því jafnframt, að af tvennum leiðum, sem hér eru uppi tillögur um, er miklu fremri sú leið sem hv. þm. Magnús H. Magnússon hafði mælt fyrir og ítrekaði reyndar hér enn. Sé reynt að halda öðru fram, t. d. reynt að halda því fram, að ég eða aðrir hér hafi verið að tala gegn hagsmunum aldraðra, er uppi hafður málflutningur af því tagi að ég endurtek það, að ég held að þm. hafi ekki verið sjálfrátt þegar hann heldur því fram.

Málefni aldraðra eru af þeirri náttúru — og það er gott — að þau hafa tilfinningalega skírskotun. Það geta fleiri leikið leiki eins og hv. þm. lék hér í kvöld. Við getum tekið þar upp fleiri mál sem hafa tilfinningalega skírskotun til okkar allra. Það eru geðheilbrigðismál, það eru málefni þroskaheftra og við getum leikið okkur að því að flytja hér till. um 1000 kr. flatan skatt á sérhvern einstakling í landinu. (Gripið fram í.) Já, viðbætur við það, auka enn, því að ég vænti þess, að þm. séu þeirrar skoðunar að það megi gera betur — eða hvað?

Við getum svo haldið áfram, um leið og þm. efuðust um að tekjuöflunin væri rétt, að halda langar tilfinningaræður um mannvonsku hinna sömu þm. Það gerði þm. hér í kvöld. Hann neitaði að skilja á milli annars vegar málefnisins og hins vegar tekjuöflunarinnar sem hér er verið að leggja til. Ég sagði það — og lagði á það þunga áherslu, að ástæðan fyrir því, að ekki er hægt betur um þetta að fjalla og ná skynsamlegri tekjuöflunarleið, en halda þó málefninu, er með hverjum hætti málið er komið fram, hversu seint það er komið fram og hvað skammur tími er eftir af þessu þingi.

Það eru til peningar víða. Hv. þm., sem svo talaði, er formaður fyrir bankaráði. Nýverið var dreift hér á Alþingi upplýsingum frá hæstv. fjmrh. um risnu í bönkunum. Ein leið ef við hefðum meiri tíma, væri að skylda bankana til að leggja peninga í verkefni af þessu tagi. Og hvaða peninga? Peninga sem þeir nota í verkefni sem ég leyfi mér að segja að þeir hafi engan rétt til að sinna. Þetta er ein leið. Um þetta mundum við þurfa að ræða og ræða betur ef við hefðum tíma til.

Ég segi að sú ræða, sem hv. þm. flutti áðan, var ekki einasta ósmekkleg, hún var ódrengileg í alla staði. Það er allt annað að hafa efasemdir um þá fjáröflunarleið, sem hér er farin, en að hafa efasemdir um það málefni, sem hér er verið að leggja til. Ég dreg ekki í efa að hv. þm. er vel innrættur og sennilega betur innrættur en flestir þeir sem hér eru. Ræða hans fjallaði raunverulega efnislega um það, og um þann dóm hans um sjálfan sig er engin ástæða til að efast. En ég satt að segja frábið mér þennan málflutning og ég vænti þess og held nú allur þorri annarra þm. hafi smekk til þess að leggja ekki út á sömu brautir. Það er út af fyrir sig auðvelt að gera það, en þessari stofnun og ágætum málefnum er, held ég, lítill greiði gerður með því. Málefnið er gott, en meðal annarra orða: af hverju bara 100 kr.? Af hverju flytur ekki hv. þm. brtt. um að hafa þetta 200 kr. og gera helmingi betur — eða 500 kr. og gera fimm sinnum betur í þessum efnum? Ættum við svo ekki að fara að metast um hvor væri betri maður og hefði betri skilning í þessum efnum?

Ræða sú, sem hv. þm. flutti áðan, gaf tilefni til áframhaldandi umræðu af þessu tagi og áframhaldandi tillagna af þessu tagi. Ég er að reyna að útskýra fyrir hv. þm. hvað það var sem hann var að segja áðan, hvers konar málflutning hann hafði uppi og til hvers konar umræðna hann gaf tilefni. En þetta er einmitt kjarni málsins: Áðan, þegar ég hóf máls á nánast tæknilegum umræðum um fjáröflunarleiðir, baðst ég undan málflutningi af þessu tagi og bað þess að þarna væri skilið á milli. Hv. þm. kaus að heyra það ekki, kaus alla vega að láta sem hann heyrði það ekki. Ég held að mín röksemdafærsla standi gjörsamlega óhögguð, að þessi skot hafi hitt fram hjá. Ég endurtek það, að af tveimur leiðum er leið sú, sem hv. þm. Magnús H. Magnússon leggur til, ívið skárri. En ég minni á það að lokum, að það eru víða til peningar. Mér sýnist af skriflegum yfirlýsingum hæstv. fjmrh. að það séu t. d. til peningar í bönkunum. Þeim væri betur komið í svona verkefnum en í laxveiðiám allt í kringum landið.