20.05.1981
Neðri deild: 102. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4749 í B-deild Alþingistíðinda. (4975)

335. mál, framkvæmdasjóður aldraðra

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessa umr. mikið, en ég get varla orða bundist yfir því, með hvílíkum ólíkindum þessi umr. hefur farið fram. Ég hef engan hv. þm., sem hér hefur talað, heyrt tala gegn þessu máli sem slíku, — nauðsyninni, hinni brýnu þörf á úrbótum í þessu máli. Menn greinir á um hvaða leið á að fara til fjáröflunar og það er ósköp eðlilegt. Ég verð því að segja það, og mér þykir það þó leitt um jafnágætan íþróttamann og hv. 3. þm. Reykv. hefur verið og er, að ég tók ræðu hans á þann veg, að þar væri slegið undir beltisstað. Það var ekki hægt að skilja hana á annan hátt. Ég heyrði hvorki hv. 7. landsk. þm.hv. 9. þm. Reykv. tala gegn því, að það væri brýn þörf og nauðsyn á að ráða bót á því vandræðaástandi sem er í málefnum aldraðra hér á landi.

Það er leitt til þess að vita að menn skuli leiða umræður inn á þá braut sem hér hefur átt sér stað. Ég á ekki von á að það sé skoðun þeirra hv. þm., sem standa að tillöguflutningi um hvaða leið er valin til tekjuöflunar, að sú leið sé sú hin eina sanna og rétta og ekkert annað komi til mála. Ég held því að menn ættu að láta vera að vekja upp umr. á þeim grundvelli, sem mér finnst hv. 3. þm. Reykv. hafi gert hér í kvöld, og það sé að ástæðulausu að hér sé verið að saka menn um óheilindi í afstöðu eða málflutningi því að ekkert slíkt hefur komið hér fram í kvöld, að ég hef heyrt, að því er varðar málefnið sjálft.

Ég verð að segja það fyrir mig, að mér finnst heldur óskynsamleg leið sem hér er valin til tekjuöflunar. Ég heyrði að hv. 3. þm. Reykv. sagði að hann vorkenndi engum að borga sem á annað borð hefði tekjur. Af hverju er hv. 3. þm. Reykv. mótfallinn því að láta félög t. d. borga til þessarar uppbyggingar? Af hverju bara einstaklinga í landinu? Það væri gott að fá svar við því frá hv. þm. Albert Guðmundssyni o. fl., — ég tala nú ekki um þingmönnum Alþb., sem mest hafa talað um skattleysi félaga og fyrirtækja í landinu, — hvort ekki væri rétt að fyrirtækin tækju einnig þátt í þeirri uppbyggingu og væru þátttakendur í að stýra frá þeirri neyð, sem í þessum málum er nú, með því að skattleggja þau eins og einstaklingana. Er ekki skynsamlegra, — ég tala nú ekki um fyrir þá sem telja sig fulltrúa hinna lægst launuðu og lítilmagnans í þjóðfélaginu — að sú fjáröflunarleið, sem sé valin, sé með þeim hætti að hún komi sem hlutfallslega jafnast niður á greiðendur? Sú leið, sem hér er lagt til að farin verði, gerir það ekki. Aftur á móti miðar sú leið, sem lögð er til í brtt. á þskj. 983, að því að á þessu verkefni sé tekið og borgað hlutfallslega eftir því sem hver og einn getur. Ég vil óska sérstaklega eftir svari hv. þm. Alberts Guðmundssonar um þetta — ekki síst í ljósi þeirra orða hans áðan að hann vorkenndi engum að borga. Hvers vegna þá ekki, hv. þm. Albert Guðmundsson, að láta félögin og fyrirtækin borga líka? Það fengist enn meira fjármagn með því og það væri hægt að gera enn þá meira til úrlausnar í þeim brýnu vandamálum sem hér er við að glíma.

Er það í raun og veru ástæðan fyrir því, að hv. þm. Albert Guðmundsson er andvígur þeirri leið að félögin borgi líka, að hann er fulltrúi þess flokks og þess hóps í þjóðfélaginu þar sem um fyrirtæki er fyrst og fremst að ræða, að hann sé að gæta hagsmuna fyrirtækjanna hér á Alþingi? Er sú ástæðan fyrir því, að hann vill einvörðungu binda þetta við einstaklingana í landinu? Af hverju að hlífa fyrirtækjunum við þátttöku í svo mikilsverðu og brýnu verkefni? Ég sé enga ástæðu til þess.

Ég vil engum getum að því leiða — hv. þm. svarar væntanlega á eftir — vegna hvers hann vill undanþiggja félög og fyrirtæki. Ég tel rétt að hann segi það sjálfur hér yfir þingheim, af hverju hann vill sleppa þessum aðilum við að borga lítillega í þennan sameiginlega sjóð til að firra þeim geysilegu vandræðum og því neyðarástandi sem um er að ræða í þessum málaflokki, ekki bara hér í Reykjavík, heldur víðs vegar um landið.

Ég skal ekki, herra forseti, hafa um þetta öllu fleiri orð. En ekki síst fannst mér ástæða til að segja hér örfá orð vegna þeirrar ræðu sem hv. 3. þm. Reykv. flutti í hið fyrra skipti og raunar hið síðara líka. Mér fannst málflutningur hans á engan hátt sæmandi honum sem einstaklingi, það ég þekki hann, ég tala nú ekki um sem íþróttamanni.