21.05.1981
Sameinað þing: 87. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4771 í B-deild Alþingistíðinda. (5016)
280. mál, stóriðjumál
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Hér er ekki um það að ræða, hvort menn séu fylgjandi eða andvígir stóriðju eða orkufrekum iðnaði, heldur fyrirkomulag á athugun og undirbúningi þeirra mála. Í stjórnarsáttmála núv. ríkisstj. er rætt um undirbúning að stóriðju, og í þeirri till. til þál. um iðnaðarstefnu, sem liggur fyrir þessu þingi frá ríkisstj., er sérstaklega minnst á undirbúning að orkufrekum iðnaði. Hins vegar hefur það verið venja í tvo áratugi, að nefndir, sem unnið hafa að þessum málum, hafa verið skipaðar af ríkisstjórnum, en aldrei kosnar af Alþingi. Þegar Bjarni Benediktsson, þáv. iðnrh., skipaði 5. maí 1961 nefnd til þess að fjalla um þessi mál, þá var það ríkisstj., en ekki Alþingi, sem stóð að þeirri skipun, og þannig hefur það jafnan verið síðan. Mér sýnist ekki ástæða til að breyta út frá þeirri venju sem þannig hefur skapast. Í jan. s. l. var af ríkisstj. hálfu skipuð nefnd til þess samkv. stjórnarsáttmálanum að gera tillögur um stefnumótun í orkumálum, og m. a. er það verkefni þessarar nefndar að gera tillögur um nýtingu þeirrar orku sem við þurfum að afla með stórvirkjunum. Af þeim ástæðum, sem ég hér hef greint, segi ég já við þessari tillögu.