21.05.1981
Sameinað þing: 87. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4776 í B-deild Alþingistíðinda. (5024)

99. mál, eldsneytisgeymar varnarliðsins

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Fram eftir ræðu hv. síðasta ræðumanns fannst mér að Bleik væri brugðið, en sem betur fer lét hann ekki deigan síga undir lokin, hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, og mælti mjög eindregið með því, að flýtt yrði framkvæmdum við hernaðarmannvirki á Keflavikurflugvelli og þar yrði leyfð 51 þús. rúmmetra öruggar olíugeymslur í stað þeirra sem ónýtar eru meira og minna, og hann taldi að þetta mætti gjarnan framkvæma á 2–3 árum. Út á það gekk auðvitað afstaða hans í utanrmn. að skora á hæstv. utanrrh. að hraða þessum herraðarframkvæmdum sem allra mest má verða, og ég er honum innilega sammála um að þetta er mikil nauðsyn, enda segir hæstv, utanrrh. í viðtali við Morgunblaðið í dag eitthvað á þann veg, að í utanrmn. hafi fyrst og fremst verið rætt um tímasetningu framkvæmdanna á Keflavíkurflugvelli — það er alveg rétt — og hann líti svo á, að n. í heild hafi falið sér að reyna að hraða þessum framkvæmdum sem mest má verða, en um efnisleg atriði og fyrirkomulag hafi hann að sjálfsögðu allt í hendi sér. Það er þess vegna rétt, að það er mjög ánægjulegt sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að nú hefur skapast þjóðareining í þessum málum, í varnarmálunum, í fyrsta skipti í sögunni. Allir íslenskir stjórnmálaflokkar taka um það ákvörðun að óska þess, að mjög verði hraðað framkvæmdum til öryggis á Keflavíkurflugvelli til þess að gera störf varnarliðsins og þar með varnarmátt Atlantshafsbandalagsins meiri og samstöðu okkar með NATO-þjóðunum sterkari og öflugri og bæta þar með að sjálfsögðu varnarmátt vestursins. Þetta hefðu þótt tíðindi, saga til næsta bæjar fyrir nokkrum árum, en hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson á vissulega þakkir skildar fyrir að hafa riðið á vaðið til að sameina þjóðina í þessu mesta hagsmunamáli, þessu sjálfstæðismáli: öryggismálum þjóðarinnar. Mér skilst að hann hafi, hvort sem það var nú fyrir fundinn í gær eða eftir, fengið flokk sinn til að fallast á að sín stefna í málunum væri rétt, að Alþb. ætti að taka fulla ábyrgð á framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli og beita sér fyrir því, að þeim yrði hraðað sem mest má verða.

Það er að sjálfsögðu engin efnisbreyting á þessari till. og þeirri sem upphaflega var flutt. Eini munurinn er sá, að í upphaflegu tillögunni var talað um að hraða framkvæmdunum eins og verða má, í þeirri síðari að þeim verði hraðað svo sem kostur er.

Þegar þetta mál var til umr. í utanrmn. í gær skýrði ég mitt sjónarmið, og mér er leyfilegt að segja frá því, hvað ég sagði þar, þó að ég hafi ekki heimild til að segja frá því, hvað aðrir segja. Menn vita um reglur utanrmn., þær eru sérstæðar að því leyti, að menn eru bundnir þagnareiði, en hafa þó leyfi til að skýra frá því sem þeir sjálfir segja þar. Áður en ákvörðun var tekin um orðalag þessarar till. og áður en einstakir nm. höfðu tekið afstöðu og lýst skoðunum sínum benti ég á að það væri mjög mikilsvert að reyna að ná samstöðu, helst allra nm., um að hraða þessum framkvæmdum sem mest mætti verða. Það væri alveg ljóst hvert væri eðli málsins, þ. e. að varnarliðið byggði nýjar og fullkomnar eldsneytisgeymslur á Keflavíkurflugvelli og löndunaraðstöðu. Um efnisatriði gæti ekki verið neinn ágreiningur og þegar fyrir lægi að menn væru sammála um hvað í till. fælist, þá væri mér ekkert kappsmál, hvernig till. væri orðuð, og legði á það áherslu að hún yrði orðuð þannig að fulltrúi Alþb. gæti verið með, en að sjálfsögðu að því áskildu að allir vissu, enda færi það ekkert á milli mála, að það væri verið að samþykkja áskorun á hæstv. utanrrh. um að beita áhrifum sínum til þess að framkvæmdum varnarliðsins, þessum stærstu framkvæmdum varnarliðsins frá styrjaldarlokum, stærstu framkvæmdum á hernaðarsviðinu á Íslandi frá styrjaldarlokum, yrði hraðað sem mest má verða. Það lá alveg ljóst fyrir að þannig skildi ég till.

Mér þykir nú leitt að hæstv. utanrrh. skuli ekki vera hér. Hann hefði vafalaust skýrt frá því, hvernig hann leit á málin, og raunar gerir hann það í nefndu blaðaviðtali í dag. Hann sem sagt lítur svo á, að sér beri að flýta þessum framkvæmdum eins og nokkur kostur er, það sé vilji utanrmn. og væntanlega Alþingis, og sjálfur hafi hann síðan í hendi sér samninga um hvernig þetta verði gert. Auðvitað verða þetta fullkomnar geymslur, og við eigum að krefjast þess, að þetta verði geymslur neðanjarðar að verulegu leyti, helst sem best búnar og þyldu árásir o. s. frv., enda enginn vafi á því, að þegar um svona gífurlega framkvæmd er að ræða, sem talið er að muni taka allt að 7 árum, eins og ég sagði áðan: langmestu framkvæmd á Keflavíkurflugvelli frá styrjaldarlokum, að svo viðbættum auðvitað flugskýlunum og flugstöðinni sem hlýtur að koma, þá er náttúrlega geysilega ánægjulegt að þingheimur allur virðist ætla að styðja þessa stefnu. Er það í fyrsta skipti frá styrjaldarlokum sem fulltrúar allra íslenskra stjórnmálaflokka standa sameinaðir um það að tryggja öryggi landsins á þann hátt sem best má verða.

Ég endurtek þakkir mínar til hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar fyrir forgöngu hans í því máli. Hann hefur þá ekki til einskis á Alþingi setið, ef honum tekst að fá Alþb.-félaga sína og kommúnista alla til þess að koma til liðs við okkur hina í öryggis- og varnarmálum landsins.

Ég veit náttúrlega ekki hvers vegna þessi nýja stefna er tekin upp af hálfu Alþb. Það er ánægjulegt að hún hefur verið tekin. Við fögnum því. En mér segir svo hugur um og ég vona a. m. k. að það sé vegna þess, að Alþb.-menn eins og aðrir Íslendingar, aðrir þeir sem búa við frjálsræði og lýðræði, geri sér nú grein fyrir þeirri ógnarhættu og þeim ógnaryfirgangi sem af Ráðstjórnarríkjunum stafar. Ráðstjórnarríkin hafa ráðist inn í Afganistan, eru að mylja þjóðina undir hæl herveldisins. Þeir ógna Pólverjum og mundu vafalaust ráðast þar inn og kremja þá undir hæl sínum, járnhælnum, ef þeir þyrðu. Þess vegna er gífurlega mikilvægt að frá litlum þjóðum eins og Íslendingum, — það getum við lagt til friðarins, — að frá litlum þjóðum fái þeir að skilja að það sé ekki meiningin að láta þá murka niður eina og eina þjóð í einu, heldur sé samtakamáttur frjálshuga fólks um allan heim sem muni getað stöðvað ofbeldið — og aðeins slíkur máttur, ekki eingöngu hernaðarlegur máttur, heldur samstaða um að sýna þeim þjóðum, sem undirokaðar eru, að þær eigi vini og samstarfsmenn annars staðar, auka þeim kjark til þess að verjast ofbeldinu.

Ég vona að það sé af þessum sökum sem þeir Alþb. menn nú í fyrsta skipti ganga til liðs við aðra flokka á Íslandi til þess að krefjast þess, að öryggismálum landsins verði komið í fullkomnara og betra horf en þau hafa verið, m. a. með því að taka upp bestu tækni og fullkomnustu framkvæmdir við gæslu á vellinum og allan öryggisbúnað. Ég vil ekki ætla þeim það, að þessi breytta afstaða bygging eingöngu á því, að þeim þyki vænt um ráðherrastóla og vilji þess vegna ekki láta skerast í odda. Ég heyrði það í morgun, þegar menn höfðu frétt af þessari breyttu afstöðu, að sumir héldu að þessir menn eins og Ólafur Ragnar Grímsson, formaður þingflokksins, og hæstv. ráðherrar Alþb., væru ekki meiri karlar en það, að þeir féllu bara frá skoðun sinni til þess að geta verið í völdum og áhrifum og baðað sig í virðingunni og aðstóðunni. Ég ætla þeim það ekki. Ég ætla þeim það, að þeir hafi séð — sumir þeirra loks, kannske einhverjir þeirra alltaf að vissu marki — það ógnarvald, það ofbeldi sem ógnar öllum vestrænum þjóðum og raunar heimsbyggðinni allri, og þess vegna hafi þeir nú komið til liðs við okkur hina um að tryggja það, að varnir á Íslandi verði auknar og stórkostlega auknar. Ég hygg líka að þeir viti jafnvel og við, að ásókn Ráðstjórnarríkjanna einmitt í nágrenni okkar hér á norðurslóðum hefur verið meiri og hernaðarmáttur þeirra aukinn meira á þessu hafsvæði heldur en nokkurs staðar annars staðar í veröldinni. Þetta vita þessir þm., og ég sé að hv. þm. Guðrún Helgadóttir brosir í kampinn. Hv. þm. veit þetta og ég ætla henni ekki annað en að hún vilji ekki láta það yfir okkur ganga, að þrýstingur af hálfu Ráðstjórnarríkjanna aukist jafnt og þétt án þess að við hreyfum legg eða lið. Þess vegna mun hún samkv. yfirlýsingu Svavars Gestssonar einnig í Morgunblaðinu í morgun um það, að þingflokkurinn standi að baki Ólafi Ragnari Grímssyni í afstöðu hans, alveg vafalaust gera það vegna þess að hún vill gæta íslenskra hagsmuna, íslenskra öryggishagsmuna. Ég ætla henni ekki annað en hún vilji þetta og vonandi þeir Alþb.-menn allir. (Gripið fram í: Hún brosti líka fallega, hv. þm.) Hún gerir það, hún er falleg. (Gripið fram í — Forseti: Ekki samtal á fundinum.) Því miður er það nú meira en mengun sem yfir Afgana hefur gengið. Það er mikill sóðaskapur, mjög mikill sóðaskapur, einhver sá óhugnanlegasti sem ég hef kynnst, og það er miklum mun meiri og alvarlegri mengun heldur en yfir Njarðvíkinga gengur. Ég get þess vegna ekki líkt því saman, en kannske getur hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson fundið einhverja slíka samlíkingu.

En það, sem ég vil að lokum segja, er þetta:

Ég vil vara hv. þm. Ólaf Ragnar Grímsson og aðra Alþb.-menn við að halda því stanslaust fram, að með þeim framkvæmdum, sem þeir eru að samþykkja að skora á utanrrh. að láta hraða sem allra mest, sé verið að breyta eðli varnarstöðvarinnar. Það hafa þeir sagt núna vikum og mánuðum saman, að ef framkvæmdir við olíugeyma, flugskýli og annað slíkt á Keflavíkurflugvelli gengju fram, sem þeir núna hafa krafist að yrði sem allra fyrst, þá yrði breytt eðli herstöðvarinnar með þeim hætti, að hún breyttist úr varnarstöð í árásarstöð. Þetta hafa allir heyrt úr þessum ræðustól. Þetta hafa allir lesið. Þetta vita landsmenn allir. Þetta er kenning Ólafs Ragnars Grímssonar. Hann ætlar að halda því fram, að á Íslandi eigi að verða árásarstöð eftir að hann hefur knúið fram með okkur öðrum þessa breytingu á aðstöðunni á Keflavíkurflugvelli. Þetta er alrangt. Ísland er og verður í varnarstöðu með lýðræðisþjóðum. Í Keflavík er engin árásarstöð, hefur ekki verið, og það er alrangt, sem Ólafur Ragnar Grímsson er höfundur að og kennimeistari, að nú sé verið að breyta þessari stöð, breyta eðli stöðvarinnar, eins og hann orðaði það, í árásarstöð, það sé gert með byggingu þessara olíugeyma og flugskýla. Þetta er alrangt. Það er ekki verið að breyta Íslandi í neina árásarstöð. En þetta gægðist raunar enn fram hjá hv. þm. þegar hann sagði, að fyrirvarinn byggðist fyrst og fremst á því, að það væri talað um varnarlið. Hann vildi tala um bandarískt herlið, en ekki varnarlið. Það má ekki kalla það varnarlið vegna þess að stöðin á í áróðri að vera árásarstöð. Eðli hennar er verið að breyta, segja þessir menn. Það má ekki tala um varnarlið, þetta er ekki varnarstöð, þetta er árásarstöð. Við erum að gera hana að árásarstöð. — Þetta er mergurinn málsins og þetta er hættulegur áróður. (Gripið fram í.) Þær framkvæmdir, sem hv. þm. var að samþykkja í gærdag, gera Keflavíkurflugvöll ekki að árásarstöð. Það er engin eðlisbreyting. Það er eingöngu verið að endurnýja og byggja að vísu fullkomnari aðstöðu en áður, og ég skal játa það, að þetta eru mestu framkvæmdir frá styrjaldarlokum. Það er verið að endurnýja þetta vegna breyttrar tækni. Það eru komnar betri flugvélar, það verða betri olíugeymslur, það verða betri flugskýli o. s. frv. Það er verið að efla þessa varnarstöð vegna þess að ásókn Rússa hér um slóðir hefur aukist og það þarf að vera betur á verði en áður.

Ég vara enn við því, að þessi hv. þm. og aðrir kommúnistar eða aðrir þm. Alþb., — ég held að hann sé nú ekki kommúnisti, — sé sí og æ að breiða það út bæði hér og erlendis, að hér sé verið að byggja upp árásarstöð, það sé verið að breyta eðli stöðvarinnar. Þegar þeir rétta upp höndina með því að skora á utanrrh. að láta hraða framkvæmdunum við olíugeymana á Keflavíkurflugvelli eins og mést má verða og löndunaraðstöðu og uppskipunar, þá mega þeir ekki hafa það í huga, vegna þess að það er ekki ætlun eins eða neins í öðrum flokkum að við séum að breyta eðli varnarstöðvarinnar. Við erum að styrkja hana, gera hana betur til þess fallna að þar verði staðið á verði gegn erlendum ofbeldisöflum. Við erum að styrkja varnir Íslands og þar með alls hins vestræna heims. Það er það sem við erum að gera. Við erum að stórefla þessa varnarstöð, það er rétt, en við erum ekki að breyta eðli hennar. Hún er ekki nein árásarstöð. Þegar hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson réttir upp höndina má hann ekki hugsa sem svo, að hann sé að gera það til að breyta eðli stöðvarinnar og gera hana að árásarstöð. Hann er að gera það til þess að efla varnir landsins.