21.05.1981
Sameinað þing: 88. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4785 í B-deild Alþingistíðinda. (5033)

Umræður utan dagskrár

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég vildi aðeins út af orðum hv. þm. Friðriks Sophussonar taka það fram, að mál þetta var fyrst tekið til efnislegrar meðferðar í nefndinni 7. þ. m. eftir að umsagnir höfðu borist. Ætli það hafi ekki verið í fyrrakvöld um miðnætti sem mér bárust brtt. frá sjálfstæðismönnum og Magnúsi H. Magnússyni og einnig hugmyndir að brtt. frá iðnrh. Við héldum fund í gærmorgun. Sannleikurinn er sá, að það er margt gott í þessum brtt. Það hefur ekki unnist mikill tími til þess að samræma þær og vinna úr þeim. Ég vil mótmæla því, að það hafi á einhvern hátt verið reynt að svæfa þetta mál í nefndinni, en eins og menn vita hefur verið mikið um að vera hér á Alþingi og þess vegna ekki mikill tími til að samræma skoðanir í hinum ýmsu málum.

Í framhaldi af þessu benti formaður nefndarinnar á í morgun að ekki væri svigrúm til að vinna frekar úr þessu máli og samræma þær brtt. sem fram hafa komið. Ég tók undir þetta sjónarmið hjá formanninum. En ég tel að það hafi á engan hátt verið tilraun til þess að svæfa málið, heldur aðeins viðurkenning á þeim staðreyndum sem liggja hér fyrir á þessum síðustu dögum þinghaldsins. Hér eru mörg mál sem þurfa að ganga fram, og þm. eru allir af vilja gerðir að greiða fyrir þeim. Það eru hins vegar ákveðin takmörk fyrir því, hvað menn geta unnið mikið í málum.