21.05.1981
Sameinað þing: 88. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4803 í B-deild Alþingistíðinda. (5049)
22. mál, félagsleg þjónusta fyrir aldraða
Frsm. (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Allshn. hefur haft til meðferðar síðan í nóvemberbyrjun till. til þál. um heilbrigðis- og félagslega þjónustu fyrir aldraða, sem kveður á um að komið verði á samræmdu skipulagi í heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða með tilliti til bæði félagslegra og heilsufarslegra sjónarmiða. Í till. kom fram að betri skipulagning þessara mála verði byggð á samstjórn og samræmingu allra þátta í heilbrigðis- og félagslegri þjónustu fyrir aldraða sem gæti auðveldað yfirsýn yfir brýnustu þörf á sjúkrahúsvist, langlegudvöl, heimahjúkrun, heimilisþjónustu og dvalarheimilum fyrir aldraða.
Nefndin fékk umsagnir frá landlækni, heilbr.- og trmrn. og Sambandi ísl. sveitarfélaga, og einnig kom á fund nefndarinnar Jón Ingimarsson í heilbrmrn. Í bréfi heilbr.- og trmrn. kom fram að lagt yrði fyrir Alþingi frv. sem fæli í sér þau markmið sem að væri stefnt í þessari þáltill., og kom fram í umsögn rn. að áður en till. yrði afgreidd fengist úr því skorið, hvort frv., sem lagt yrði fram í þessu máli, næði þeim markmiðum sem þáltill. stefndi að.
Í umsögn Sambands ísl. sveitarfélaga, sem dagsett er 3. mars s. l., var einróma mælt með að þáltill. yrði samþykkt á Alþingi.
Eins og fram kemur í nál. frestaði n. afgreiðslu þessarar till. þar sem upplýst var að lagt yrði fram á yfirstandandi þingi frv. um málefni aldraða sem fæli í sér þá þætti sem þáltill. kveður á um.
Nú hefur legið fyrir þinginu síðan í mars frv. um heilbrigðis- og vistunarmál aldraðra. Margar aths. hafa komið fram við það frv., m. a að félagslega þættinum í uppbyggingu samræmdrar þjónustu fyrir aldraða er að miklu leyti sleppt í því frv. Fram hefur komið að það frv. verði ekki afgreitt nú, heldur verði það endurskoðað milli þinga með tilliti til þeirra aths. sem fram hafa komið. Allshn. telur því rétt, að áður en frv. verður lagt fram á nýjan leik á Alþingi verði þeir þættir einnig hafðir til hliðsjónar sem þessi þáltill. felur í sér. Í trausti þess, að svo verði gert, leggur allshn. til í nál. á þskj. 936 að till. verði vísað til ríkisstj.