21.05.1981
Sameinað þing: 88. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4805 í B-deild Alþingistíðinda. (5055)

186. mál, einangrun húsa

Frsm. (Magnús H. Magnússon):

Herra forseti. Atvmn. fékk umsögn um till. frá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, og hafði auk þess fund með stofnuninni um málið. Nefndin telur að einskis megi láta ófreistað til að bæta byggingaraðferðir og lækka byggingarkostnað og um leið upphitunarkostnað húsa. Nefndin mælir eindregið með samþykkt till. nokkuð breyttrar. Brtt. á þskj. 849 hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Tillgr. orðist svo:

Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta fara fram rækilega könnun varðandi einangrun útveggja húsa, einangrunaraðferðir, kosti þeirra og galla.

Skulu Húsnæðisstofnun ríkisins og Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins annast könnun þessa og birta niðurstöður sínar sem fyrst.“