21.05.1981
Sameinað þing: 88. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4808 í B-deild Alþingistíðinda. (5064)
260. mál, veðurfregnir
Frsm. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Allshn. fékk til meðferðar till. til þál. á þskj. 515 um veðurfregnir. Nefndin varð sammála um að breyta till. og að tillgr. orðaðist svo:
„Alþingi ályktar að fela samgrh., sem fer með yfirstjórn Veðurstofu Íslands, að láta kanna hvernig unnt sé að bæta tæknibúnað Veðurstofunnar og aðstöðu til öflunar og úrvinnslu veðurathugana svo og hvernig útvarpi veðurfregna og sérstakra aðvarana verði best hagað til öryggis og hags fyrir landsmenn alla.“
Á þskj. 791 er nál. frá allshn. Þar segir frá því, að n. hafi fengið Hlyn Sigtryggsson veðurstofustjóra til viðræðu um efni till. og mæli með samþykkt till. svo breyttrar.