21.05.1981
Sameinað þing: 88. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4812 í B-deild Alþingistíðinda. (5070)

Umræður utan dagskrár

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Fsp. þessi er allviðamikil og fram borin síðla kvölds. Ég mun þó reyna að svara henni og veita nokkrar upplýsingar.

Þegar fíkniefnaneysla breiddist út í Evrópu og til Norðurlanda milli áranna 1960 og 1970 þótti sýnt að slík efni hlytu einnig að berast til Íslands þótt síðar yrði. Var hafist handa um lagabreytingu árið 1968 á ópíumlögunum gömlu svo að þau næðu yfir fleiri efni, og árið 1970 var varsla fíkniefna gerð refsiverð og refsirammi hækkaður. Um þetta leyti, þ. e. 1969–1970, fóru fíkniefni að berast til landsins.

Lögreglan í Reykjavík og ýmsir áhugaaðilar, einkum Kiwanisklúbburinn Katla, stóðu að því að fá hund til hassleitar árið 1971. Var hundurinn við leitir allt fram til ársins 1977, en þá var honum fargað. Árangur af leit bar ágætan árangur, einkum framan af, og tilvist hundsins skapaði geysimikil almenn varnaðaráhrif.

Dómsmrn. sendi öllum lögreglustjórum landsins bréf árið 1971 og hvatti til aukinnar aðgæslu og löggæslu með fíkniefnum og samstarfs á því sviði. Í ársbyrjun voru tveir lögreglumenn í Reykjavík settir í það verkefni að sinna fíknimálum einvörðungu. Smám saman hefur fjölgað lögreglumönnum sem starfa að þessum málum, og nú er starfandi sérstök deild að þessum málum við lögreglustjóraembættið í Reykjavík. Einnig er starfandi einn lögreglumaður í Keflavík sem eingöngu sinnir þessum málaflokki.

Ríkisstj. ákvað árið 1970 að setja samstarfshóp og árið 1972, þegar hann lauk störfum, var samkv. ákvörðun ríkisstj. skipuð önnur samstarfsnefnd með það hlutverk að samræma og stjórna aðgerðum af ríkisins hálfu. Nefnd þessi, sem skipuð er fulltrúum dóms-, heilbrigðis-, menntamála- og fjármálaráðuneytisins, var endurskipuð á s. l. ári.

Árið 1972 varð fíkniefna vart í talsverðum mæli og tókst að upplýsa mörg þeirra mála. Þá ákvað þáv. dómsmrh., Ólafur Jóhannesson, að beita sér fyrir því að setja á fót sérdómstól til að sinna málum af þessu tagi. Með lögum nr. 52 frá 1973 var stofnað til embættis sakadómara í ávana- og fíkniefnamálum. Ekki er talin ástæða til að rökstyðja hér sérdómstól þennan. Ásgeir Friðjónsson var settur í maí 1973 í dómarastöðu þessa og síðar skipaður. Hefur einn löglærður fulltrúi starfað við dómstólinn frá 1973–1977, en þá fékkst heimild fyrir tveimur fulltrúum. Þá hefur ritari verið starfandi, lengst af í hálfu starfi.

Deild lögreglumanna hefur ekki verið starfrækt við dómstólinn, og dómarinn hefur ekki verið hlynntur slíku. Hann hefur m. a. rökstutt skoðun sína með eftirfarandi:

1. Óheppilegt að dómari hafi daglega stjórn lögreglumanna.

2. Óvissa um stöðu og víðfeðmi verkefna.

3. Þess mátti vænta, að upp kæmu umfangsmiklar rannsóknir með fjölda grunaðra í mörgum lögsagnarumdæmum. Þá væri líklegt að tilvist slíkrar lögregludeildar gerði nauðsynlega og nána samvinnu milli embætta flóknari en vera þyrfti.

4. Stofnun slíkrar lögregludeildar þótti líkleg til að einangra hið nýja embætti og orka gegn eðlilegu frumkvæði og ábyrgð einstakra sýslumanna- og bæjarfógetaembætta.

Dómstóllinn hefur aðsetur í lögreglustöðinni í Reykjavík. Með nánu sambýli við fíkniefnadeild lögreglustjóra hefur áunnist margvíslegt hagræði, m. a. mátt sneiða hjá tvíverknaði varðandi smæstu brotaðila.

Fjöldi fíknimála hefur stöðugt aukist. Hefur reynst nauðsynlegt að fjölga starfsliði hjá ríkissaksóknaraembættinu til að mæta auknum verkefnum þar. Flestum málum er lokið með dómsátt og eiga þá í hlut neytendur, kaupendur, minni háttar seljendur og að vissu marki milligönguaðilar um dreifingu fíkniefna frá innflytjendum og stærri dreifendum.

Frá maí 1973 til nóv. 1977 höfðu 37 aðilar hlotið dóm, þar af 20 í óskilorðsbundið fangelsi.

Langmest hefur verið smyglað af hassi í gegnum árin, þ. e. kannabisefnum. Á árunum 1973–1974 barst nokkurt magn af LSD-töflum, en þeirra gætir lítið nú orðið. Amfetamíni er smyglað í vaxandi mæli og kókaíns er einnig farið að gæta.

Það er ljóst, að þróunin hér á landi er með líku móti og annars staðar, stigvaxandi, þannig að hass er byrjunin, en síðan koma í kjölfarið önnur og sterkari efni. Enn sem komið er hefur lítið borist af ópíum, heróíni og morfíni til landsins, en allar horfur eru á að þessi efni berist fyrr en síðar til landsins.

Töluverður hópur Íslendinga hefur dvalist erlendis, aðallega í Danmörku og Svíþjóð, sem hefur framfæri sitt af því að kaupa fíkniefni í suðlægari löndum eða Hollandi og selja þau síðan í Danmörku eða Svíþjóð og jafnvel að nokkru leyti á Íslandi. Hluti þessa fólks hefur ánetjast sterkari efnum og mikil hætta er tengd heimkomu þessa fólks. Allnokkrir úr hópnum hafa náðst og verið dæmdir og hafa setið í fangelsum bæði erlendis og hér á landi.

Ráðuneytið hefur miklar áhyggjur varðandi þróun þessara mála. Á s. l. ári var lögreglustjóranum í. Reykjavík skrifað bréf og óskað eftir tillögum um eflingu löggæslu og varna á sviði ávana- og fíknimála. Með bréfi dagsettu í júlí á s. 1 ári lagði hann fram margþátta tillögur.

Lögreglustjóri bendir á nauðsyn náinnar samvinnu lögreglu og tollyfirvalda og nefnir sérstök námskeið sem haldin hafa verið og haldin verða í Lögregluskóla ríkisins um þessi mál. Þá nefnir hann einnig þörf þess að halda áfram á þeirri braut að senda lögreglumenn utan til að kynnast starfsaðferðum lögreglunnar þar.

Varðandi eflingu á starfsemi fíknideildar lögreglustjóraembættisins lagði hann til eftirfarandi:

1. Að ráðinn yrði löglærður fulltrúi til að stjórna rannsókn mála. — Heimild fékkst fyrir fulltrúanum og skömmu fyrir síðustu áramót var ráðinn til starfa Ólafur Jónsson, fyrrv. tollgæslustjóri, sem einnig hefur starfað sem fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík um langt árabil á árum áður.

2. Að tala lögreglumanna yrði aukin um þrjá. — Heimild fékkst á fjárlögum fyrir þremur nýjum starfsmönnum við fíknideild.

3. Að þjálfaðir verði einn eða tveir hundar til leitar að fíkniefnum. — Snemma á þessu ári voru fest kaup á einum fíknileitarhundi í Danmörku og hlaut hundurinn svo og lögreglumaðurinn, sem stjórnar honum, þjálfun hjá dönsku lögreglunni. Vegna skilyrða um sóttkví hefur enn ekki verið unnt að láta hundinn hefja leit, en þess er skammt að bíða að hann komi í gagnið.

Í fjórða lagi lagði lögreglustjóri svo til að aflað yrði aukins tækjabúnaðar.

Með bréfi, dagsettu 20. maí 1981, hefur lögreglustjórinn sundurliðað hvaða tækjabúnað hann telur þurfa, og mun ráðuneytið á næstu dögum reyna eftir föngum að verða við óskum, en reynslan hefur sýnt að verulegs tækjabúnaðar er þörf til að unnt sé að vinna að uppljóstran fíknimála.

Þá hefur verið í undirbúningi í ráðuneytinu um alllangt skeið áætlun um það, hvernig heppilegast sé að efla fræðslu, aðallega fyrir ungmenni, um skaðsemi fíkniefna. Ljóst er að gera þarf stórátak hvað þetta snertir, og þess er skammt að bíða, að samstarfsnefndin um fíkniefnavandamálið reki smiðshögg á áætlun um fræðsluherferð.

Ég hef þessi orð ekki fleiri. Ég vænti þess, að hv. fyrirspyrjandi, 1. landsk. þm., telji þessi svör og upplýsingar nokkurs virði.